Fótbolti

Emelía skoraði tvennu í mikil­vægum sigri

Andri Broddason skrifar
Emelía átti stórleik í dag.
Emelía átti stórleik í dag. Mynd/HB Köge

Emelía Óskarsdóttir skoraði tvennu þegar HB Køge fór í heimsókn til Kolding IF í dönsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta. Leikurinn endaði með 3-2 sigri gestanna og er liðið enn í toppsæti deildarinnar.

Emelía var í byrjunarliðinu í dag og var ekki lengi að setja svip sinn á leikinn. Hún skoraði strax á fyrstu mínútu leiksins en gestirnir voru ekki lengi að svara og jöfnuðu metin þrem mínútum síðar.

Hálftíma síðar náði Emelía að skora sitt annað mark og var HB Køge með forystuna í hálfleik. Í seinni hálfleik náði Sarah Thygesen að koma gestunum í 3-1 en stuttu síðar náði Kolding að minnka muninn aftur.

Kolding náði ekki að jafna metin og náði HB Køge að vinna loksins eftir að hafa gert jafntefli í síðustu tveimur leikjum deildarinnar. Liðið er með fjögurra stiga forskot á Nordsjælland sem er í öðru sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×