Sport

Úrvalsdeildin í pílu hefst á morgun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Úrvalsdeildin í pílu verður vinsælli með hverju árinu.
Úrvalsdeildin í pílu verður vinsælli með hverju árinu. vísir/hulda margrét

Eftir rúmlega ellefu mánaða bið er komið að því. Íslenska píluveislan er að hefjast á Bullseye.

Úrvalsdeildin hefur verið spiluð síðan 2014 og er þetta einn sterkasti hópurinn sem hefur tekið þátt í deildinni. Til að mynda þá eru þrír yngstu keppendur Ping Pong Úrvalsdeildarinnar 14, 15 og 16 ára. Framtíð íslensks pílukasts er sannarlega björt. Spennan hefur verið að magnast upp meðal íslenskra pílukastara og er víst að metmæting verði á úrvalsdeildina í ár.

Ping Pong Úrvalsdeildin er spiluð á sjö laugardagskvöldum í beinni útsendingu á SÝN. Fyrsta kvöldið er á morgun, 24. október, og er haldið á Bullseye.

Annað kvöldið verður síðan haldið á Hótel Selfossi. Í kjölfarið á Selfoss Open, 31. október. Síðan aftur á Bullseye 7. nóvember fyrir kvöld þrjú. Fjórða og síðasta kvöld riðlakeppninnar er síðan í Kvikunni í Grindavík 14. nóvember.

Átta manna úrslitin verða 21. nóvember, undanúrslitin síðan 28. nóvember og úrslitakvöldið verður 5. desember. Öll síðustu þrjú kvöldin verða á Bullseye.

Það vantar aldrei neitt upp á stuðið á pílukvöldunum.vísir/hulda margrét

Í fyrsta leik kvöldsins á morgun er á milli ríkjandi Íslandsmeistara Harðar Guðjónssonar og Halla Egils, sem er fjórfaldur úrvalsdeildarmeistari, og eigandi hæsta meðaltals sem náðst hefur í leik í íslensku sjónvarpi.

Í þessum leik má búast við mikilli spennu og er ógjörningur að spá fyrir hvor sigrar þennan leik.

Í öðrum leik kvöldsins mætast þeir Vitor Charrua, þrefaldur úrvalsdeildarmeistari, og ungstirnið Kári Vagn Birkisson sem er núverandi íslandsmeistari U18. Kári Vagn komst í Ping Pong Úrvalsdeildina með því að vinna undankeppni á Akureyri í september.

Hérna mætast reynslan og framtíðin. Ljóst er að Vitor þarf að hafa sig allan við ef hann ætlar sér að vinna fjórða Úrvalsdeildartitilinn.

Þriðji leikurinn býður upp á mikla skemmtun. Þar mætast, annað ungstirni og yngsti keppandi deildarinnar, Axel James Wright 14 ára, og Arngrímur Anton (Toni) Ólafsson. En Toni og Pétur Rúðrik Guðmundsson voru fyrstir til að sigra leik á PDC sviði, í World Cup of Darts 2024. Þetta verður jafn og fjörugur leikur.

Fjórði leikurinn verður síðan Árni Ágúst á móti Fidda, Friðriki Jakobssyni. Þarna mætast stálin stinn. Friðrik er elsti keppandi kvöldsins. Hann hefur unnið til gullverðlauna í tvímenningi á Norðurlandamótinu í pílukasti, með Guðjóni Haukssyni.

Árni er þekktur fyrir að fögnin sín á sviði á meðan Friðrik er eins og ískalt stál og gefur bara í þegar hann lendir í pressu. Í þessum leik getur allt gerst. Járni og Stálið hafa báðir þann styrkleika að komast alla leið í deildinni.

Í undanúrslitum mætast fyrst sigurvegari í fyrsta leik kvöldsins og sigurvegari þriðja leiksins. Síðan eru það sigurvegarar annars leiksins og sigurvegari fjórða leiksins sem keppa um að komast í úrslitaleikinn.

Það verður spilað best af sjö leggjum, sá sem er fyrri til að vinna fjóra leggi vinnur leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×