Lífið

Ellý er röddin sem þúsundir manna heyra á hverjum degi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ellý heyrist daglega og það margoft.
Ellý heyrist daglega og það margoft.

Átta liða úrslitin í Kviss héldu áfram á laugardaginn þegar Árbæingarnir í Fylki og Hafnfirðingarnir í FH mættust í hörkuviðureign.

Sem fyrr voru þau Ellý Ármanns og Ágúst Bent saman í liði fyrir hönd Fylkis. Þau Jóhannes Haukur og Birna Rún Eiríksdóttir voru í liði Fimleikafélagsins.

Í upphafi þáttarins kom fram sturluð staðreynd um Ellý Ármanns en hún er í raun rödd líkamsræktarstöðvarinnar World Class. Um leið og þú skannar augun og í dag lófann heyrist í Ellý bjóða þig velkominn.

Hér að neðan má sjá umræðuna um þessa skemmtilegu staðreynd. Hægt er að sjá hvaða lið komst áfram í undanúrslitin inni á Sýn+.

Klippa: Ellý er röddin sem mörg þúsund manns heyra á hverjum degi





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.