Sport

Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tíma­mótum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jökull Elísabetarson gæti verið á leið til Blika.
Jökull Elísabetarson gæti verið á leið til Blika. vísir/arnar

Þjálfarakapallinn í Bestu deild karla galopnaðist í morgun er Blikarnir tilkynntu að þeir hefðu látið Ólaf Inga Skúlason fara frá félaginu.

Besta sætið fór yfir stöðuna en Jökull Elísabetarson, fyrrum þjálfari Stjörnunnar, er sterklega orðaður við starfið í Kópavoginum.

Eiður Smári Guðjohnsen er einnig í umræðunni en ekki þykir líklegt að hann verði áfram með KA-mönnum í Lengjudeildinni.

Blikar standa á ákveðnum tímamótum. Reynslboltar eru að kveðja félagið og svo er Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði orðaður við brottför á Hlíðarenda. Nýr þjálfari þarf því að byggja upp nýtt lið hjá Blikum.

Rúnar Páll Sigmundsson er mættur til starfa hjá Stjörnunni á nýjan leik og Viktor Bjarki Arnarsson er nýr yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu. Má búast við talsverðum breytingum innan sem utan vallar þar.

Heimurinn allur átti von á því að Michael Carrick yrði rekinn frá Man. Utd í gær en ekkert varð af því. Hann mun stýra liðinu um næstu helgi en ólíklegt er að hann lifi af mikið lengur sem þjálfari félagsins.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×