Tók eigin frama fram yfir velferð sjúklings í plastbarkamálinu

Ekkja manns, sem fékk ígræddan plastbarka árið 2011 og lést þrjátíu mánuðum síðar, fór með fullnaðarsigur af hólmi í deilu við ríkið fyrir héraðsdómi í dag. Bótaskylda ríkisins vegna tjóns og miska ekkju mannsins og þriggja sona hjónanna var viðurkennd. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður ekkjunnar, segir ekki búið að taka ákvörðun um endanlegar fjárkröfur fjölskyldunnar en mögulegt er að ríkið áfrýi dómnum. . Í dóminum segir að svo virðist sem Tómas hafi látið eigin metnað um frama trufla dómgreind sína fremur en að hafa hagsmuni sjúklingsins í fyrirrúmi.

0
01:22

Vinsælt í flokknum Fréttir