Sport

Tré felld vegna Þjóðarhallar

Valur Páll Eiríksson skrifar
Líkt og sjá má hefur trjágróðrinum fækkað á blettinum þar sem ný Þjóðarhöll á að rísa.
Líkt og sjá má hefur trjágróðrinum fækkað á blettinum þar sem ný Þjóðarhöll á að rísa. Vísir/ÓskarÓ

Það virðist sem undirbúningsvinna fyrir nýja Þjóðarhöll, fjölnota mannvirki í Laugardal, sé hafin.

Fyrsta skóflustunga hefur ekki verið tekin enn að nýrri höll en vinna virðist þó hafin á reignum þar sem hún á að rísa. Vinnutæki eru mætt á svæðið og nokkur tré verið felld.

Verksamningur milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. var samþykktur í Borgarráði Reykjavíkur fyrir sléttum mánuði. Verkið mun kosta um 16,8 milljarða króna og munu landslið Íslands í handbolta og körfubolta spila landsleiki í höllinni.

Landsliðin hafa bæði verið á undanþágum frá kröfum alþjóðasambandanna IHF og FIBA vegna aðstöðunnar í Laugardalshöll árum saman. 

Ný höll á að taka 8.600 manns í sæti og vera tilbúin til notkunar ekki síðar en 25. janúar 2030.

Höllin á að hýsa leiki á HM karla í handbolta í janúar 2031 þar sem Ísland mun halda móti ásamt Danmörku og Noregi.

Tré voru felld í massavís vegna vinnu að nýrri Þjóðarhöll í dag.Vísir/ÓskarÓ
Tré felld, ný ÞjóðarhöllVísir/ÓskarÓ
Vísir/ÓskarÓ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×