Lífið samstarf

Í dag verður stuð! Orku­salan frum­sýnir tvær tónleikamyndir í kvöld

Orkusalan
Úlfur úlfur og Inspector Spacetime tróðu upp í tveimur virkjunum.
Úlfur úlfur og Inspector Spacetime tróðu upp í tveimur virkjunum.

„Hvers vegna ætti raforkusali að framleiða tónleikamyndir? Jú, við erum að færa fólki stuð frá þeim stað þaðan sem hið eiginlega stuð, rafmagnið, kemur. Það sem margir ekki vita er að Orkusalan á sex virkjanir hringinn í kringum landið," segir Helga Beck, markaðsstjóri Orkusölunnar en Orkusalan frumsýnir tvær tónleikamyndir í Bíó Paradís í kvöld klukkan 18.

„Úr verður óvenjulegt heimboð í stórbrotnu umhverfi tveggja virkjana þar sem tónlistarfólk spilar live tónleika ásamt því að við fléttum inn áhugaverð samtöl um sköpun og hvernig þau viðhalda stuðinu.“  

„Úlfur Úlfur komu fram í Skeiðsfossvirkjun í Fljótunum, sem er þeirra heimasveit, með þeim í för voru bæði St. Pete og Kött Grá Pjé. Þar myndast ótrúlegt samtal um vináttuna og tengsl þeirra við heimasveitina,“ segir Helga.

„Inspector Spacetime tóku yfir Grímsárvirkjun á Egilsstöðum og fluttu þar þeirra nýjasta efni sem eru algjörir smellir. Umhverfið þar er ótrúlegt en virkjunin og öll mannvirkin í kring eru hönnuð af engum öðrum en Sigvalda Thorsteinsson, arkitekt.“ 

„Dýnamíkin á milli þeirra þriggja er mögnuð og skemmtilegt að segja frá því að Elías er í raun virkjanabarn, pabbi hans hefur unnið sem stöðvarstjóri í mörg ár.“
Helga Beck, markaðsstjóri Orkusölunnar.

„Við fengum til liðs við okkur einvala lið úr kvikmyndageiranum. Erlendur Sveinsson leikstýrir, Baldvin Vernharðs er DOP en þeir hafa unnið með mörgum af flottustu tónlistarmönnum landsins. Það er því öllu tjaldað til. Verkefnið hefur verið samþykkt inn til sýningar hjá Sjónvarpi Símans og hefst þar í næstu viku.“

Nýtt app á leiðinni

„Það er alltaf nóg um að vera hjá Orkusölunni, til viðbótar við frumsýninguna erum við að setja í loftið nýtt hleðsluapp sem verður aðgengilegt almenningi á næstu vikum. Hleðslunet Orkusölunnar er ört stækkandi og nær nú hringinn í kringum landið.“ 

„Til að geta þjónustað okkar viðskiptavini enn betur höfum við ákveðið að setja í loftið okkar eigið app sem á kemur rafbílaeigendum landsins í gott stuð á einfaldan hátt!“





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.