Sport

Jake Paul lofar að hætta í hnefa­leikum ef hann tapar fyrir Doumbe

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jake Paul ræddi komandi bardaga og að venju vantaði ekki yfirlýsingarnar.
Jake Paul ræddi komandi bardaga og að venju vantaði ekki yfirlýsingarnar. Jake Paul/Youtube

Boxbardagi Jake Paul á aðfangadag gæti verið sá síðasti á ferlinum ef marka má orð hans sjálfs. Paul lofar að „leggja hanskana á hilluna“ ef hann tapar fyrir Cedric Doumbe sem er fyrrverandi heimsmeistari í sparkboxi.

Paul mun mæta Doumbe í viðurkenndum tíu lotu bardaga í léttþungavigt 24. desember í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta verður fyrsti bardagi hins 29 ára gamla Pauls síðan hann kjálkabrotnaði þegar hann var rotaður af Anthony Joshua í desember í fyrra.

„Ef hann vinnur legg ég hanskana á hilluna og læt þetta gott heita,“ sagði Paul í myndbandi sem birtist á YouTube-rás hans. 

„En ef hann tapar, þá verður maðurinn sem kallar sig „þann besta“ barinn í klessu af YouTube-stjörnu með títankjálka. Svo, Cedric Doumbe – ég, Jake Joseph Paul, mun rota þig, niðurlægja þig og sigra þig á aðfangadag. Þessi bardagi fer ekki allar loturnar og einhver verður svæfður í Mið-Austurlöndum, og það er ekki jólasveinninn,“ sagði Paul.





Doumbe, sem er frá Frakklandi, er fyrrverandi heimsmeistari í sparkboxi og með 6-1 feril sem atvinnumaður í blönduðum bardagaíþróttum. Hann hefur aðeins einu sinni keppt í hnefaleikum sem atvinnumaður og fagnaði þá sigri árið 2015. Hinn 34 ára gamli Doumbe hefur ekki keppt í neinni bardagaíþrótt síðan í maí 2024.

Paul viðurkenndi að hann hefði íhugað að hætta á síðasta ári í kjölfar kjálkameiðslanna, sem kröfðust nokkurra skurðaðgerða í desember og febrúar.

„Satt best að segja, eftir Joshua hugsaði hluti af mér um að hætta og keppa aldrei aftur í hnefaleikum,“ sagði Paul. 

„Hann braut á mér kjálkann. Ég er með tvær títanplötur í munninum. Ég gat ekki borðað í margar vikur. Ég gat ekki einu sinni talað eða brosað að bankayfirlitunum mínum. Ég lá bara í rúminu kvöld eftir kvöld og spurði sjálfan mig: „Vil ég enn þá gera þetta?“ Já, auðvitað vil ég enn þá gera þetta. Ég er enginn aumingi.“

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×