Skotárás í grunnskóla og á heimili í Kanada
Níu eru látnir og tuttugu og fimm særðir eftir skotárás í grunnskóla og á heimili í smábænum Tumbler Ridge í Bresku-Kólumbíu í Kanada. Þetta er mannskæðasta skotárás í landinu í áratugi. Sjö létust í árásinni í skólanum en aldur þeirra hefur ekki verið gefinn upp, og tveir fundnust látnir í heimahúsi.