

Donald Trump
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Jimmy Carter efast um lögmæti kjörs Trumps
Ummæli Carters hafa vakið mikla athygli en virtir blaða- og fréttamenn eins og Nicholas Kristof hjá New York Times og Maggie Haberman, sem er einnig dálkahöfundur og blaðamaður New York Times, hafa deilt frásögninni.

Ólafur Ragnar segir Trump fyndinn
Trump hefur í tvígang tíst illskiljanlegu myndbandi með óljósum skilaboðum, án nokkurra skýringa.

Trump virtist gera grín að kosningaafskiptum Rússa með Pútín
Þegar bandarískir blaðamenn spurðu út í kosningaafskiptin virtist Trump skipa Pútín að skipta sér ekki af í gríni.

Demókratar samþykktu landamærafrumvarp með semingi
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumvarp sem mun verða til þess að 4, 6 milljörðum dala verður veitt til að takast á við þann mannfjölda sem freistar þess að komast yfir landamærin frá Mexíkó til Bandaríkjanna.

Vöktu athygli á mannréttindabrotum í veislu bandaríska sendiráðsins: „Þetta er gleðskapur, ekki pólitískur viðburður“
Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir voru gestir í 4. júlí veislu bandaríska sendiráðsins á Hilton í dag.

Staðfesta að þær hafi heyrt um meinta árás Trump
New York Times hefur rætt við tvær konur sem E. Jean Carroll trúði fyrir frásögn af kynferðislegri árás sem hún segist hafa orðið fyrir að hálfu Bandaríkjaforseta um miðjan 10. áratuginn.

Tekist á um heilbrigðis- og innflytjendamál í fyrstu kappræðum demókrata
Tíu frambjóðendur í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum öttu kappi í sjónvarpi í fyrsta skipti í gærkvöldi.

Trump gagnrýnir fyrirliða bandaríska kvennalandsliðsins
Donald Trump lét gamminn geysa í dag.

Öldungadeildin felldi frumvarp um mannúðaraðstoð á landamærunum
Öldungadeild Bandaríkjaþings greiddi atkvæði gegn því að ráðstafa 4,5 milljörðum Bandaríkjadala í mannúðaraðstoð á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Noah og Fallon þróuðu nýja týpu af Trump-eftirhermu
Það geta að hermt eftir frægum einstaklingum er eitthvað sem allir grínistar þurfa að geta gert án vandkvæða. Tveir af þekktustu grínistum heimsins, þáttastjórnendurnir Jimmy Fallon og Trevor Noah, eru löngu búnir að fínstilla hæfileikann, líkt og þeir sýndu á dögunum í The Tonight Show, spjallþætti Fallon.

Ameríski draumurinn sem drukknaði í Río Grande
Mynd af feðginum frá El Salvador sem drukknuðu við að reyna að komast til Bandaríkjanna hefur vakið athygli á hættunni sem fólk frá Rómönsku Ameríku leggur sig í við leit að betra lífi.

Mueller samþykkir að bera vitni fyrir þingnefnd
Formenn tveggja nefnda fulltrúadeildar Bandaríkjaþings stefndu fyrrverandi sérstaka rannsakandandum til að bera vitni um rannsókn hans og niðurstöður um afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016 og mögulega glæpi Trump forseta.

Trump segir að öllum árásum verði svarað af fullum krafti
Forseti Írans segir Bandaríkjaforseta stríða við þroskahömlun eftir tilkynningu um nýjar þvinganir. Sá bandaríski segir yfirlýsinguna móðgandi og segir að hverri árás á bandarískt skotmark verði svarað af fullum krafti, í sumum tilfellum af gjöreyðingarmætti.

Forstjóri tolla- og landamæraeftirlits Bandaríkjanna segir af sér eftir gagnrýni vegna aðbúnaðar flóttabarna
John Sanders, starfandi forstjóri tolla og landamæraeftirlits Bandaríkjanna hefur ákveðið að segja stöðu sinni lausri í kjölfar fréttaflutnings vestra um aðbúnað barna innflytjenda sem eru í haldi stofnunarinnar í Texas. Fréttir höfðu borist af því að sum börnin hafi verið látin dúsa í stöðinni í fleiri vikur og við illan aðbúnað. Aðstæður í innflytjendaskýlum sætir harðri gagnrýni réttindasamtaka og stjórnarandstæðinga.

Grisham skipuð fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins
Stephanie Grisham hefur verið skipuð nýr fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins og tekur hún við starfinu af Söruh Huckabee Sanders sem sagði af sér í mars síðastliðinn.

Íranir segja Hvíta húsið „andlega fatlað“ vegna refsiaðgerðanna
Forseti Írans segir Bandaríkjastjórn loka varanlega á viðræður með því að beita utanríkisráðherrann persónulega refsiaðgerðum.

Bandaríkjaforseti segir konuna sem sakar hann um nauðgun ekki hans „týpu“
Aftur ver forseti Bandaríkjanna sig fyrir ásökunum um kynferðislegt ofbeldi með því að gera lítið úr ásakandanum.

Ætla að beita Íran enn fleiri viðskiptaþvingunum
Bandaríkjastjórn hyggst beita Íran enn harðari viðskiptaþvingunum komi þarlend stjórnvöld ekki að samningaborðinu.

Trump nefndi vopnakaup Sáda þegar hann var spurður um rannsókn á Khashoggi
Trump ræddi málið í viðtali við NBC sjónvarpstöðina fyrr í dag og benti í því samhengi á mikil vopnaviðskipti Bandaríkjanna og Sádí-Arabíu. Kaup Sáda á bandarískum vopnum nemi háum fjárhæðum sem búi til störf í heimalandinu.

Hvíta húsið neitar að staðfesta "frábær“ bréfaskipti við Kim Jong-Un
Ríkisfréttastofan KCNA í Norður-Kóreu greinir frá því í dag að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi sent Kim Jong-Un leiðtoga Norður-Kóreu fádæma bréf. Í fréttinni um bréfið er vitnað í leiðtogann sem segir bréfið frábært og að hann muni gaumgæfa innihald þess alvarlega.

Gerðu tölvuárás á vopnakerfi íranska hersins
Bandaríkin gerðu tölvuárás á vopnakerfi Íran á fimmtudaginn í síðustu viku eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hætti við loftárásir á landið á síðustu stundu. Tölvuárásin lamaði tölvukerfi sem stýra eldflaugavarnakerfi Írans.

Trump frestar brottvísunum og gefur tveggja vikna frest til að leysa vandann
Bandaríkjaforseti Donald Trump hefur ákveðið að fresta brottrekstrarátaki sem hann hugðist koma af stað með það að markmiði að fækka ólöglegum innflytjendum innan landamæra Bandaríkjanna.

Trump kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn sem sakar hann um nauðgun
Bandaríkjaforseti, Donald Trump, kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn E. Jean Carroll sem sakaði forsetann í gær um nauðgun á tíunda áratug síðustu aldar.

Trump varar Íran við gjöreyðingu ef til stríðs kemur
Spenna milli ríkjanna hefur farið stigvaxandi undanfarið.

Pistlahöfundur sakar Trump um nauðgun
Trump þvertekur fyrir ásakanirnar en fjölmargar konur hafa hingað til sakað hann um kynferðislega áreitni eða ofbeldi.

NATO sagt stefna að því að viðurkenna geimhernað
Með þessu er talið að NATO vilji sannfæra Trump um mikilvægi bandalagsins.

Segja Trump hafa samþykkt loftárásir á Íran en snúist hugur
Árásin átti að vera á fáein skotmörk, ratsjárstöðvar og eldflaugaskotpalla.

Vill hleypa glæðum í viðræður um kjarnorkuafvopnun á ný
Á leiðtogafundi Kim Jong-un og Xi Jinping ræddu þeir meðal annars um stöðuna í viðræðum um kjarnorkuafvopnun.

Rannsókn á Deutsche Bank teygir anga sína til Trump
Bandarísk yfirvöld hafa tekið til skoðunar hvort þýski fjármálarisinn hafi framfylgt lögum sem ætlað er að koma í veg fyrir peningaþvætti og annað glæpsamlegt athæfi.

Sársaukafull fortíð ástæða þess að varnarmálaráðherraefni Trump hættir við
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að Patrick Shanahan, starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, muni ekki verða skipaður ráðherra til frambúðar. Í gær birtu bandarískir fjölmiðlar upplýsingar um ofbeldisfullar heimiliserjur úr fortíð Shanahan.