Skoðun

Stórsókn eða stór orð?

Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifa

Í þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 er boðuð stórsókn í útgáfu námsgagna. Gefa á út nýtt og heildstætt námsefni í stærðfræði, íslensku og náttúrugreinum: Leggja á aukna áherslu á fjölbreytt og vönduð námsgögn og tryggja að þau taki mið af aldri, færni, áhuga og tungumálabakgrunni nemenda. Þetta er löngu tímabært, skólafólk hefur árum saman kallað eftir aðgengilegu námsefni sem mætir ólíkum þörfum nemenda.

Árið 2021 benti ríkisendurskoðun á takmarkað fjármagn til námsefnisgerðar og þörf væri á skýrari stefnu námsgagnagerðar. Í greinargerð áætlunarinnar kemur fram að samkvæmt könnun ráðuneytisins þurfi 76% stærðfræðikennara oft að leita að viðbótarefni. Þá nota 84% þeirra reglulega verkefni sem þeir hafa útbúið sjálfir. Kennarar hafa því haldið kerfinu gangandi með eigin vinnu og fyllt upp í göt sem ríkið skildi eftir. Ástæðan er niðurskurður í Þróunarsjóði námsgagna sem er nú aðeins um þriðjungur af raunvirði sínu frá árinu 2007. Forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu hefur sagt að höfundum sé greitt mjög lítið fyrir námsefnisgerð, að kennarar hafi frekar litið á þessa vinnu sem samfélagslega skyldu.

Gæði kosta

Áætlunin svarar ekki spurningum eins og hversu miklu fé verður varið til þróunar, ritunar, myndskreytinga, útgáfu og reglulegrar endurnýjunar? Hvernig verður tryggt að efnið standist kröfur aðalnámskrár og styðji fjölbreytta kennsluhætti? Hvaða verkefni njóta forgangs? Í áætluninni segir aðeins að útgáfa nýs námsefnis í kjarnagreinum rúmist innan fjárheimilda frá árinu 2027. Það segir ekkert um hvernig fénu verður skipt, hvernig því verður úthlutað eða hvort það dugi fyrir þeirri umfangsmiklu endurnýjun sem lofað er. Á slíkum málflutningi er ekki hægt að byggja.

Vönduð námsgagnagerð krefst sérþekkingar kennara, fræðimanna, höfunda, ritstjóra, hönnuða og útgefenda. Hún krefst tíma, faglegs mats, prófana og endurskoðunar. Allt þetta kostar og fyrir það þarf að greiða sanngjarnt verð. Vélþýtt og staðfært gervigreindarefni sem ráðherra málaflokksins er tíðrætt um kemur ekki í stað námsefnis sem er samið fyrir íslensk börn, á íslensku, af fólki sem þekkir nemendahópinn. Útgáfuáætlun dugar ekki til, það þarf fjármagnaða framkvæmdaáætlun sem sýnir hvernig gæði og samfella námsefnis verða tryggð til lengri tíma. Annars verður stórsóknin enn eitt loforðið sem kennarar þurfa að efna sjálfir.

Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennari

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir menntunarfræðingur




Skoðun

Sjá meira


×