Erlent

Fjöldi slasaðra í á­rekstri hraðlesta á Spáni

Kjartan Kjartansson skrifar
Hraðlest spænska á Santa Justa-lestarstöðinni í Sevilla. Myndin er úr safni.
Hraðlest spænska á Santa Justa-lestarstöðinni í Sevilla. Myndin er úr safni. Vísir/EPA

Tvær hraðlestir rákust á í Toledo á Mið-Spáni í morgun. Fjöldi manns er sagður slasaður en tveir vangar ultu niður hlaðinn kant sem járnbrautarteinarnir liggja á.

Áreksturinn átti sér stað á milli bæjanna Mora og Orgaz og Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun. Önnur lestanna var á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu. AP-fréttastofan hefur eftir spænska ríkissjónvarpinu að báðar lestir hafi verið á sömu leið en annarri þeirra hafi verið ekið aftan á hina.

Sjónarvottar segja spænska blaðinu El País að fjöldi manns sé slasaður og að viðbragðsaðilar séu komnir á vettvang. Tveir lestarvagnar hafi farið út af sporinu og oltið niður kant.

Lestarsamgöngur liggja nú niðri á milli Madridar, Ciudad Real og Andalúsíu vegna slyssins.

Fjörutíu og fimm manns létust þegar lest fór út af sporinu og í veg fyrir lest sem kom úr gagnstæðri átt á Suður-Spáni í janúar.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×