Sport

„Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðru­vísi“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Snorri Steinn er landsliðsþjálfari Íslands í handbolta.
Snorri Steinn er landsliðsþjálfari Íslands í handbolta. vísir/sigurjón

„Þetta er smá óþægilegt. Þeir voru náttúrulega með á síðasta stórmóti en eru að koma með svona töluvert breytt lið og einhverja átta, níu nýja leikmenn,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari Ísland fyrir leikinn gegn Úkraínu sem fram fer í Laugardalshöllinni í kvöld.

Um er að ræða fyrsta leik Íslands í undankeppni EM sem fram fer á Spáni árið 2028. Um helgina mætir Ísland síðan Eistlandi í riðlinum.

„Þeir eru samt með þessa útilínu sem var allavega á EM þannig að við getum svona myndað okkur einhverja skoðun á þeim. En þeir eru núna með betra lið og ég segi það bara með fullri virðingu fyrir þeim en ef við gerum hlutina vel og erum eins og menn og erum einbeittir og náum fram okkar leik þá veit ég að við vinnum.“

Vildi fá þá ferska á æfingu

Snorri ræddi leikinn fyrir æfingu landsliðsins á mánudaginn. Þá voru nokkrir lykilleikmenn liðsins ekki mættir til landsins þar sem þeir spiluðu með sínu félagsliði kvöldið áður, eða á sunnudagskvöldinu.

„Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi en svona er bara þessi bransi og þetta eru náttúrulega bara atvinnumenn og spila töluvert mikið af leikjum og þeir þurfa bara að koma þeim fyrir einhvers staðar. Ég þekki þetta ágætlega og svona er þetta búið að vera í einhvern tíma. Ég vil líka bara hafa þetta svona í staðinn fyrir að fá þá hingað þreytta í kvöld og æfingin yrði þá svona lala. Ég tek bara góða og þétta æfingu og fæ hjálp frá strákum úr Olísdeildinni og svo mæta þeir bara ferskir.“

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni við Snorra. 

Klippa: Snorri segir Úkraínumenn vera með gjörbreyttan hóp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×