Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Árni Sæberg skrifar 3. nóvember 2026 11:03 Ráðhúsið í Reykjavík. Vísir/Vilhelm Í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar ársins 2027 er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða verði jákvæð um 12,9 milljarða króna og EBITDA verði 73 milljarðar króna. Á árunum 2028-2031 er gert ráð fyrir batnandi afkomu og vaxandi EBITDA.
Í tilkynningu borgarinnar til Kauphallar segir að útkomuspá fyrir yfirstandandi ár geri ráð fyrir að afkoma ársins verði neikvæð um 3,4 milljarða króna.Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum sé áætlað 16,5 prósent árið 2027 eða 53,2 milljarðar króna og verði á milli 17 prósent og 18,1 prósent tímabilið 2028 til 2031.Gert sé ráð fyrir að lok árs 2027 nemi eignir samtals 1.116 milljörðum króna og hækki um 51 milljarð króna á árinu. Þá sé gert ráð fyrir að eiginfjárhlutfall nemi 43,5 prósentum.Heildarfjárfesting sé áætluð 73,8 milljarðar árið 2027 og gert sé ráð fyrir að heildarfjárfesting árin 2028 til 2031 nemi 295,5 milljörðum króna. Árið 2027 sé gert ráð fyrir að lántaka langtímalána ársins nemi 53,2 milljörðum króna og að handbært fé í árslok verði 24,4 milljarðar króna.Gert sé ráð fyrir að þriggja ára jafnvægisviðmið sveitarstjórnarlaga verði jákvætt allt áætlunartímabilið og að skuldaviðmið verði 113 prósent árið 2027 og undir 150 prósenta viðmiði sveitarstjórnarlaga út áætlunartímabilið. Milljarðaafgangur af A-hluta Fjárhagsáætlun A-hluta geri ráð fyrir 2,8 milljarða króna afgangi árið 2027. Í fimm ára áætlun sé gert ráð fyrir að hagnaður A-hluta fari stigvaxandi og nemi 16,8 milljörðum árið 2031.Gert sé ráð fyrir að veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum nemi 8 prósentum árið 2027. Í fimm ára áætlun sé gert ráð fyrir að veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum verði milli 9,3 prósenta og 11,3 prósenta árin 2028-2031.Gert sé ráð fyrir að eignir A-hluta nemi 333,2 milljörðum króna í lok árs 2027 og að eiginfjárhlutfall nemi 25 prósentum. Hreinar skuldir sem hlutfall af tekjum séu áætlaðar 91 prósent árið 2027 og fari lækkandi á áætlunartímabilinu.Heildarfjárfesting A-hluta sé áætluð 23,6 milljarðar árið 2027 og gert sé ráð fyrir að stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum samkvæmt lögum um almennar íbúðir og til B-hluta fyrirtækja og hlutdeildarfélaga nemi 2,6 milljörðum króna. Árið 2027 sé gert ráð fyrir að langtímalántaka ársins nemi 16 milljörðum króna, skammtímalántaka nemi 2,5 milljörðum króna og að handbært fé í árslok verði 10,4 milljarður króna. Sérstök áhersla lögð á áhættustýringu og ábatagreiningu Þá segir að Reykjavíkurborg og fyrirtæki hennar sinni umfangsmiklum þjónustu- og innviðaverkefnum. Á næsta ári sé áætlað að eignir A- og B-hluta borgarinnar samkvæmt efnahagsreikningi verði komnar yfir 1.100 milljarða króna með 485 milljarða króna í eigið fé. Það sýni sterka stöðu borgarinnar og B-hluta fyrirtækja að áætlað veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum sé yfir 16 prósentum og standi þannig undir fjárfestingastigi og skuldsetningu fjárfrekra innviðaverkefna.Fjármálastjórn A-hluta taki mið af endurskoðaðri fjármálastefnu Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið 2027 til 2031. Sérstök áhersla sé lögð á innleiðingu virkrar áhættustýringar, arðsemis- og ábatagreininga vegna fjárfestinga, árangursstjórnun og virkt útgjaldaeftirlit. Framtíðarsýn stefnunnar sé að fjármálastjórn borgarinnar tryggi sjálfbærni og stöðugleika til lengri tíma. „Með ábyrgri forgangsröðun og hagkvæmri nýtingu fjármuna skili borgarsjóður rekstrarafgangi og standi undir skuldum og skuldbindingum á hverjum tíma. Þrjú meginmarkmið styðja við hana: fjárhagsleg sjálfbærni og stöðugleiki, árangursdrifin og hagkvæm nýting fjármuna, og skýr forgangsröðun og markvissar fjárfestingar. Í fjármálastefnunni eru sett markmið fyrir A-hluta sem taka til helstu fjárhagslegra þátta borgarsjóðs þ.e. reksturs, efnahags og sjóðstreymis.“Gert sé ráð fyrir að öll markmið fjármálastefnunnar verði uppfyllt á áætlunartímabilinu. Veltufé frá rekstri sem hlutfall af tekjum endurspegli sterkan grunnrekstur, handbært fé í árslok sé yfir markmiðum og skuldaviðmið með því lægsta á höfuðborgarsvæðinu.
Reykjavík Borgarstjórn Rekstur hins opinbera Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Innlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Bein útsending: Kynnir fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Sjá meira