Erlent

Stjórnlagadómstóll Pól­lands sakar stjórn­völd um valda­rán

Eiður Þór Árnason skrifar
Lögregluþjónar við stjórnlagadómstólinn í dag.
Lögregluþjónar við stjórnlagadómstólinn í dag. AP//Rafal Niedzielski

Óeirðalögregla er komin að stjórnlagadómstól Póllands vegna harðnandi deilu milli ríkisstjórnarinnar og æðstu dómara dómstólsins. Reynir lögregla að koma í veg fyrir að mótmælendur komist inn í dómshúsið.

Í deilunni takast á ríkisstjórn Donalds Tusk forsætisráðherra og fulltrúar hægriflokksins Laga og réttlætis sem fóru áður með stjórn landsins. BBC greinir frá þessu.

Lögreglan skarst í leikinn eftir að Waldemar Żurek dómsmálaráðherra greindi frá því að hann hefði farið fram á að Bogdan Święczkowski, forseti dómstólsins, og Bartłomiej Sochański, varaforseti hans, yrðu sviptir friðhelgi gegn saksókn svo hægt væri að ákæra þá fyrir refsiverð brot.

Tusk hefur heitið því að afnema pólitísk ítök í dómskerfinu sem séu afleiðing stefnu fyrri ríkisstjórnar. Hann varði aðgerðirnar í gær á meðan stuðningsmenn Laga og réttlætis söfnuðust saman fyrir utan húsnæði dómstólsins í höfuðborginni Varsjá til að mótmæla.

Saka stjórnvöld um valdarán

Í samfélagsmiðlafærslu stjórnlagadómstólsins segir að dómararnir tveir sem ríkisstjórnin vilji sækja til saka séu löglega skipaðir æðstu dómarar dómstólsins.

„Allir sem taka þátt í þessum aðgerðum eru að fremja glæpsamlegt valdarán,“ segir jafnframt í færslunni.

Tusk forsætisráðherra segir það skyldu stjórnvalda að „endurreisa réttarríkið“.

„Þetta er erfitt eftir margra ára lögleysu Laga og réttlætis og stundum sársaukafullt ferli sem krefst afdráttarlausra aðgerða. Það er engin önnur leið,“ skrifar hann í færslu á samfélagsmiðlum.

Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðað dómstólinn hlutdrægan

Þegar íhaldsstjórn Laga og réttlætis tók við völdum árið 2015 skipaði hún fljótlega dómara til að ná meirihluta í stjórnlagadómstólnum sem hefur vald til að úrskurða um lögmæti lagasetningar.

Mannréttindadómstóll Evrópu og Dómstóll Evrópusambandsins úrskurðuðu síðar að stjórnvöld hefðu kjörið þrjá dómara með ólögmætum hætti þar sem fyrra þing hafi verið búið að skipa í stöður þeirra.

Þá úrskurðuðu evrópsku dómstólarnir að stjórnlagadómstóll Póllands gæti ekki lengur talist „sjálfstæður og óhlutdrægur dómstóll“. Ríkisstjórn Tusks vísaði til þessa þegar hún hætti að birta úrskurði dómstólsins.

Tusk hefur ekki tekist að afnema breytingar frá valdatíma Laga og réttlætis, meðal annars vegna þess að Karol Nawrocki forseti og forveri hans Andrzej Duda beittu neitunarvaldi forseta til að stöðva framgang mála sitjandi ríkisstjórnar. Báðir forsetar njóta stuðnings fyrrum stjórnarflokksins Laga og réttlætis.

Forsetinn sneri af leið

Nawrocki hefur neitað að sverja fimm dómara í embætti sem þingið hefur kjörið í stjórnlagadómstólinn frá því í mars. Hefur hann byggt á því að meintir annmarkar hafi verið á valferlinu.

Feneyjarnefndin, sem er ráðgefandi stofnun Evrópuráðsins í stjórnskipunarmálum, sagði fyrr í þessum mánuði að Nawrocki forseti ætti að sverja dómarana í embætti svo þeir gætu tekið sæti í stjórnlagadómstólnum.

Żurek dómsmálaráðherra sagði að dómarinn Święczkowski og varaforseti hans ættu að sæta ákæru fyrir að leyfa dómurunum ekki að dæma í málum.

Nawrocki forseti er kominn inn í byggingu stjórnlagadómstólsins, að sögn skrifstofustjóra hans.

Nawrocki hætti við ferð til Senegal á meðan flugvél hans var í loftinu til að geta verið viðstaddur átökin í Varsjá. Hann var á leið á Sumarólympíuleika ungmenna í Dakar.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×