„Pabbi var reiður yfir þessu alla ævi“ Daði Már Kristófersson er frjálslyndur maður sem vill að ríkið skipti sér ekki af fólki. Hann er nýr fjármálaráðherra og hitti Sindri Sindrason hann í morgunkaffi í Íslandi í dag í síðustu viku. Lífið 11. febrúar 2025 13:32
Satt eða logið um stefnuræðu forsætisráðherra? „Þjóðin kaus breytingar og breytingarnar byrja strax,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í umræðum á Alþingi í gær. Hann skaut föstum skotum að formanni Framsóknarflokksins og stjórnarandstöðunni en sitt sýnist hverjum um hvort gagnrýnin hafi verið verðskulduð. Innlent 11. febrúar 2025 13:16
Ríkisstjórnin markalaus með sitt nýfengna vald Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að umræða síðustu vikna bendi til að hin nýja ríkisstjórn sé „óþægilega markalaus“ þegar kemur að því að fara með sitt nýfengna vald. Innlent 11. febrúar 2025 08:25
Segir fullan einhug um öll mál hjá samhentri ríkisstjórn Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti sína fyrstu stefnuræðu á Alþingi í kvöld. Í ræðunni sagði hún fulla einingu í ríkisstjórn um þau málefni sem fram komi í þingmálaskrá og kynnti næstu skref stjórnarinnar. Hún sagði þjóðina í senn vera heppna með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, og mega vera stolta af Ingu Sæland, samráðherra hennar í ríkisstjórn. Innlent 10. febrúar 2025 20:52
Stefnuræða forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flytur sína fyrstu stefnuræðu í embætti í kvöld. Hægt er að fylgjast með ræðunni og umræðum um hana í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 10. febrúar 2025 19:10
Miðflokkurinn gagnrýnir að Daði Már flytji tölu Stefnuræða Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra er á dagskrá í kvöld. Svo virðist sem Miðflokkurinn sé kominn í stjórnarandstöðuham nú þegar því hann gerir athugasemd við það að meðal ræðumanna sé Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Innlent 10. febrúar 2025 14:00
Svona verða umræður um stefnuræðu Kristrúnar í kvöld Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana fara fram á Alþingi í kvöld, fimm dögum síðar en áætlað var. Kristrún Frostadóttir átti að flytja fyrstu stefnuræðu sína í embætti forsætisráðherra á fimmtudaginn í síðustu viku en því var frestað vegna veðurs. Innlent 10. febrúar 2025 10:05
Endurgreiðsla og mögulegt gjaldþrot flokkanna andstætt markmiðum laganna Stjórnmálaflokkar verða ekki krafðir um endurgreiðslu á hundruðum milljóna króna styrkjum þrátt fyrir að þeir hafi ekki uppfyllt lagaskilyrði um að vera skráðir sem stjórnmálasamtök. Fjármálaráðherra tók þessa ákvörðun á grunni tveggja álitsgerða en hann segir fjármálaráðuneytið hafa brugðist skyldum sínum og að krafa um endurgreiðslu myndi ganga gegn markmiðum laga um styrkina. Innlent 7. febrúar 2025 20:02
Aðstoðarmennirnir og ástin Ráðherrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa verið að ráða sér aðstoðarmenn undanfarnar vikur. Í einhverjum tilfellum má segja að ekki sé leitað langt yfir skammt. Sumir aðstoðarmenn tengjast ráðherrum sökum þess að ástarguðinn Amor skaut örvum sínum og hitti beint í mark. Lífið 7. febrúar 2025 14:46
Ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Birkir Jón Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar formanns Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram á vef Alþingis. Innlent 7. febrúar 2025 14:23
Hættir sem formaður Rafiðnaðarsambandsins Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, er hættur sem formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Hann hefur gegnt embættinu frá 2011. Innlent 7. febrúar 2025 13:52
Verða ekki krafin um endurgreiðslu Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir að ráðuneytið hafi brugðist vegna styrkveitinga til stjórnmálasamtaka, sem voru ekki rétt skráð samkvæmt lagabreytingum frá 2022. Ekki séu þó forsendur fyrir endurgreiðslukröfu. Innlent 7. febrúar 2025 11:55
Stjórnarandstaðan hræðist ekkert meðan ríkisstjórnin þori ekki út úr húsi Þingmenn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks héldu partý í gær til að stilla saman strengi fyrir átök komandi þingvetrar. Það var glatt á hjalla, áfengi á boðstólum og karíókístuð þó sumir þingmenn hefðu ekki látið sjá sig. Lífið 7. febrúar 2025 11:31
Eiga eftir að taka afstöðu til birtingar lista yfir umsækjendur Stjórn Mannréttindastofnunar Íslands á eftir að taka afstöðu til þess hvort upplýst verður um umsækjendur um embætti framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Innlent 7. febrúar 2025 10:55
Hafna því að hafa boðið nokkra launahækkun Ásthildur Lóa Þórsdóttir, menntamálaráðherra, tekur fyrir að hún eða starfsmaður ráðuneytisins hafi um helgina gefið kennurum vilyrði fyrir launahækkunum en síðan dregið loforðið til baka. Innlent 6. febrúar 2025 17:44
Krefjast svara hvort ráðherra hafi skipt sér af kjaraviðræðum Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna þriggja krefja forsætisráðherra um svör hvort menntamálaráðherra eða starfsmaður á hennar vegum hafi skipt sér af kjaraviðræðum kennara við sveitarfélögin liðna helgi. Innlent 6. febrúar 2025 14:49
Stefnuræðu frestað til mánudags Stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra hefur verið frestað til mánudagsins 10. febrúar og hefjast regluleg þingstörf degi síðar. Ræðuna átti að halda í gærkvöldi en var frestað vegna rauðrar viðvörunar og hættustigs. Innlent 6. febrúar 2025 08:50
Stefnuræðu Kristrúnar frestað Stefnuræðu Kristrúnar Frostadóttur, nýkjörins forsætisráðherra, hefur verið frestað vegna veðurs. Hún greindi frá þessu á Facebook. Innlent 5. febrúar 2025 16:13
Fyrrverandi ráðherra Viðreisnar fordæmir orð Sigurjóns Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi ráðherra Viðreisnar, fordæmir fortakslaust orð Sigurjóns Þórðarsonar, þingmanns ráðherra Flokks fólksins um að skoða beri fjárframlög til Morgunblaðsins í kjölfar umfjöllunar þeirra. Innlent 5. febrúar 2025 12:40
Víðir hrasaði á þingi: Frjálsíþróttirnar björguðu „Ég segi að gamlir takar síðan ég æfði frjálsar, þar sem ég var sérlega góður í langstökki án atrennu hafi komið sér vel þarna,“ segir Víðir Reynisson þingmaður Samfylkingarinnar sem féll við þegar hann rak sig í kantinn á ræðupúlti Alþingis við útbýttun þingsæta í gær. Lífið 5. febrúar 2025 12:05
Þau tala í umræðum um stefnuræðu Kristrúnar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra mun flytja sína fyrstu stefnuræðu sem forsætisráðherra á Alþingi klukkan 19:40 í kvöld. Í kjölfarið munu fulltrúar þeirra sex flokka sem eiga sæti á þingi flytja ræður. Innlent 5. febrúar 2025 11:33
Gagnrýnir deilur um þingflokksherbergi á meðan bráðamóttakan er yfirfull „Nýverið deildu Samfylking og Sjálfstæðisflokkur um hver ætti að fá stærsta þingflokksherbergið en það hefur víst sögulegt og tilfinningalegt gildi fyrir einhverja. Á sama tíma er Landspítali á rauðu stigi, deildir og gjörgæslur yfirfullar og um 50 manns bíða innlagnar á Bráðamóttökunni.“ Innlent 5. febrúar 2025 07:03
Aðalsteinn aðstoðar Þorgerði Aðalsteinn Leifsson, fyrrverandi ríkissáttasemjari, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Innlent 4. febrúar 2025 17:48
Minnti þingmenn á að vinna saman fyrir þjóðina Forseti Íslands ávarpaði þingmenn við setningu Alþingis í dag. Hún lagði áherslu á samvinnu þingmanna þvert á flokka. Þingmenn standi frammi fyrir breyttum tímum. Innlent 4. febrúar 2025 17:47
Bjarni og Þórður búnir að segja af sér Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, og Þórður Snær Júlíusson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og verðandi framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, hafa sagt af sér þingmennsku. Innlent 4. febrúar 2025 17:39
Tískan við þingsetningu: Snjórinn stoppaði ekki flottheitin Alþingi var sett í dag við hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni í kjölfar eftirminnilegra kosninga 2024. Margir nýir þingmenn mæta til leiks í fyrsta sinn og má skynja eftirvæntingu í loftinu. Eftirfarandi spurning brennur eflaust á einhverjum lesendum: Hverjir klæddust hverju? Tíska og hönnun 4. febrúar 2025 16:18
Halla forseti rokkar svart og hvítt Halla Tómasdóttir forseti Íslands mætti í stílhreinum fatnaði á þingsetninguna í dag. Hún valdi hvítan rúllukragabol við hvítan jakka sem er algjörlega í anda Höllu og má segja að hún hafi klætt sig í stíl við snjókomuna. Tíska og hönnun 4. febrúar 2025 13:33
Svona var stemmningin við setningu Alþingis Þingsetningarathöfnin hefst klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, starfsaldursforseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Athöfnin verður í beinni á Vísi. Innlent 4. febrúar 2025 12:54
Kjarninn farinn úr Heimildinni Arnar Þór Ingólfsson blaðamaður hefur söðlað um, hann er hættur á Heimildinni og er hann nú orðinn starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar. Viðskipti innlent 4. febrúar 2025 10:55
Ráðin til Samfylkingarinnar Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður Pírata sem skipti síðar yfir í Samfylkinguna, hefur verið ráðin starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar. Þetta kemur fram á vef Alþingis. Innlent 4. febrúar 2025 10:40