Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Áróra L Davíðsdóttir skrifar 26. október 2026 19:59 Einn biskupanna segir myndefni frá fundi tólf biskupa og Bandaríkjaforseta hafa verið birt í óþökk viðstaddra. Skjáskot/X Tveir kaþólskir biskupar harma heimsókn sína í Hvíta húsið til Bandaríkjaforseta eftir að myndband af bænastund þeirra fór í dreifingu. Heimsóknin hafi ekki verið til stuðnings forsetanum né hans stefnu og saka þeir stjórn hans um að nýta sér heimsóknina í pólitískum tilgangi í aðdraganda þingkosninga.
Aðstoðarkona Donalds Trump Bandaríkjaforseta og ráðgjafi hans í samskiptum birtu myndband af tólf biskupum í bænastund með forsetanum er þeir sóttu hann heim í Hvíta húsið á fimmtudaginn síðastliðinn. Catholic Archbishops and Bishops pray with President Trump in the Oval Office ❤️ https://t.co/facV5wTGQQ— Margo Martin (@MargoMartin47) October 22, 2026 Jeffrey Grob, erkibiskup í Milwaukee, birti opinbera afsökunarbeiðni og sagði að stjórn Trumps hefði opinberað fundinn án vitneskju og samþykkis þeirra sem voru viðstaddir. Fljótlega hafi honum farið að berast skilaboð um að hann hefði, óaðvitandi, tekið þátt í pólitískum viðburði innan við tveimur vikum fyrir þingkosningar en þær fara fram þann 3. nóvember næstkomandi. Að auki hafi hann fengið skilaboð frá fólki sem sárnaði vegna þess skaða sem það eða fjölskyldur þess hafi orðið fyrir vegna stefnu Trumps. Fundurinn hafi engan veginn falið í sér stuðning við forsetann, stefnu hans eða flokk. Honum, ásamt ellefu öðrum biskupum, hafi verið boðið í Hvíta húsið til að ræða málefni kirkjunnar. Stirt samband hefur verið milli Leós fjórtánda páfa og Bandaríkjaforseta. Meðal annars hefur Trump eignað sér heiðurinn af páfakjöri Leós. Sjá einnig: Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump og Trump hjólar í páfa Biskuparnir hafi ekki komið saman til þess að stilla sér upp fyrir pólitíska myndatöku í þágu fárra heldur til að biðja með forseta og efla almannaheill. „Ég bið ykkur að vita að ég hef heyrt þessar áhyggjur, skil hvernig ég olli þeim og bið afsökunar á hverjum þeim skaða sem gjörðir mínar hafa valdið.“ Biskupinn William Joensen, einn þeirra tólf biskupanna, birti einnig opinbera færslu og sakaði Hvíta húsið um að nýta sér fund þeirra í pólitískum tilgangi. „Öllum okkur biskupunum var ljóst að fundur okkar var haldinn í aðdraganda þingkosninga. Samt ætlaði enginn okkar sér á nokkurn hátt með þátttöku sinni að lýsa yfir stuðningi við nokkurn stjórnmálaflokk eða nokkurn einstakan frambjóðanda,“ skrifar Joensen.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Trúmál Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Þjóð á krossgötum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira