Bretland

Bretland

Höfuðborg: London. Mannfjöldi: 69,5 milljónir (2025). Flatarmál: 243.610 ferkílómetrar.

Fréttamynd

Marteinn Helgi Sigurðs­son er látinn

Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum við Cambridge-háskóla, er fallinn frá, fimmtíu og fimm ára að aldri. Heimildarmyndin Veðurskeytin er byggð á reynslu Marteins en hann greindist skyndilega með geðhvörf fyrir nokkrum árum og fjallar myndin um vegferð hans í kjölfar greiningarinnar. Marteinn greindist með krabbamein á lokastigi fyrir um tveimur árum og voru honum einungis ætlaðir nokkrir dagar ólifaðir.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Bretar sam­þykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu

Yfirvöld í Bretlandi eru þau fyrstu í Evrópu til að samþykkja sölu þyngdarlosunarlyfsins Wegovy í pilluformi. Lyfið er framleitt af danska fyrirtækinu Novo Nordisk en hingað til hafa neytendur þurft að sprauta því í sig.

Erlent
Fréttamynd

Bretar setja ofan í við Vance vegna undir­róðurs

Varaforsætisráðherra Bretlands segist hafa gert J.D. Vance, varaforseta Bandaríkjanna, ljóst að það hafi verið rangt af honum að kenna innflytjendum um dráp á ungum manni þar. Bandaríkjastjórn hefur notað drápið sem skotfæri í undirróður gegn innflytjendastefnu Evrópuríkja.

Erlent
Fréttamynd

Anthony Head er látinn

Breski leikarinn Anthony Head er látinn, 72 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Buffy the Vampire Slayer og Ted Lasso.

Lífið
Fréttamynd

Hafði leigu­tekjur af hús­næði krúnunnar

Andrew Mountbatten-Windsor hafði þrjá bústaði í eigu bresku krúnunnar í útleigu þar til í apríl síðastliðnum og hafði af þeim leigutekjur sem runnu til hans en ekki krúnunnar. Þetta leiðir skýrsla bresku ríkisendurskoðunarinnar í ljós, sem ráðist var í vegna hneykslismálsins sem tengist vináttu Andrew við milljarðamæringinn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein.

Erlent
Fréttamynd

Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björns­dóttur

Hildur Björnsdóttir tók formlega við sem borgarstjóri Reykjavíkur í gær en hún hefur verið oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík síðustu fjögur ár og borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Það er þó ýmislegt sem ekki allir vita um nýja borgarstjórann sem á fjögur börn, er með þrjár háskólagráður og ber sérkennilegt gælunafn.

Lífið
Fréttamynd

Mót­mæli og á­tök vegna dauða Henry Nowak

Mörg hundruð mótmælendur söfnuðust saman við lögreglustöð í Southampton á Bretlandseyjum í gær, til að lýsa óánægju sinni með framgöngu lögreglu gagnvart Henry Nowak. Þá kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu við heimili morðingja Nowak.

Erlent
Fréttamynd

Um­deildum vinstrimönnum meinuð koman til Bret­lands

Bresk stjórnvöld hafa meinað hinum umdeilda bandaríska áhrifavaldi Hasan Piker og frænda hans, stjórnmálaskýrandanum Cenk Uygur, komu til Bretlands. Frændurnir segja að ákvörðunin hafi verið tekin vegna gagnrýni þeirra á ísraelsk stjórnvöld. Bresk stjórnvöld segja það ekki þjóna almannahag að þeir komi til landsins.

Erlent
Fréttamynd

Hita­met í maí slegið í Bret­landi

Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands.

Erlent
Fréttamynd

„Auð­veldara hér að vera bara eins og maður er“

„London er þannig borg að maður sér eitthvað undarlegt nánast daglega,“ segir vöruhönnuðurinn Theodóra Alfreðsdóttir sem hefur verið búsett í stórborginni í fjórtán ár og hefur vakið athygli og lukku fyrir eigin hönnunarlínu. Theodóra er fædd árið 1986 og hefur alla tíð verið skapandi. Hún ræddi við blaðamann um lífið úti og listina.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Til­kynntu ó­vart dauða konungsins

Breska útvarpsstöðin Radio Caroline, sem útvarpar til Miðhéraðanna og Suður-Englands, rauf spilun „What's Up“ með 4 Non Blondes til að greina ranglega frá dauða Karls III Bretakonungs, spila „God Save the King“ og minnast hans með fimmtán mínútna þögn

Lífið
Fréttamynd

„Bret­land var gert fyrir lofts­lag sem heyrir sögunni til“

Sérfræðingar segja stjórnvöld á Bretlandseyjum munu þurfa að koma upp loftkælingu á öllum umönnunarheimilum og sjúkrahúsum á næstu tíu árum og í skólum á næstu 25 árum. Þeir segja hlýnun muni leiða til þess að úrræði á borð við að opna glugga, draga fyrir og rækta tré til að búa til skugga ekki lengur munu duga til.

Erlent
Fréttamynd

Lammy segir ekkert farar­snið á Starmer

David Lammy, dómsmálaráðherra Bretlands, segir forsætisráðherrann Keir Starmer ekki hafa í hyggju að segja af sér né leggja fram drög að áætlun um að víkja. Lammy, sem er varaforsætisráðherra og einn nánasti bandamaður Starmer, hefur hvatt flokkssystkin sín til að hætta að hugsa um mögulegt leiðtogakjör og segir umræðuna um það „sjálfsmark“.

Erlent