Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, klökknaði þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir flutti kveðjuræðu á Alþingi í dag. Það gerði hún líka þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir kvaddi Alþingi fyrir örfáum vikum. Innlent 3.6.2026 11:21
Áslaug Arna hættir á Alþingi Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur ákveðið að láta af þingmennsku. Hún hefur setið á þingi frá árinu 2016 og hefur gengt embætti dómsmálaráðherra, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Innlent 3.6.2026 11:06
Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Stjórnarmeirihlutinn í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis leggur til í nefndaráliti um samgönguáætlun að staðið verði við þá forgangsröðun jarðganga að Fljótagöng verði í fyrsta sæti en Súðavíkurgöng og Fjarðagöng í öðru til þriðja sæti. Talsmaður meirihlutans segir kaflaskil framundan í samgöngumálum á Íslandi. Innlent 2.6.2026 23:05
Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Það verður mikið högg fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei við aðildarviðræðum við Evrópusambandið í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Niðurstaðan muni hafa mikil áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið að sögn stjórnmálafræðings og þar verði Samfylkingin ekki undanskilin þrátt fyrir að hún hafi ekki beitt sér mikið í málinu. Innlent 1. júní 2026 21:00
Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ Snorri Másson þingmaður sem blístrað var á og hrópað á meðan hann stóð í ræðustól Alþingis segist skilja að fólk hafi mikla sannfæringu fyrir sínum málstað en að jaðarskoðanir á hlutverki stjórnvalda í landamæraeftirliti vegi þyngra en hagsmunagæsla barna í augum þess hóps sem hefur lagst hvað harðast gegn frumvarpinu. Innlent 1. júní 2026 19:50
Flokkur fólksins mælist utan þings Flokkur fólksins mælist með fjögurra prósenta fylgi samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup og því utan þings yrði gengið til kosninga í dag. Innlent 1. júní 2026 18:32
Mótmælendur trufluðu þingfund Mótmælendur trufluðu þingfund dagsins þegar Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, tók til máls um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Hlé var gert á fundinum. Innlent 1. júní 2026 15:46
„Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Diljá Mist Einarsdóttir, sem barist hefur fyrir afnámi jafnlaunavottunarinnar lengur en hún kærir sig um að muna, fagnar því að þetta skuli nú loks vera orðið að veruleika. Málið var afgreitt á þingi fyrir hádegi í dag. Innlent 1. júní 2026 14:46
Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Jón Pétur Zimsen, Sjálfstæðisflokki, gerði fjárframlög ríkisins til framhaldsskóla að umfjöllunarefni í óundirbúnum fyrirspurnum. Til svara var Ragnar Þór Ingólfsson, staðgengill Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, en Jón Pétur taldi svör hans ekki margra fiska virði. Innlent 1. júní 2026 13:29
Loka skrifstofum vegna óvissu um framtíð heilbrigðiseftirlits Skrifstofur Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verða lokaðar frá klukkan tíu í fyrramálið til klukkan 13 sama dag vegna fundar starfsfólks sem Félag íslenskra náttúrufræðinga, FÍN, hefur boðað til vegna óvissu í greininni. Innlent 31. maí 2026 14:14
Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar hefur fjölgað um 290 prósent á síðustu fimm árum. Á sama tíma hefur þeim einnig fjölgað sem sækja um ríkisborgararétt til Alþingis. Innlent 30. maí 2026 14:45
Þrír mánuðir til stefnu Formaður Evrópuhreyfingarinnar segir það gleðitíðindi fyrir alla þjóðina að greidd verði atkvæði um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eftir þrjár mánuði. Formaður Heimssýnar segir óljóst hvað bíði kjósi þjóðin já. Innlent 29. maí 2026 12:15
Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Það að fá „leynigögn“ afhent var lykilþáttur í því að Miðflokkurinn hleypti þingsályktunartillögu um ESB-þjóðaratkvæðagreiðslu í gegn um þingið í dag, að sögn þingmanns flokksins. Innlent 28. maí 2026 22:06
Íslendingar segja já eða nei 29. ágúst Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innlent 28. maí 2026 17:36
Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Þingmenn takast á um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á aukaþingfundi í dag. Fylgjast má með fundinum í beinni á Vísi. Innlent 28. maí 2026 13:30
Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur samkomulag náðst um að þingheimur greiði síðar í dag atkvæði um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB. Málið er nú til umræðu á aukaþingfundi. Innlent 28. maí 2026 12:02
Mikil sorg á Alþingi Þrösturinn sem legið hefur á eggjum í Alþingisgarðinum er horfinn úr hreiðrinu ásamt eggjunum fjórum. Þingkona segir málið hryggja sig meira en eðlilegt sé, svartur köttur sem heldur til í garðinum liggi undir grun. Lífið 28. maí 2026 11:52
Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Aukafundur hefur verið boðaður á Alþingi í dag fyrir hádegið þar sem umræðum um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við ESB verður haldið áfram. Innlent 28. maí 2026 07:18
Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Þingmenn hafa verið boðaðir á aukaþingfund klukkan 10.30 á morgun, fimmtudag. Þar halda þeir væntanlega áfram að ræða um atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, en þingmenn Miðflokksins eru einir eftir á mælendaskrá. Innlent 27. maí 2026 22:26
Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Miðflokksmenn hafa skipst á að koma í pontu í þingsal í dag til að ræða þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ljóst þykir að meirihlutanum liggur á að koma málinu í gegnum þingið svo fyrirhuguð dagsetning atkvæðagreiðslu standist. Innlent 27. maí 2026 21:00
„Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif „Það er augljóst að þetta kemur frá ákveðnum stöðum erlendis frá til þess að hafa áhrif á innlenda umfjöllun [um þjóðaratkvæðagreðislu um Evrópusambandið],“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um svokallaða „Viðreisnarbotta“. Innlent 27. maí 2026 20:30
Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Mikil spenna ríkir þessa dagana á Alþingi, ekki vegna umræðu um ESB, heldur vegna þess að lítill fugl hefur lagt í mikla hreiðurgerð í stiga þinghússins. Lífið 27. maí 2026 20:17
Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í október Umræðum um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verður fram haldið á þingfundi í dag klukkan þrjú. Stjórnarandstaða leggur til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað og að gerðar verði frekari breytingar á spurningunni. Innlent 27. maí 2026 08:02
Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Forsvarsmenn félagsins VÁ! – félags um um vernd fjarðar mættu í dag á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Tilefnið er frumvarp til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga. Fulltrúar VÁ! bentu á að um 70 prósent af núverandi sjókvíaeldi er ólögmætt vegna þess að starfsemi þess gengur í berhögg við núgildandi lög um vitamál. Innlent 26. maí 2026 14:36