Guðný Helga tekur við af Haraldi Freyja Þórisdóttir skrifar 27. október 2026 19:30 Haraldur Þórðarson, fráfarandi forstjóri Skaga, og Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS. Vísir/Skagi Stjórn Skaga hefur samið við Harald I. Þórðarson, forstjóra félagsins, um starfslok en hann mun áfram gegna stjórnarstörfum innan samstæðunnar. Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS trygginga, verður æðsti stjórnandi samstæðunnar og mun leiða hana frá og með deginum í dag, samhliða því að stýra áfram VÍS tryggingum.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í Kauphallartilkynningu en þar segir einnig að stjórn Skaga, móðurfélags VÍS, Fossa fjárfestingarbanka og Íslenskra verðbréfa, hafi samþykkt að breyta skipulagi á samstæðu félagsins og er stefnt að því að færa starfsemi Skaga til Vátryggingafélags Íslands, VÍS trygginga. Mikla trú Þá sé gert ráð fyrir að önnur félög samstæðunnar færist undir VÍS tryggingar með þeim hætti að Fossar verði dótturfélag VÍS og ÍV verði dótturfélag Fossa. Stjórnin hafi þegar hafið undirbúning að breyttu skipulagi sem komi til framkvæmda á komandi mánuðum með hefðbundnum fyrirvörum um samþykki hluthafa og eftirlitsaðila. Sem fyrr segir lætur Haraldur I. Þórðarson af störfum sem forstjóri félagsins en haft er eftir honum í tilkynningunni að hann líti til baka með stolti yfir því sem félagið hafi áorkað á undanförnum árum. „Ég er sannfærður um að þær breytingar sem nú er ráðist í muni styrkja samstæðuna til framtíðar og skapa forsendur fyrir áframhaldandi verðmætasköpun,“ segir þar enn fremur. Þá er haft eftir Guðnýju sem segist taka við hlutverkinu með mikilli trú á framtíð samstæðunnar. „Í félögunum býr mikil þekking, öflug þjónusta og verðmæt viðskiptasambönd sem við ætlum að byggja á. Við munum sækja fram af krafti og um leið gæta aðhalds í rekstri,“ er einnig haft eftir henni í tilkynningunni. Spara alls 610 milljónir Samhliða þessum breytingum er einnig horft til þess að ná fram auknu hagræði og auknum slagkrafti með breyttu skipulagi á fjármálastarfsemi samstæðunnar, er fram kemur í tilkynningunni en þar segir einnig að með breytingunum sem hafi verið kynntar náist fram einföldun í starfsemi. Gert sé ráð fyrir að skipulagsbreytingar á fyrirkomulagi samstæðu, lækkun stjórnunarkostnaðar, fækkun stöðugilda ásamt tilfærslu verkefna og starfa muni skila sér í 270 milljóna króna lækkun kostnaðar á ársgrundvelli þegar þær séu að fullu komnar til framkvæmda. Fyrr á árinu, þann 28. apríl síðastliðinn, voru kynntar aðgerðir til einföldunar sem námu 180 milljónum króna í lækkun kostnaðar en þá var samið við Steingrím Arnar Finnsson um starfslok. Hann var forstjóri Fossa frá árinu 2023 og tók Brynjar Þór Hreinsson við eftir að hafa verið fjármálastjóri móðurfélagsins Skaga hf. frá árinu 2023. Þá var ekki ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars. Í tilkynningunni er tekið saman hversu mikið hefur sparast á árinu en það eru alls um 610 milljónir og eru aðgerðir ársins því að skila verulegu árlegu kostnaðarhagræði.
Skagi Vistaskipti Tengdar fréttir Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Félag Haralds Þórðarsonar og eiginkonu hans Ragnhildar Þóru Ágústsdóttur myndlistarmanns, H3 ehf., hefur selt í Skaga hf. fyrir 94,5 milljónir. Haraldur Þórðarson er forstjóri Skaga hf. 5. maí 2026 17:33 Mest lesið Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira
Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Félag Haralds Þórðarsonar og eiginkonu hans Ragnhildar Þóru Ágústsdóttur myndlistarmanns, H3 ehf., hefur selt í Skaga hf. fyrir 94,5 milljónir. Haraldur Þórðarson er forstjóri Skaga hf. 5. maí 2026 17:33