Skoðun

Telur Sam­fylkingin að Mette Frederiksen sé ras­isti?

Elliði Vignisson skrifar

Systurflokkur Samfylkingarinnar í Danmörku heitir Socialdemokratiet, eða danski Jafnaðarmannaflokkurinn. Honum er stýrt af Mette Frederiksen. Um hana hefur Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar farið fögrum orðum. Á Alþingi 30. apríl sl. í umræðu um stefnu í málefnum innflytjenda sagði Kristrún orðrétt: „Ég hef rætt þennan málaflokk margsinnis við flokkssystur mína Mette Frederiksen, og geri mér alveg fyllilega grein fyrir því hvað er í gangi í Danmörku.“

Hvað er það sem Kristrún veit að „er í gangi í Danmörku“? Hvað er það sem Mette Frederiksen hefur um þessi mál að segja?

Mette fer ekki í felur með afstöðu sína. Orðin eru afdráttarlaus:

Hér eru nokkur ummæli hennar:

  • Ógnin kemur frá fólki með íslamskan bakgrunn (Í ræðu á danska þinginu í ágúst 2026): Á danska þinginu sagði Mette að ógn Evrópu væri ekki eingöngu utanaðkomandi heldur væri öflugur óvinur tekinn að vaxa innan frá og þar væri um að ræða útlendinga sem komið hefðu til Evrópu. Hún bætti við að ógnin kæmi frá fólki með íslamskan bakgrunn sem vildi ekki opið og frjálst evrópskt samfélag.
  • Um innflytjendur frá MENAPT-löndum (í svari á danska þinginu 8. apríl 2025): Í umræðum á danska þinginu sagðist Mette vilja taka af allan vafa um að hún og hennar flokkur stæðu fyrir strangri löggjöf hvað varðar málefni innflytjenda. Hún sagði það vera „… vegna þess að sérstaklega innflutningur fólks frá viðkomandi löndum [MENAPT] hefur haft alltof miklar afleiðingar fyrir land okkar.“ Hún bætti þvi svo við að þau myndu „..herða reglurnarnar svo við getum hent út fleirum sem fremja glæpi í Danmörku“.
  • Um lífsgildi múslima með danskt ríksifang (í þingumræðu á danska þinginu 28. mars 2025): Í umræðu benti hún á of margir þeirra sem nú eru hluti af Evrópu deila ekki grundvallarlýðræðisgildum með þeim sem fyrir eru. Vísaði hún m.a. í könnun sem sýndi að meira en helmingur danskra múslima myndi ekki sætta sig við að barn þeirra vildi lifa opinskátt sem samkynhneigt. Þá benti hún á að um þriðjungur múslima í Danmörku væri að nokkru eða miklu leyti hliðhollur hryðjuverkasamtökunum Hamas.
  • Um samfélagsbreytingar (á ársfundi flokks síns 12. september 2026): Í ræðu á ársfundi Socialdemokratiet sagði hún að staða Danmerkur væri slæm og vék tali sínu sérstaklega að Múslimum Hún sagði meðal annars: „Mikill innflutningur fólks hefur gert samfélag okkar óöruggara og dregið úr öryggistilfinningu fólks.“

Dæmi um afstöðu Mette Frederiksen eru mörg. Sum jafnvel hvassari en að ofan greinir. Ég held samt að þessi bútur úr ræðu hennar á danska þjóðþinginu segi margt um það hvernig við mörg viljum að þingmenn okkar hugsi og tali:

„Ég vil hvetja alla...til að halda áfram að vinna saman að því að fylgja eins strangri útlendingastefnu og mögulegt er. Ef við viljum samfélag sem einkennist af samheldni, frelsi og öryggi, er þetta það allra mikilvægasta sem við þurfum að gera og eitt af okkar allra mikilvægustu verkefnum.“

Hann er hvass tónn leiðtoga jafnaðarmanna í Danmörku. Jafnvel hvassari en sá sem fulltrúar Samfylkingarinnar keppast við að gagnrýna hér á landi og fordæma sem rasisma.

Mette sagði þessi orð. Spurningin er því einföld: Telja fulltrúar Samfylkingarinnar þau rasísk? Telja þeir tilefni til að ræða þau með vísan til hegningarlaga ef þau eru sett fram hér á landi? Eða breytist mælikvarðinn eftir því hver talar?

Höfundur er bæjarstjóri Ölfuss.




Skoðun

Sjá meira


×