Skipstjóri Hondious lýsir martraðakenndri reynslu
Frönsk kona og Bandaríkjamaður, sem flutt voru í land af hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius, hafa nú greinst með Hantaveiruna. Konan er sögð alvarlega veik og mun henni hafa hrakað mikið síðasta sólarhringinn.