Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar 23. október 2026 10:56 Þó lög um almannatryggingar skilgreini atvinnutekjur og lífeyrissjóðstekjur í orðskýringum laganna með vísan í annars vegar lög um tekjuskatt og hins vegar lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda ..., þá er ekki þar með sagt að vísan orðskýringanna sé skýr lagaheimild um að frítekjumark vegna atvinnutekna nái ekki til greiðslna úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar og endurgjald fyrir vinnu. Hið sérstaka frítekjumark vegna atvinnutekna er ívilnandi regla borgurunum til hagsbóta. Lífeyrisgreiðslur njóta verndar eignarréttarákvæðis stjórnarskrárinnar. Ef þær eru grundvöllur reiknireglu sem leiðir til skerðinga annarra tekna lífeyrisþega þá er eignarréttur lífeyrisþegans skertur. Til þess þarf skýra lagaheimild. Ef vafi leikur á um hvort tiltekið tilvik rúmist innan reglunnar ætti að leyfa borgurunum að njóta vafans og skýra regluna rúmt. Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum falla undir hugtakið atvinnutekjur skv. skilgreiningu umræddrar orðskýringar. Öflun lífeyrisréttinda er beintengd atvinnu manna og almennt er litið á það sem svo, að greiðslur vinnuveitanda í lífeyrissjóð launþega séu endurgjald fyrir vinnu. Greiðslur úr atvinnutengdum lífeyrissjóðum. Í orðskýringu almannatryggingalaganna á hugtakinu atvinnutekjur er augljóst að greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum teljast atvinnutekjur. Þannig að ef aðeins er horft til skilgreiningar laganna á atvinnutekjum ætti ekki að skerða ellilífeyri vegna greiðslna úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum fyrr en þær, ásamt öðrum atvinnutekjum ellilífeyrisþega fara yfir kr. 2.400.000- á ári. Hugtakið -Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum- er skilgreint í orðskýringum, sem greiðslur sem byggjast á iðgjaldi skv. lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Hvorugt orðasambandið kemur annars staðar fyrir í tengslum við frítekjumörkin. Sú skilgreining getur því ekki ein og sér talist skýr lagaheimild og heimilað gagnályktun á þá vegu að lífeyrissjóðstekjur teljist ekki í skilningi laganna til atvinnutekna. Hér er um að ræða þrengra hugtak, sem nær aðeins til ákveðinna atvinnutekna eins og t.d. eftirlaun frá fyrirtækjum og atvinnuleysisbætur, en samkvæmt núverandi lagatúlkun stjórnvalda teljast þau endurgjöld til atvinnutekna. Aðgreining frá öðrum atvinnutekjum. Vel getur hugsast að í ákveðnum tilvikum þurfi að fjalla sérstaklega um lífeyrissjóðstekjur og að hugtakið myndi þá nýtast til að aðgreina þær tekjur frá öðrum atvinnutekjum. Þegar hins vegar fjallað er um atvinnutekjur verður að gera ráð fyrir því að verið sé að ræða um breiðara hugtak, sem nái um bæði lífeyrissjóðstekjur og aðrar tekjur sem falla undir orðskýringu laga um tekjuskatt. Þröng túlkun frítekjumarks. Það ætti ekki að túlka regluna um sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna þrengra en skilgreining laganna á atvinnutekjum gefur svigrúm til. Veigamiklar ástæður þarf til að réttlæta svo mikið frávik frá þeirri grundvallarreglu að lög beri að túlka skv. orðanna hljóðan. Það á að leyfa borgurunum að njóta vafans. Greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum rúmast innan skilgreiningar laganna á atvinnutekjum. Því er ekki hægt að réttlæta þrengri merkingu á hugtakinu atvinnutekjur en leiðir af orðanna hljóðan með þeim rökstuðningi að lögin skilgreina einnig greiðslur úr skyldubundnum atvinnutengdum lífeyrissjóðum án þess þó að það hugtak sé notað í lögunum frekar. Skemmri skírn lagaheimildar. Ofangreint er ályktun frá lögskýranda, er ég hváði um óskýra (jafnvel ólöglega) heimild stjórnvalda við túlkun á atvinnutekjum og útreikning ellilífeyris. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun