Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Kristján Már Unnarsson skrifar 24. október 2026 21:55 Sverrir Möller, bóndi á Ytra-Lóni: „Það er allt svo jákvætt og gott við blóðmerahaldið.“ Egill Aðalsteinsson Sverrir Möller, bóndi á Ytra-Lóni á Langanesi, segir umræðu um blóðmerahald mjög ósanngjarna og einkennast af rangfærslum. Hann segist vera stoltur blóðmerabóndi, nánast engin vanhöld séu og fullyrðir að skepnunum líði ákaflega vel.
Þau Sverrir Möller og Mirjam Blekkenhorst fluttu á Langanes árið 1991. Þar reka þau ferðaþjónustu, stunda sauðfjárrækt og hrossabúskap með fleiru. Ein yndislegasta og skemmtilegasta búgreinin „Við byrjuðum fyrir fjórum árum í blóðmerarhaldi. Og þetta er bara ein yndislegasta og skemmtilegasta búgrein sem við höfum stundað,“ segir Sverrir, sem er búfræðingur að mennt, en hér í sjónvarpfrétt Sýnar lýsir hann sinni hlið á þessari umdeildu atvinnugrein: „Það er allt svo jákvætt og gott við blóðmerahaldið. Maður fær eiginlega allt aðra sýn á hross. Nú hef ég verið að temja hross eiginlega síðan ég var fjórtán ára gamall og þetta er allt önnur sýn. Það er svo gaman að umgangast þessar merar og þær eru svo gefandi.“ -Erum við þá að fá ranga mynd af blóðmerahaldi í fréttunum? „Já, ég þekki það ekki allavega eins og fréttaflutningurinn er af því. Nei, þekki það ekki þannig.“ Rangfærslur um blóðmerahald -En finnst þér hann ósanngjarn? „Gríðarlega, gríðarlega ósanngjarn. Maður hugsar bara: Já, þeir eru að taka þetta fyrir núna. Hvað gera þeir næst? Voru þeir ekki að hamra á svínabændum? Er ekki búið að sleppa minkunum lausum? Kjúklingabúin? Hver er næstur? Sauðféð? Við höfum nú alltaf þurft að vera í vörn gagnvart því. Já. Þannig að auðvitað finnst manni þetta vera ósanngjarnt.“ Séð yfir bæjahúsin á Ytra-Lóni á Langanesi.Egill Aðalsteinsson Sverrir segist vera bóndi á grasnytjajörð. Hann sé fyrst og fremst skepnumaður. „Og ég væri ekki á þessari jörð nema þetta væri grasnytjajörð og þess eðlis að geta borið skepnur.“ -Þannig að þú ert stoltur blóðmerabóndi? „Já, mjög. Og vona bara að þessi búgrein komi til með að lifa áfram. En maður veit aldrei neitt.“ Hryssur og folöld á Ytra-Lóni.Egill Aðalsteinsson -Meginrök þeirra sem eru á móti blóðmerarhaldi, finnst þér þau ekki halda? „Nei, það hafa aldrei verið nein rök. Það hafa verið þessar rangfærslur sem hefur verið haldið fram um þetta. Það er alltaf verið að reyna að manngera skepnur og bera saman mann og mús. Það gengur ekkert.“ Miklar gjaldeyristekjur -Þannig að þú ætlar stoltur áfram að vera í blóðmerahaldi? „Já, svo sannarlega. Meðan við fáum greitt fyrir þetta og meðan verðið er ásættanlegt. Þetta er búgrein sem nýtur einskis ríkisstuðnings. Af hverju er verið að reyna að hamra hana niður? Þetta er búgrein sem er að gefa okkur, ef mig minnir rétt, yfir tvo milljarða í gjaldeyristekjur. Meira heldur en öll önnur hrossarækt í landinu. Af hverju er verið að reyna að berja þetta niður? Þetta eru heilbrigðustu skepnur sem ég þekki.“ Sauðfé á Langanesi. Fjær til hægri sést til bæjarhúsanna á Ytra-Lóni.Egill Aðalsteinsson „Ég er nú búinn að vera í sauðfjárrækt og þar við erum að missa fimm til fimmtán prósent af fénu hvert einasta ár. En í þessi fjögur ár er ég búinn að missa tvö folöld og enga meri.“ Það leiðinlegasta sem bóndi upplifir er að skepnu líði illa -Er ósanngjarnt og rangt að kalla þetta dýraníð? „Já, svo sannarlega. Vegna þess að þessum skepnum líður alveg ákaflega vel. Þeim líður alveg gríðarlega vel. Og það er þess vegna sem maður er svona ánægður í þessu af því maður finnur hvað þeim líður vel. Það leiðinlegasta sem bóndi upplifir er að einhver skepna sé veik eða líði illa. Í þessari búgrein, þá bara lifir allt. Því líður öllu vel, lifir lengi og vel, og engin vanhöld nánast sem talandi er um,“ segir Sverrir Möller, bóndi á Ytra-Lóni.
Blóðmerahald Landbúnaður Dýr Dýraheilbrigði Hestar Langanesbyggð Tengdar fréttir Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum EFTA-dómstóllinn hefur sent Héraðsdómi Suðurlands ráð um að túlka skuli blóðtöku úr fylfullum hryssum sem tilraun á dýrum. Blóðtakan falli því undir Evróputilskipun en á grundvelli hennar var fyrirtæki neitað um leyfi til blóðmerahalds. 16. september 2026 13:15 Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, DÍS, segir niðurstöðu umboðsmanns Alþingis um blóðmerahald mikil vonbrigði. Með því að gera ekki neinar athugasemdir við eftirlit Matvælastofnunar, MAST, sé ill meðferð á dýrum metin refsilaus. 17. mars 2026 13:25 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Blóðtaka úr hryssum telst tilraun á dýrum EFTA-dómstóllinn hefur sent Héraðsdómi Suðurlands ráð um að túlka skuli blóðtöku úr fylfullum hryssum sem tilraun á dýrum. Blóðtakan falli því undir Evróputilskipun en á grundvelli hennar var fyrirtæki neitað um leyfi til blóðmerahalds. 16. september 2026 13:15
Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Linda Karen Gunnarsdóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands, DÍS, segir niðurstöðu umboðsmanns Alþingis um blóðmerahald mikil vonbrigði. Með því að gera ekki neinar athugasemdir við eftirlit Matvælastofnunar, MAST, sé ill meðferð á dýrum metin refsilaus. 17. mars 2026 13:25