Íslenski boltinn

„Ó­víst hvar Stefan Ljubicic mun spila“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, gengur sáttur frá borði eftir leikinn við ÍA í lokaumferð Bestu-deildar karla í fótbolta í dag sem og tímabilið i heild sinni. 

„Leikurinn bar þess keim að þetta væri síðasti leikur tímabilsins og ekki mikið í húfi annað en þrjú stig og stolt. Við spiluðum heilt yfir bara vel og skorum fjögur góð mörk,“ sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir leik.

„Við erum vissulega súrir með að ná ekki að fara með sigur af hólmi eftir að hafa komist í 4-3 en göngum hins vegar þokkalega sáttir frá borði. Við erum að skilja við tímabil þar sem við endum í topp sex eftir að flestir spáðu öllu falli fyrir sumarið,“ sagði Haraldur Freyr þar að auki.

Rætt og ritað hefur verið um framtíð Stefáns Alexaner Ljubicic sem raðaði inn mörkum fyrir Keflavík í sumar. Haraldur Freyr segir óvíst hvað verði um Stefán Alexander í framhaldinu.

„Þegar það varð ljóst að við myndum lenda í efri helmingnum fórum við að búa okkur undir næsta tímabil og það er vinna hafin bakvið tjöldin í leikmannamálum. Það er óvíst hvað verður um Stefán og svo erum við með leikmenn í sigtinu sem ég get ekki sagt hvar stendur á þessum tímapunkti,“ sagði Haraldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×