Hafnað með afgerandi hætti Smári Jökull Jónsson skrifar 3. nóvember 2026 13:25 Elisabeth Thand Ringqvist var hafnað með afgerandi hætti. Vísir/EPA Tillaga um að Elisabeth Thand Ringqvist verði næsti forsætisráðherra Svíþjóðar var felld í sænska þinginu með afgerandi hætti nú eftir hádegið. Ljóst var fyrir atkvæðagreiðsluna að Ringqvist væri ekki með meirihluta þingmanna á bak við sig og færast Svíar sífellt nær þeim möguleika að kjósa þurfi upp á nýtt.
Pattstaðan í sænskum stjórnmálum hefur verið algjör í kjölfar kosninganna þann 12. september síðastliðinn. Þrátt fyrir að vinstriblokkin, sem var í stjórnarandstöðu síðustu fjögur ár, hafi náð meirihluta þá hefur ekkert gengið að mynda ríkisstjórn. Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar í dag um Elisabeth Thand Ringqvist sem forsætisráðherra voru afgerandi en 324 þingmenn sögðu nei og 25 þingmenn já. Er þetta í annað sinn sem tillaga um forsætisráðherra er borin fram í þinginu en alls getur þingforseti borið fram fjórar slíkar tillögur en verði þær allar felldar skal boða til nýrra kosninga. Leiðtogar stjórnmálaflokkanna Amanda Lind Talsmaður Græningja. Daniel Helldén Talsmaður Græningja. Ebba Busch Formaður Kristilegra demókrata og orku- og iðnaðarráðherra. Elisabeth Thand Ringqvist Formaður Miðflokksins. Jimmie Åkesson Formaður Svíþjóðardemókrata. Magdalena Andersson Formaður Sósíaldemókrata. Nooshi Dadgostar Formaður Vinstriflokksins. Simona Mohamsson Formaður Frjálslynda flokksins og menntamálaráðherra. Ulf Kristersson Formaður Moderaterna og forsætisráðherra. Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins, sem er stærsti flokkurinn á sænska þinginu, fékk stjórnarmyndunarumboðið upphaflega þegar úrslit kosninganna voru ljós. Skilaði hún því þó fljótlega aftur þegar lítið hafði gengið í viðræðum. Forseti þingsins ákvað hins vegar að hún skyldi reyna áfram og var lögð fram tillaga um Andersson sem forsætisráðherra þann 15. október. Var sú tillaga felld en vandræði Andersson, sem allir fjórir vinstri flokkarnir hafa stillt upp sem sínum forsætisráðherrakandídat, snúast að því að Miðflokkurinn vill ekki sitja í stjórn með Vinstriflokknum. Til að vinstri blokkin geti myndað ríkisstjórn þyrfti Miðflokkurinn að bakka frá þessari kröfu sinni eða Vinstriflokkurinn aðeins vera stuðningsflokkur ríkisstjórnarinnar, án þess að fá ráðherrastóla. Það eru forystumenn Vinstriflokksins ekki tilbúnir að samþykkja og staðan því snúin. Umboðið færist til Kristersson Eftir að Andersson var hafnað ákvað þingforsetinn Anders Norlén að veita Elisabeth Thand Ringqvist stjórnarmyndunarumboðið en Miðflokkurinn er hluti af vinstri blokkinni. Ætlaði Ringqvist að freista þess að mynda miðjustjórn og fá forystumenn Frjálslyndra og Kristilegra demókrata úr hægriblokkinni til að hoppa í eina sæng með Miðflokknum, Græningjum og Jafnaðarmönnum. Vinstriflokkurinn yrði þá utan stjórnar. Fljótlega varð þó ljóst að myndun slíkrar stjórnar var vonlaust verkefni. Kom það því töluvert á óvart þegar Norlén þingforseti ákvað engu að síður að bera fram tillögu um Ringqvist sem forsætisráðherra í fimm flokka stjórn, sérstaklega þar sem Ringqvist virtist lítinn áhuga hafa á því sjálf að stýra slíkri stjórn. Hefur Norlén sagt að hann vilji að stjórnarmyndunarviðræður séu leiddar til lykta með atkvæðagreiðslu í þinginu og með því vilji hann setja pressu á þingmenn því möguleikunum fækki með hverri kosningu. Niðurstöður þingkosningaþegar 100% atkvæða hafa verið talin Mun stjórnarmyndunarumboðið nú færast til Ulf Kristersson, starfandi forsætisráðherra og formanns hófsama hægriflokksins Moderaterna, en þingforseti tilkynnti að það myndi gerast ef tillaga hans um Elisabeth Thand Ringqvist sem forsætisráðherra yrði felld í dag. Kristersson mun freista þess að sannfæra Ringqvist og liðsmenn hennar í Miðflokknum um að ganga til liðs við hægriblokkina. Til þess að það gangi upp þarf þó mikið að gerast en Ringqvist hefur verið hörð á því að starfa ekki í ríkisstjórn með fjarhægriflokknum Svíþjóðardemókrötum sem er hluti af hægriblokkinni og hafði fyrir kosningarnar gert kröfu um ráðherrastóla. Að undanförnu hafa þó heyrst raddir innan úr Miðflokknum um að flokkurinn ætti að leita til hægri auk þess sem forystumenn Svíþjóðardemókrata hafa tjáð sig á þeim nótum að ætla megi að þeir myndu mögulega sætta sig við að vera aðeins stuðningsflokkur slíkrar stjórnar. Fær Kristersson viku til að reyna að mynda starfhæfa stjórn og á hann að greina frá niðurstöðum viðræðna næstkomandi þriðjudag.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Innlent Fleiri fréttir Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Sjá meira