Viðskipti innlent

For­stjóri og stjórnar­for­maður kveðja ÍAV

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þóroddur Ottesen er forstjóri Íslenskra aðalverktaka. Hann lætur af störfum þann 15. janúar og tekur þá við öðru starfi.
Þóroddur Ottesen er forstjóri Íslenskra aðalverktaka. Hann lætur af störfum þann 15. janúar og tekur þá við öðru starfi. Sigurjón Ólason

Þóroddur Ottesen Arnarson forstjóri og Sigurður Ragnarsson stjórnarformaður Íslenskra aðalverktaka láta senn af störfum hjá verktakafyrirtækinu eftir margra ára starf. Við báðum hlutverkum tekur framkvæmdastjóri hjá móðurfélagi Íslenskra aðalverktaka.

Þóroddur staðfestir í samtali við Vísi að breytingarnar hafi verið tilkynntar starfsmönnum fyrir helgi. Þóruddur hefur ráðið sig til starfa hjá Stólpa að því er fram kemur í tilkynningu en mun stýra Íslenskum aðalverktökum til 15. janúar þegar Daniel Grad, forstjóri Marti AS í Noregi, tekur við tímabundið en til stendur að ráða í framhaldinu annan forstjóra.

Sigurður Ragnarsson hefur verið lengi í bygginga- og verktakabransanum. Hann kveður nú ÍAV eftir fimmtán ára starf.

Grad, sem er 35 ára Þjóðverji, mun sömuleiðis taka við sem stjórnarformaður ÍAV og verður því í einhvern tíma starfandi stjórnarformaður og forstjóri.

Ljóst er að með brotthvarfi Þórodds og Sigurðar renna upp mikil tímamót hjá ÍAV. Sigurður var forstjóri til ársins 2021 þegar Þóroddur, sem þá starfaði sem fjármálastjóri, tók við starfinu og Sigurður varð stjórnarformaður.

Íslenskir aðalverktakar hafa frá árinu 2010 verið í eigu Marti Contractors Ltd. í Sviss. Marti AS í Noregi, þaðan sem Grad kemur, er því systurfélag Íslenskra aðalverktaka í eigu svissneska móðurfélagsins.

Daniel Grad verður í lykilstöðu hjá ÍAV sem bæði forstjóri og stjórnarformaður frá og með 15. janúar. Til stendur að ráða annan forstjóra á nýju ári.

Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Grad verið á Íslandi undanfarna mánuði að taka út rekstur Íslenskra aðalverktaka. Meðal þess sem hann hefur lagt áherslu á er samtöl við millistjórnendur og starfsmenn hjá fyrirtækinu til að rýna í reksturinn.

Rúmlega tuttugu var sagt upp hjá fyrirtækinu í september og þá sagði Þóroddur forstjóri að fyrirtækið hefði verið að fækka starfsmönnum töluvert, bæði vegna þess að minna væri að gera en einnig vegna endurskipulagningar í rekstri. Þá kom fram að um tíu prósentum starfsmanna hefði verið sagt upp og samkvæmt því starfa í dag um 180 hjá fyrirtækinu.

Íslenskir aðalverktakar voru stofnaðir 31. maí 1997 með yfirtöku ákveðinna eigna og skuldbindinga, ásamt öllum verksamningum Íslenskra aðalverktaka sf. sem þá höfðu starfað sem verktakar á varnarsvæðum hérlendis allt frá 1954.

Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að frá þeim tíma til dagsins í dag hafi orðið verulegar breytingar á rekstri og stjórnskipulagi félagsins en félagið stefnir markvisst að því að vera alhliða fyrirtæki á öllum sviðum mannvirkjagerðar bæði hvað varðar nýsköpun, fjármögnun og framkvæmdir.

„ÍAV er eitt stærsta og öflugasta verktakafyrirtæki landsins og er félagið öflugur þátttakandi á öllum sviðum byggingariðnaðar og mannvirkjagerðar hvort sem um er að ræða íbúðarhúsnæði, atvinnuhúsnæði, opinberar byggingar, jarðgangagerð, jarðvinnu eða gatnagerð.“

ÍAV hf. er nú alfarið í eigu Marti Holding AG frá Sviss sem var stofnað 1922. Marti Holding á um 80 fyrirtæki víðs vegar um heim sem eru öll rekin sem sjálfstæðar einingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×