Skoðun

Kröfurnar standa enn

Georg Páll Skúlason skrifar

Í tilefni kvennafrídagsins 24. október 2026

Á síðasta ári, þegar hálf öld var liðin frá sögulegum kvennafrídegi árið 1975, sameinuðust hátt í sextíu samtök um skýrar kröfur til stjórnvalda og samfélagsins alls á Kvennaárinu 2025. Kröfurnar sneru að þremur grundvallarmálum: að útrýma launamisrétti kynjanna, jafna skiptingu ólaunaðrar vinnu og umönnunarábyrgðar og uppræta kynbundið ofbeldi.

Þetta voru ekki nýjar kröfur. Konur hafa barist fyrir þeim áratugum saman. Þegar konur og kvár lögðu niður launuð og ólaunuð störf á kvennafrídaginn í fyrra minntu þau á að þrátt fyrir mikilvæga sigra hefur þessum kröfum enn ekki verið mætt.

Jafnréttisbaráttan verður að ná til allra kvenna

Á Kvennaárinu lagði Alþýðusamband Íslands sérstaka áherslu á stöðu kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði. Á málþinginu Nútímakvennabarátta, sem ASÍ stóð að á kvennafrídaginn í fyrra, var fjallað um hvernig kyn, uppruni og stéttarstaða fléttast saman og hafa áhrif á lífskjör þeirra og tækifæri.

Fjallað var um stöðu kvenna í láglaunastörfum og vanmat á hefðbundnum kvennastörfum, viðurkenningu á menntun og starfsreynslu ásamt aðgengi að íslenskukennslu og loks sameiginlega ábyrgð samfélagsins á raunverulegri inngildingu og jafnrétti.

Þetta eru málefni sem við í verkalýðshreyfingunni þekkjum vel og verðum að láta okkur varða. Konur af erlendum uppruna gegna mikilvægu hlutverki í íslensku atvinnulífi. Margar þeirra starfa við umönnun, ræstingar og þjónustu, störf sem samfélagið getur ekki verið án en eru alltof oft vanmetin. Þær geta jafnframt staðið frammi fyrir sérstökum hindrunum þegar kemur að starfsþróun, viðurkenningu á menntun og möguleikum til að sækja rétt sinn.

Við megum ekki sætta okkur við að menntun og starfsreynsla sem fólk hefur aflað sér erlendis séu vanmetnar. Við verðum líka að tryggja raunhæf tækifæri til íslenskunáms samhliða vinnu. Skortur á íslenskukunnáttu má ekki verða til þess að fólk sitji fast í láglaunastörfum án möguleika á framgangi.

Málþingið var áminning um að konur búa ekki allar við sömu aðstæður og jafnréttisbaráttan verður að taka mið af því. Við getum ekki talað um raunverulegt jafnrétti ef stór hópur kvenna situr eftir.

Umönnunarbilið er jafnréttismál

Ein af meginkröfum Kvennaársins var að jafna skiptingu ólaunaðrar vinnu og umönnunarábyrgðar. Í lok ársins lágu fyrir tillögur aðgerðahóps með þátttöku ASÍ og annarra aðila vinnumarkaðarins, ríkis og sveitarfélaga, um mikilvægt skref í þá átt, að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.

Þetta bil getur þýtt margra mánaða óvissu fyrir vinnandi foreldra sem þurfa að brúa það með tilheyrandi kostnaði eða tekjumissi. Konur axla enn meginábyrgð á umönnun barna og eru líklegri til að minnka við sig vinnu eða hverfa tímabundið af vinnumarkaði til að brúa bilið. Það skerðir ekki aðeins tekjur þeirra og sjálfstæði heldur getur einnig haft áhrif á framgang þeirra á vinnumarkaði og réttindasöfnun til framtíðar. Umönnunarbilið viðheldur þannig ójöfnuði kynjanna.

Tillögur hópsins fela í sér að lögfesta í áföngum rétt barna til leikskóladvalar að loknu fæðingarorlofi og styrkja leikskólastigið svo það geti staðið undir því hlutverki. Nú, tíu mánuðum síðar, kemur fram í skýrslu forsætisráðherra að enn hafi ekki verið tekin ákvörðun um næstu skref. Það er óásættanlegt að láta barnafjölskyldur áfram bera kostnaðinn af því að kerfin ná ekki saman.

Krafa um jafnari skiptingu umönnunarábyrgðar verður að haldast í hendur við opinbera þjónustu sem gerir foreldrum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Þannig fylgjum við kröfum Kvennaársins eftir í verki.

Öruggt starfsumhverfi er ein forsenda jafnréttis

Konur mæta enn áreitni og vanvirðingu á vinnustað vegna kyns síns. Það sýnir ný rannsókn Vörðu á stöðu kvenna í karllægum starfsgreinum innan Rafiðnaðarsambands Íslands og VM – Félags vélstjóra og málmtæknimanna.

Niðurstöðurnar eru sláandi. Af þeim 222 konum sem svöruðu könnuninni hafði rúmlega helmingur, eða 51%, orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnu eða á vinnutengdum viðburðum. Um tveir þriðju höfðu upplifað neikvæð atvik eða athugasemdir í vinnu og 39% höfðu upplifað að faglegt mat þeirra væri hunsað.

Það er ekki nóg að hvetja konur til að velja sér nám og störf í hefðbundnum karlagreinum ef starfsumhverfið tekur ekki á móti þeim af sömu virðingu og körlum. Konur eiga ekki að þurfa að sanna hæfni sína ítrekað, þola niðrandi framkomu eða sætta sig við áreitni til þess eins að fá að sinna störfum sínum.

Við þurfum að taka þessar niðurstöður alvarlega. Ég kem sjálfur úr prentiðnaðinum og hef meðal annars starfað sem formaður Grafíu. Ég þekki því starfsumhverfi þar sem karlar hafa lengi verið í meirihluta og haft mikil áhrif á vinnustaðamenninguna. Við karlar berum ábyrgð á að horfa gagnrýnum augum á eigin viðhorf og hegðun og bregðast við. Niðurstöður rannsóknarinnar á stöðu kvenna í karllægum starfsgreinum minna okkur á að það er ekki nóg að segjast styðja jafnrétti. Við þurfum að sýna það í verki.

Frá orðum til athafna

Jafnréttisbaráttan er órjúfanlegur hluti af kjarabaráttu verkalýðshreyfingarinnar. Hún snýst um að störf kvenna séu metin að verðleikum, að allt launafólk búi við öruggt starfsumhverfi og að umönnunarábyrgð skerði ekki tækifæri fólks til atvinnuþátttöku og fjárhagslegs sjálfstæðis.

Við verðum jafnframt að horfa inn á við. Jafnrétti þarf að endurspeglast í okkar eigin starfsháttum, þátttöku kvenna í ákvarðanatöku og þeim verkefnum sem við setjum í forgang.

Þar skiptir sérstaklega máli að verkalýðshreyfingin nái betur til kvenna af erlendum uppruna og skapi þeim raunveruleg tækifæri til þátttöku og áhrifa innan hreyfingarinnar.

Sem nýkjörinn forseti ASÍ vil ég beita mér fyrir því að þessum málum sé fylgt eftir af festu, bæði í okkar eigin starfi og gagnvart stjórnvöldum og atvinnurekendum. Kröfur Kvennaársins eiga enn fullt erindi. Verkefni okkar er að fylgja þeim eftir þar til árangurinn skilar sér í kjörum, öryggi og tækifærum kvenna.

Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×