Erlent

Sagður hafa átt í sam­skiptum við kín­verskan njósnara

Samúel Karl Ólason skrifar
Jenesen Huang er forstjóri Nvidia. Það hefur stækkað gífurlega hratt á undanförnum árum og er orðið verðmætasta fyrirtæki heims, á grunni þess að framleiða búnað fyrir gagnaver ætluð gervigreind.
Jenesen Huang er forstjóri Nvidia. Það hefur stækkað gífurlega hratt á undanförnum árum og er orðið verðmætasta fyrirtæki heims, á grunni þess að framleiða búnað fyrir gagnaver ætluð gervigreind. AP/Markus Schreiber

Jensen Huang, forstjóri Nvidia, verðmætasta fyrirtækis heims, er sagður hafa átt í samskiptum við konu sem talin er vera kínverskur njósnari. Konan er sögð hafa stofnað gagnaverafyrirtæki í Singapore sem hún notaði til að smygla tölvuflögum fyrir gervigreind til Kína, auk þess sem hún á að hafa deilt upplýsingum með leyniþjónustum Kína.

Bandaríkjamenn hafa um árabil unnið hörðum höndum að því að koma í veg fyrir að bandarísk tækni á sviði gervigreindar endi í höndum Kínverja. Huang hefur á öðru kjörtímabili Trumps spilað stóra rullu í því að Trump ákvað að létta á reglunum varðandi Kína og bandaríska gervigreindartækni.

Sjá einnig: Heimila sölu gervi­greindar örflaga til Kína gegn hluta af á­góðanum

Nvidia framleiddi lengst af að mestu skjákort í tölvur en reksturinn gengur nú að miklu leyti út á það að framleiða búnað fyrir gagnaver ætluð gervigreind. Eftirspurnin eftir þessum búnaði hefur gert fyrirtækið það verðmætasta í heimi á einungis nokkrum árum.

Sjá einnig: Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára

Þá er Jensen Huang tiltölulega vel tengdur Donald Trump og hefur beinan aðgang að forsetanum og innsýn í þankagang hans.

Þegar starfsmenn bandarískra leyniþjónusta komust á snoðir hennar og uppgötvuðu tengsl hennar við Huang, sem er einn áhrifamesti maður Bandaríkjanna þegar kemur að gervigreind, var þeim upplýsingum deilt með Hvíta húsinu. Fyrir um ári síðan var málið kynnt Trump og ákvað hann að grípa ekki til neinna aðgerða.

Það mun meðal annars vera vegna þess að hann vildi ekki trufla sölu Nvidia en vöxtur fyrirtækisins á undanförnum árum hefur verið einn af burðarstólpum bandaríska hlutabréfamarkaðarins. Þá vildi Trump ekki heldur styggja Kínverja.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri frétt New York Times um málið.


Kaupa flögur og leigja reiknigetuna til K'ina

Samkvæmt heimildarmönnum NYT er Alice Huang, umrædd kona, enn undir yfirliti leyniþjónusta Bandaríkjanna og fyrirtæki hennar, sem heitir Megaspeed, hefur á þessu ári haldið áfram að kaupa tölvuflögur af Nvidia.

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa takmarkað sölu bandarískra fyrirtækja á tölvuflögum til Kína frá árinu 2022. Forsvarsmenn nokkurra fyrirtækja hafa verið gómaðir við að smygla flögum til Kína en aðrir hafa sett upp lögleg fyrirtæki í ríkjum í Suðaustur-Asíu og reist þar gagnaver með bandarískum tölvuflögum og leigt reiknigetu þeirra til Kína.

Megaspeed er eitt þessara fyrirtækja.

Þetta hafa bandarískir embættismenn og þingmenn litið hornauga. Ríkisstjórn Joes Biden greip til aðgerða til að reyna að draga úr þessu en Trump hætti þeim þegar hann tók við embætti aftur.


Segja innri rannsókn hreinsa Megaspeed af sök

Jensen Huang mun ekki hafa formlegar upplýsingar um málið og leiðbeiningar um það hvernig hann gæti varið sig gegn njósnum, eins og gjarnan eru veittar fólki sem talið er að erlend ríki gætu reynt að njósna um eða hafa áhrif á.

Huang fór með Trump til Kína fyrr á þessu ári og sat kvöldverð í Hvíta húsinu þegar Xi Jinping, forseti Kína, heimsótti Bandaríkin nú í haust.

Í yfirlýsingu til NYT frá Nvidia segir að rannsókn fyrirtækisins hafi leitt í ljós að Megaspeed sé ekki að smygla flögum til Kína. Þá segir að samskipti Jensen Huang við Alice Huang (enginn skyldleiki) séu eðlileg. Hann eigi í sambærilegum samskiptum við þúsundir viðskiptavina Nvidia á ári hverju.

Þá segir í yfirlýsingunni að ef yfirvöld Bandaríkjanna teldu hættuna raunverulega hefðu forsvarsmenn fyrirtækisins verið látnir vita.

Huang og Huang sáust saman á bar í Taipei í Taívan í júní 2024. Það var eftir tæknisýningu og sátu þau og drukku viskí ásamt öðrum forsvarsmönnum gervigreindarfyrirtækja. Tæpu ári síðar sáust þau aftur saman og aftur ásamt forsvarsmönnum annarra fyrirtækja, í Taipei.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×