Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Smári Jökull Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 08:45 Orð Þorgerðar Katrínar á þingi í gær vöktu athygli Rússa. Vísir/Anton Brink Rússneska sendiráðið á Íslandi segist afar undrandi á orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í gær þar sem hún sagði tíst Ólafs Ragnars Grímssonar hafa verið alvarlegri en skrif Heimis Más Péturssonar framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Rússar skrifa þó að orð Þorgerðar Katrínar gefi ástæðu til varlegrar bjartsýni.
Þorgerður lét orðin falla í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í gær þar sem hún svaraði spurningum Stefáns Vagns Stefánssonar, þingflokksformanns Framsóknar, um skrif Heimis Más. Eins og greint hefur verið frá svaraði Heimir færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta á samfélagsmiðlinum X með þeim orðum að forsetinn ætti að senda hermenn til Úkraínu og undirbúa kjarnorkuvopnin. Heimir baðst síðar afsökunar á orðum sínum. Í máli sínu í gær ítrekaði Þorgerður Katrín afsökunarbeiðni Heimis Más og minntist síðan á aðra færslu á X þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, deildi færslu frá Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, þar sem hann gagnrýndi NATO. „En ég hugsa núna þegar það kemur þessi athugasemd um eitt tíst frá Heimi Má Péturssyni, sem er búinn að draga það til baka, alveg skýrlega, að það sagði enginn í stjórnarandstöðunni neitt þegar tíst kom frá Sergei Lavrov þar sem hann agnúast út í sameiginlega eftirlitssveit NATO, Arctic Sentry, sem eykur öryggi hér á norðurslóðum. Þá var því endurtíst hér af fyrrum forráðamanni íslenskra stjórnvalda. Það finnst mér miklu alvarlegra heldur en þetta,“ sagði Þorgerður Katrín. Sendiráðið undrandi Rússar hafa nú brugðist við þessum orðum Þorgerðar Katrínar í færslu á Facebook-síðu rússneska sendiráðsins hér á landi. Þar skrifa Rússar að þeir hafi tekið eftir orðum Þorgerðar Katrínar á Alþingi í gær og vitna í fréttir um skrif Heimis Más. „Í þessu sambandi er sendiráðið afar undrandi á því að heyra ráðherrann halda því fram að í þessu samhengi sé það mun alvarlegra að ónafngreindur „fyrrverandi leiðtogi landsins“ hafi fært grein eftir Sergey Lavrovs utanríkisráðherra Rússlands, Alþjóðlegt samstarf á norðurslóðum: áskoranir og tækifæri, á samfélagsmiðlinum X,“ segir í færslunni. Jafnframt er skrifað að miðað við rökhyggju Þorgerðar Katrínar ætti að vera ljóst að hún teldi skrif Lavrov meira ógnandi en yfirlýsingar háttsetts embættismanns innan stjórnarflokksins og vísað þar í Heimi Má. Rússar tala þó um að ástæða sé til hóflegrar bjartsýni. „Hins vegar er einnig nokkur ástæða til varlegrar bjartsýni: utanríkisráðherrann hefur þó staðfest að íslenska ríkisstjórnin styðji ótvírætt kjarnorkuvopnaafvopnun.“
Alþingi Flokkur fólksins Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Bein útsending: Kynna verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Sjá meira