Skoðun

Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig

Jakob Tryggvason skrifar

Kona á ekki að þurfa að búa sig undir kynferðislega áreitni þegar hún velur sér iðnnám, sætta sig við niðurlægingu til að halda vinnunni eða sanna dag eftir dag að hún eigi heima á vinnustaðnum sínum. Þetta er engu að síður veruleiki alltof margra kvenna.

Rannsókn Vörðu á stöðu kvenna í karllægum greinum sem gerð var að undirlagi okkar, stéttarfélaganna innan Fagfélaganna, gefur okkur körlum alvarlega ástæðu til að líta í eigin barm. Ríflega helmingur þátttakenda í rannsókninni sagðist hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi. Tveir þriðju höfðu orðið fyrir neikvæðum atvikum eða athugasemdum í vinnunni og meira en fjórðungur taldi sig örugglega eða líklega hafa orðið fyrir einelti.

Hver þarf að breytast?

Í rannsókninni lýstu konur því að þurfa að hafa sérstaklega fyrir því að sanna hæfni sína og festa sig í sessi á nýjum vinnustað. Um fjórar af hverjum tíu höfðu upplifað að faglegt mat þeirra væri hundsað. Þriðjungur hafði verið særður eða niðurlægður fyrir framan aðra. Við hvetjum konur til að velja sér iðnnám og bendum réttilega á fjölbreytt störf og góð tækifæri en tökum um leið á móti þeim með áreitni og fyrirlitningu.

Þegar þetta er reynsla svo margra dugar ekki að segja konum að vera ákveðnari, láta minna á sig fá eða læra að taka gríni. Slík ráð færa ábyrgðina yfir á þær sem verða fyrir hegðuninni. Konurnar eiga ekki að þurfa að herða sig. Vinnustaðamenningin þarf að breytast og þar berum við karlar, á öllum stigum samfélagsins, mikla ábyrgð. Í störfum innan iðn- og tæknigreina er mjög rík krafa um fagleg vinnubrögð, öryggi og ábyrgð. En fagmennskan verður einnig að ná til samskipta, öryggisbúnaður og vinnuaðstæður eiga einnig að taka tillit til mismunandi þarfa allra og ábyrgð nær að sjálfsögðu einnig til samábyrgðar allra á hegðun og framkomu. Stígum inn karlar, það er lítil reisn yfir vinnustað sem krefst nákvæmni í verki en lætur áreitni og niðurlægingu í garð samstarfsfólks viðgangast.

Sérstaklega alvarlegt er að konur lýstu í könnuninni ófullnægjandi viðbrögðum þegar þær leituðu aðstoðar. Mál voru ekki alltaf tekin alvarlega og mörg dæmi um að afgreiðslan hafi dregist úr hófi fram. Sá sem tilkynnir áreitni þarf að geta treyst á vandaða meðferð og raunveruleg viðbrögð.

Stjórnendur þurfa að stíga inn, þekkja stöðuna á sínum vinnustað og tryggja að starfsfólk viti hvert það getur leitað og hvernig málum verður fylgt eftir. Verklagsreglur sem enginn þekkir eða treystir eru gagnslausar.

Lítur þú undan eða stígur þú inn?

Samstarfsfólk ber líka ábyrgð. Sá sem verður vitni að niðurlægjandi hegðun getur sagt stopp. Sá sem hlær með eða lítur undan viðheldur ástandinu.

Við í stéttarfélögunum þurfum sömuleiðis að líta í eigin barm. RSÍ og VM áttu frumkvæði að því að ráðist var í rannsóknina vegna þess að konur innan okkar raða höfðu sagt frá reynslu sinni og kallað eftir viðbrögðum. Önnur félög innan samstarfs Fagfélaganna hafa svipaða sögu að segja. Okkar ábyrgð er að hlusta, veita stuðning og fylgja því eftir að niðurstöðurnar leiði til úrbóta. Niðurstöður rannsóknarinnar og vinnu hópa í okkar baklandi er nú lokið en um leið markar það upphaf breytinga en ekki endapunkt umræðunnar. Við ætlum ekki að líta undan. Við gerum okkur öll grein fyrir ábyrgðinni sem á okkur hvílir og viljum horfast í augu við það sem betur hefði mátt fara. Við ætlum okkur að stuðla að breytingum innan okkar atvinnugreina. Jafnrétti, jöfn virðing og jöfn tækifæri allra eru um leið okkur öllum til heilla.

Kvennafrídagurinn, 24. október, minnir okkur á að réttindi hafa áunnist vegna þess að fólk sætti sig ekki við ríkjandi aðstæður. Konur eiga frábærar fyrirmyndir og leiðtoga nú þegar í iðn- og tæknigreinum og þeim ber að þakka fyrir þeirra góða starf en þeirra getur ekki verið ábyrgðin á næstu skrefum. Þó að margt hafi breyst til batnaðar á seinustu árum þá erum við ekki komin nógu langt. Sofnum ekki á verðinum, því þá kemur bakslagið. Við eigum að geta hvatt ungar konur til að velja iðn- og tæknigreinarnar með góðri samvisku. Til þess þurfum við að tryggja þeim vinnuumhverfi sem stendur undir þeirri hvatningu. Karlar, sýnum ábyrgð og stígum inn.

Ég óska öllum til hamingju með kvennafrídaginn.

Höfundur er formaður Rafiðnaðarsambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×