Skoðun

Þing­maðurinn sem ruglaði saman gagn­rýni og and­stöðu

Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar

Ég vil byrja á að þakka þingmanninum fyrir að fylgjast jafn vel með skrifum mínum um menntamál og raun ber vitni. Það er ánægjulegt að hann skuli rifja upp ýmis mál sem ég hef lagt áherslu á í gegnum tíðina og benda á að menntamálaráðherra sé að hrinda mörgum þeirra í framkvæmd. Fyrir það má auðvitað þakka ráðherranum. Ég hef stutt góðar hugmyndir í menntamálum og mun halda því áfram, óháð því hver situr í ráðherrastóli. Mér hafði reyndar ekki dottið í hug að stuðningur við umbætur fæli jafnframt í sér skyldu til að samþykkja allar ákvarðanir ráðherra.

Þegar sjálfstæð skoðun veldur vonbrigðum

Það er hins vegar athyglisvert að þingmaðurinn byrjar á að hrósa mér fyrir umbótatillögur en lýkur greininni á að efast um vilja minn til umbóta. Sú mótsögn segir líklega meira um málflutning hans en afstöðu mína. Helsta tilefni skrifanna virðast enda vera persónuleg vonbrigði hans með mig fremur en efnislegur ágreiningur um menntamál.

Auðveldara að gera upp skoðanir en að lesa þær

Það þarf talsvert hugmyndaflug til að túlka vangaveltur um umbætur sem andstöðu við breytingar. Í skrifum mínum hef ég kallað eftir raunverulegri endurskoðun á kennsluháttum, auknum gæðum skólastarfs og markvissum aðgerðum til að bæta námsárangur. Þar hef ég ekki síst lagt áherslu á að stjórnvöld horfist í augu við það sem rannsóknir og niðurstöður segja okkur um stöðu menntakerfisins. Þingmaðurinn hefði því haft af nægu efni að taka hefði hann kynnt sér þessa umfjöllun. Það er vissulega einfaldara að eigna öðrum skoðanir en að kynna sér þær. En af þingmanni má gera meiri kröfur. Þessi Trumpismi þingmannsins lýsir vanþekkingu hans.

Þegar framkvæmdin er afgreidd sem aukaatriði

Þingmaðurinn telur mig gera aukaatriði að aðalatriðum. Þar erum við ósammála. Þegar stjórnvöld boða breytingar sem skólar eiga að innleiða skiptir faglegur undirbúningur, skýrar leiðbeiningar og samráð verulegu máli. Það er auðvelt að tilkynna breytingar en ábyrgðin felst í að tryggja að þær skili árangri í skólastarfi.

Nýtt námsmat eða ný tákn fyrir sömu einkunnir?

Þá fullyrðir þingmaðurinn að unnið sé að nýju námsmati. Hér þarf að halda hugtökum til haga. Breyting á einkunnakvarða er ekki það sama og nýtt námsmat. Ég hef lengi kallað eftir skýrara, réttlátara og samræmdara námsmati. Sú afstaða hefur ekkert breyst. Ég geri hins vegar kröfu um að breytingarnar séu faglega undirbúnar og framkvæmdin skýr. Það væri ágæt byrjun á umræðu um námsmat að þingmaðurinn gerði greinarmun á námsmati og einkunnakvarða.

Læra börn betur að lesa með tölustöfum?

Þingmaðurinn bendir einnig á slaka stöðu drengja í lesskilningi. Það er alvarlegt mál sem kallar á markvissar aðgerðir. En hvernig á breyting úr bókstöfum í tölustafi að bæta lesskilning barna? Hvaða fagleg rök eða rannsóknir styðja þá tengingu? Ef lausnin á slökum lesskilningi væri fólgin í því að skipta um tákn á einkunnablaði væri vandinn sannarlega auðleystur. Ég hefði mun meiri áhuga á að heyra svör þingmannsins við þeim spurningum en að lesa vangaveltur hans um persónu mína.

Vonbrigði þingmanns eru ekki verkefni skólanna

Ég hef gagnrýnt það sem betur má fara í menntakerfinu óháð því hvaða stjórnmálaflokkur fer með völdin. Ég ætlast til þess að fólk kynni sér málin áður en það fullyrðir um þau og spyrji frekar en að gera öðrum upp skoðanir eins og þingmaðurinn gerir af áhugaverðum hroka við óbreyttan kennara og skólastjórnanda norður í landi. Ég biðst undan slíkum vinnubrögðum. Aftur, það er heldur þægileg leið í rökræðu að ákveða fyrst hvað öðrum finnst og gagnrýna þá síðan fyrir það.

Þegar persónuleg gagnrýni kemur í stað málefnalegrar umræðu

Ég ber enn virðingu fyrir þingmanninum og því mikilvæga embætti sem hann gegnir sem formaður fjárlaganefndar Alþingis. Hann hefur hins vegar ekki reynslu af daglegu skólastarfi og sýnir takmarkaðan vilja til að kynna sér málin. Það útilokar hann auðvitað ekki frá umræðu um menntamál en ætti að hvetja til þess að hlusti á þau sem þekkja starfsemina af eigin raun. Þegar formaður fjárlaganefndar kýs að draga faglegan trúverðugleika minn sem skólamanns í efa fremur en að svara efnislegri gagnrýni minni tel ég það honum til minnkunar. Með því beinir hann athyglinni frá þeim mikilvægu verkefnum sem bíða íslensks menntakerfis. Ég hefði vænst þess að þingmaður í jafn ábyrgðarmikilli stöðu legði fremur sitt af mörkum til málefnalegrar umræðu um lausnir og umbætur í þágu barnanna.

Ég þakka þingmanninum enn og aftur fyrir lesturinn. Þó ljóst sé að hann virðist fátt hafa lesið um aðkomu mína að menntamálum annað en fagleg gagnrýni á framgöngu menntamálaráðherra þessi misserin. Vonbrigði þingmannsins með mig eru honum sjálfsagt hugleikin en þau leysa engan vanda í íslensku menntakerfi. Ég legg til að hann beini næstu grein að menntun barnanna. Þar er ærinn efniviður og mun meiri þörf fyrir svör en skoðanir á mér.

Höfundur er kennari og skólastjórnandi.




Skoðun

Sjá meira


×