„Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Árni Sæberg skrifar 27. október 2026 11:02 Ari Edwald er oddviti Miðflokksins í borginni. Vísir/Lýður Valberg Oddviti Miðflokksins í borginni segir alltaf erfitt að segja upp fólki en að Miðflokkurinn styðji nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir í rekstri borgarinnar. Hann kveðst bundinn trúnaði um efni aukaborgarstjórnarfundar í morgun en heimildir Vísis herma að þar hafi verið ræddar uppsagnir tuga borgarstarfsmanna.
Aukafundi borgarstjórnar, þar sem hagræðingaraðgerðir voru til umræðu, lauk um tíuleytið í morgun. Niðurskurðurinn nær til allra sviða borgarinnar fyrir utan skóla- og frístundasviðs og velferðasviðs sem urðu fyrir hnífnum í sumar. Erfiðlega hefur gengið að fá svör frá borgarstjórnarfulltrúum vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu munu fulltrúar meiri hlutans ekki veita viðtöl um málið fyrr en að loknum aðgerðum sem standa munu yfir í dag. Reksturinn hafi ekki verið sjálfbær Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, ræddi stuttlega við fréttamenn að loknum fundi borgarstjórnar. Hann kvaðst ekki mega greina frá því sem kom fram á fundinum en sagði þó að Miðflokkurinn styddi hagræðingar í rekstri borgarinnar. „Enda hefur rekstur borgarinnar ekki verið sjálfbær og verið haldið uppi með einskiptisaðgerðum, eins og sölu lóða á okurverði og slíkt, sem getur ekki staðið undir almennum rekstri borgarinnar. Hann þarf að vera bara í jafnvægi.“ Þannig að þú ert að staðfesta að þið voruð að ræða uppsagnir? „Ég er ekki að staðfesta neitt í neinum smáatriðum en það er auðvitað ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar, þessi fundur.“ Uppsagnir í áföngum Ari sagði að það væri alltaf erfitt að skera niður og þar vægjust á uppsagnir og önnur rekstrarleg viðfangsefni. Það væri þó nauðsynlegt verkefni og stjórnendur gætu ekki vikið sér undan því. Miðflokkurinn væri ekki hluti af meiri hlutanum en hefði hvatt til þess að tekið væri af ábyrgð á rekstri borgarinnar. Er þetta stærri hagræðing en við höfum séð hingað til? „Eins og ég segi, það má ég ekkert tjá mig um efnið en það verður skýrt frá því síðar í dag, þannig að það er ekki lengi að bíða.“ Eru öll svið borgarinnar undir? „Eins og þú veist þá er lokið hagræðingaraðgerðum á nokkrum sviðum. Það var byrjað á skrifstofu borgarstjóra, borgarritara og svo skóla- og frístundasviði og velferðarsviði. Þannig að það er ekki allt undir í einu lagi, þetta hefur verið í áföngum.“
Borgarstjórn Reykjavík Miðflokkurinn Rekstur hins opinbera Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Sjá meira