Innlent

Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra Anton Brink

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segist vera með til skoðunar að breyta fyrirhuguðum breytingum á afsláttarkerfi Loftbrúarinnar og hækka afsláttinn á hvern fluglegg um tvö þúsund krónur. 

„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við fréttastofu en Rúv greindi fyrst frá.

Núna veitir Loftbrúin þeim með lögheimili utan stórhöfuðborgarsvæðisins fjörutíu prósenta afslátt af sex flugleggjum á ári. Ráðuneytið tilkynnti fyrir helgi að til stæði að ráðast í breytingar á kerfinu og miða frekar við fasta krónutölu upp á sjö þúsund krónur í staðinn.

Þetta hlaut töluverða gagnrýni frá fjölda manns, þar á meðal þingmönnum Viðreisnar en Viðreisn og Flokkur fólksins mynda saman ríkisstjórn auk Samfylkingarinnar. Þá hefur Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, einnig gagnrýnt breytingarnar.

Eyjólfur segir að þessi hækkun, úr sjö í nú þúsund, nemi tvö hundruð milljónum króna og bætist við þær fjárveitingar sem Loftbrúin fékk í fjármálafrumvarpi fjármálaráðherra fyrir árið 2027. 

„Við erum svo sannarlega að forgangsraða Loftbrúnni og hún hefur aldrei verið jafn fjármögnuð,“ segir Eyjólfur.

Sjá nánar: Föst krónutala í stað hlutfalls

Breytingin á að taka gildi þann 1. janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×