Erlent

Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði

Samúel Karl Ólason skrifar
Að minnsta kosti 26 liggja í valnum og þar af eru tveir björgunarsveitarmenn og fjórir lögregluþjónar sem voru að leita að fólki í rústunum þegar fleiri sprengjum var varpað á þær.
Að minnsta kosti 26 liggja í valnum og þar af eru tveir björgunarsveitarmenn og fjórir lögregluþjónar sem voru að leita að fólki í rústunum þegar fleiri sprengjum var varpað á þær. Almannavarnir Úkraínu

Rússar vörpuðu sprengjum á skóla í sunnanverðri Úkraínu í dag, þar sem íbúar bæjar nærri víglínunni höfðu komið saman til að fá mataraðstoð. Í heildina vörpuðu Rússar tíu stórum sprengjum á skólann í nokkrum bylgjum. Að minnsta kosti 26 eru látnir og minnst tuttugu er saknað.

Árásirnar voru gerðar í bænum Komyshuvakha í Sapórisjía. Fyrstu sprengjurnar féllu þegar íbúar bæjarins komu saman í skólanum, eins og þeir gera reglulega samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, til að fá mat.

Fleiri sprengjum var svo varpað og drónaárásir gerðar í kjölfarið og segir forsetinn að þeim hafi í einhverjum tilfellum verið miðað á byrgi sem fólk hafði leitað sér skjóls í. Sprengjur féllu einnig á rústirnar þegar björgunaraðilar voru að störfum og eru tveir björgunarsveitarmenn og fjórir lögregluþjónar meðal hinna látnu.

Á ensku eru árásir sem þessar kallaðar „Double-Tap“ árásir og eru þær iðulega gerðar af hryðjuverkamönnum víðs vegar um heiminn og er þeim ætlað að valda miklu mannfalli meðal viðbragðsaðila sem bregðast við fyrstu árásinni. Rússar voru á árum áður ítrekað sakaðir um árásir sem þessar í Sýrlandi en þeir hafa einnig gert fjölmargar í Úkraínu.

Selenskí segir íbúa hafa komið saman í skólanum í hverri viku til að fá mat og að ómögulegt sé að Rússar hafi ekki verið meðvitaðir um það.

„Þetta er enn önnur sönnun þess að Rússar hafa ekki áhuga á að draga úr spennu eða einhvers konar réttlæti.“

Fleiri borgarar falla

Komyshuvakha er í um tuttugu kílómetra fjarlægð frá víglínunni og hafa Rússar reglulega varpað sprengjum á bæinn. Oft notast þeir við svokallaðar svifsprengjur, sem eru yfirleitt stórar sprengjur búnar vængjum og staðsetningarbúnaði.

Þeim er varpað úr flugvélum í mikilli hæð og á miklum hraða og geta því svifið tugi kílómetra áður en þær lenda á skotmörkum sínum, ef þær hitta, án nokkurs fyrirvara.

Frá vettvangi árásanna.Almannavarnir Úkraínu

Þessar árásir fylgja á hæla annarra ítrekaðra árása sem óbreyttir borgarar hafa fallið í að undanförnu. Mannfall meðal óbreyttra borgara hefur aukist töluvert á undanförnum mánuðum. Í september dóu til að mynda að minnsta kosti 328 óbreyttir borgarar í árásum sem þessum, sem var 85 prósentum fleiri en í september í fyrra.

Um miðjan síðasta mánuð sögðu sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna að útlit væri fyrir að svipaða sögu yrði að segja af október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×