Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar 28. október 2026 18:02 Matur lífeyrisþega hækkar um 73%, 130 stöðugildum er fækkað og samfélagsleg verkefni þyngjast. Á sama tíma skortir samanburð sem sýnir að þetta sé raunveruleg hagræðing frekar en kostnaðarflutningur. Reykjavíkurborg stendur frammi fyrir fjárhagsvanda. Á fyrri helmingi ársins 2026 var rekstrarhalli samstæðunnar 5,5 milljarðar króna. Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar undir forystu Hildar Björnsdóttur hefur brugðist við með fækkun um 130 stöðugildi og áætluðum 2,3 milljarða króna árlegum sparnaði. Á sama tíma hækkaði matarverð lífeyrisþega um 73%. Spurningin er einföld: Er borgin að lækka heildarkostnað samfélagsins eða aðeins að færa útgjöld úr eigin bókhaldi yfir á íbúana og framtíðina? Matur aldraðra hækkar – en afleiðingarnar eru ómældar Haustið 2026 hækkaði almennt verð máltíða fyrir lífeyrisþega í þjónustumiðstöðvum úr 1.100 krónum í 1.900 krónur. Fyrir einstakling sem kaupir tuttugu máltíðir á mánuði er það 16.000 krónur aukalega á mánuði, eða 192.000 krónur á ári. Tekjulágir geta undir skilyrðum fengið máltíðina á 1.500 krónur. Máltíðaþjónusta er ekki aðeins matarsala. Fyrir marga aldraða er sameiginleg máltíð fastur félagslegur punktur. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur bent á að félagsleg einangrun tengist aukinni hættu á hjarta- og æðasjúkdómum, vitrænni hnignun, þunglyndi og ótímabærum dauða. Rannsóknir hafa sýnt allt að 50% aukna áhættu á heilabilun hjá félagslega einangruðu fólki. Ef hækkunin dregur úr aðsókn getur hún aukið einangrun. Ekki liggja fyrir gögn sem sýna hversu margir munu hætta að sækja máltíðir eða hvaða áhrif það hefur. Einföld reiknidæmi sýna þó áhættuna: Ef tíu einstaklingar þurfa viðbótarþjónustu sem kostar tvær milljónir króna á mann á ári, er það 20 milljónir. Ef fimmtíu þurfa slíkt, er það 100 milljónir. Eitt hjúkrunarpláss kostar um 18–22,5 milljónir króna á ári. Þetta eru sviðsmyndir, ekki spár – en þær sýna hvers vegna áhrifin þarf að mæla áður en hækkunin er kölluð hagræðing. Starfsfólkið fer – yfirbyggingin situr eftir október samþykkti borgarstjórn síðasta áfanga fækkunarinnar. Stöðugildum fækkar um 73,8 og 50 manns er sagt upp. Samanlagt er fækkunin 130 stöðugildi frá júní. Borgin hefur sett sér viðmið um að miðlæg stöðugildi verði ekki fleiri en 7,5% af heildinni. Hvers vegna nákvæmlega 7,5%? Enginn opinber samanburður við aðrar borgir eða útreikningur á verkefnum og gæðum hefur verið birtur. Starfsmaður er ekki aðeins launakostnaður. Reyndur sérfræðingur getur komið í veg fyrir tafir, skapað sparað í innkaupum eða greint viðhaldsþörf áður en smáskemmdir verða stórtjón. Föst yfirbygging – húsnæði, kerfi, tryggingar, orka – hverfur ekki sjálfkrafa með fólkinu. Einfalt reiknidæmi sýnir áhættuna: Ef 500 starfsmenn bera 1,5 milljarð í föstum kostnaði er það þrjár milljónir á mann. Fækki þeim í 370 en yfirbyggingin helst óbreytt, hækkar kostnaðurinn í rúmar fjórar milljónir á hvern sem eftir situr. Launasparnaður getur samt verið til staðar, en raunverulegur sparnaður verður að reikna út frá heildarrekstri. Þekkingin getur verið keypt aftur á hærra verði Ef verkefni halda áfram eftir uppsagnir þarf annað fólk að taka við, sum að vera sjálfvirknivædd eða þjónustan keypt að utan. Aðkeypt sérfræðiþjónusta er oft margfalt dýrari á vinnustund en eigin starfskraftar. Borgin þarf áfram eigið fólk til að skilgreina verkefni, gera samninga og hafa eftirlit. Hér getur myndast vítahringur: fólki fækkað til að spara, þekking tapast, útvistun eykst, eigin geta veikist og kostnaður við samningsstjórn hækkar. Þetta hefur ekki verið sýnt fram á að sé þegar orðið, en áhættan er nægilega skýr til að kalla á mat. Á sama tíma vex þjónustuþörfin. Fjölgun aldraðra kallar á meiri heimastuðning. Atvinnuleysi var 5,1% í september 2026, 1,9 prósentustigum hærra en árið áður. Rakaskemmdir í skólum og innviðaverkefni krefjast stjórnunargetu. Grunnþjónusta byggist ekki aðeins á framlínufólki. Hún byggist líka á þeim sem skipuleggja, fjármagna og koma í veg fyrir mistök. Að vernda framlínuna með því að veikja stjórnsýsluna er varasamt. Tæknin er til – en greininguna vantar Gervigreind, sjálfvirkni og stafrænir tvíburar geta bætt innkaup, viðhald og áætlanagerð. Reykjavík hefur stafræna stefnu fyrir 2026–2030. En stefnur skapa ekki sparnað af sjálfu sér. Þær þurfa fjárfestingamat, arðsemisútreikninga og hæft fólk. Hvar er heildargreining sem ber saman ávinning af tæknilegri endurskipulagningu og sparnaðinn af uppsögnum? Borg sem vill nýta tækni þarf að varðveita þekkingu til að leiða hana. Annars verður tæknin enn einn kostnaðarliðurinn. Hvað gæti skellurinn kostað? Áætlaður árlegur sparnaður er 2,3 milljarðar. Ef viðbótarkostnaður vegna útvistunar og óhagkvæmni nemur þremur milljörðum á ári verður nettókostnaðaraukningin 700 milljónir. Ef hann nemur sex milljörðum er nettótapið 3,7 milljarðar á ári. Þetta eru sviðsmyndir. Stærsti skellurinn gæti þó orðið utan borgarsjóðs – í verri þjónustu, meiri einangrun og hærri heildarframfærslu. Þá hefði borgin lækkað eigin útgjöld en aukið samfélagslegan kostnað. Á landsvísu mældist Sjálfstæðisflokkurinn í 21,9% í Maskínu-könnun í október, niður úr 25%. Þetta er ekki sönnun þess að aðgerðirnar hafi valdið fylgistapi, en það undirstrikar að kjörnir fulltrúar þurfa að geta rökstutt ákvarðanir sínar með gögnum. 90 daga óháð úttekt Borgarstjórn ætti að láta gera óháða 90 daga greiningu. Þar verði bornir saman tveir valkostir: núverandi áætlun um fækkun stöðugilda, og tólf mánaða umbreytingaráætlun þar sem viðeigandi starfsfólk er nýtt til markvissra umbótaverkefna í fasteignum, innkaupum, kerfum og framkvæmdastjórnun. Hvert verkefni hafi mælanleg markmið. Sérstök úttekt verði gerð á áhrifum matarverðshækkunarinnar á aðsókn, næringu og félagsleg tengsl. Niðurstöðurnar verði birtar opinberlega. Jafnframt verði kannað hvort unnt sé að fresta einstökum uppsögnum þar sem hætta er á þekkingartapi. Það er ekki stjórnunarsigur að fækka um 130 stöðugildi. Það er ekki árangur að hækka matarverð lífeyrisþega um 73%. Reykjavík þarf ekki aðeins áætlun um að lækka launakostnað. Hún þarf að sýna hvernig hún ætlar að skapa meiri verðmæti án þess að flytja kostnaðinn yfir á íbúana. Borgarbúar eiga rétt á að vita hvort borgarstjórn sé að lækka raunverulegan heildarkostnað samfélagsins eða aðeins að færa útgjöld milli reikninga. Reykjavíkurborg verður ekki sterkari með því einu að fækka þeim sem vinna fyrir hana. Hún verður sterkari þegar hún nýtir fólk, fjármagn og tækni til að skapa meiri verðmæti. Það er munurinn á niðurskurði og hagræðingu. Höfundur er M.Phil. byggingaverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Sjá meira
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun