Sport

Bæði ís­lensku liðin tryggðu sig í úr­slitin á EM

Andri Broddason skrifar
Landslið Íslands í hópfimleikum náði að tryggja sig í úrslit á EM í blönduðum flokki.
Landslið Íslands í hópfimleikum náði að tryggja sig í úrslit á EM í blönduðum flokki. Fimleikasamband Íslands

EM í hópfimleikum stendur yfir og klárast á laugardaginn en þar er Ísland með lið í kvennaflokki og blönduðum flokki. Undanúrslitin fóru fram í dag og náðu bæði íslensku liðin að tryggja sig í úrslitin.

Kvennaliðið stóð sig frábærlega í undanúrslitum og endaði í öðru sæti. Aðeins voru 0,300 stig milli Íslands og Svíþjóðar sem endaði efst í undanúrslitunum. Stelpurnar okkar komust því örugglega áfram þar sem efstu sex löndin komust áfram í úrslitin sem fara fram á laugardaginn.

Stelpurnar enduðu í öðru sæti í öllum þrem greinunum: gólfæfingum, dýnustökki og á trampólíni og því mikill stöðugleiki hjá liðinu. Mikilvægt er fyrir liðið að halda áfram góðu gengi og reyna að byggja ofan á góða frammistöðu.

Blandaða liðið náði einnig að komast áfram en liðið endaði í fjórða sæti undanúrslitanna. Svíþjóð var einnig í efsta sæti þar og voru með meiri yfirburði en í kvennaliðum. Íslenska liðið var þó öruggt áfram þar sem einnig fóru efstu sex liðin áfram í úrslitin á laugardaginn.

Í keppni blandaðra liða gengu trampólínæfingarnar best þar sem Ísland endaði í þriðja sæti. Liðið var fjórða í dýnustökki og fimmta á gólfæfingum og er því svigrúm til bætinga þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×