Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Til hamingju með sigurinn, Ástþór

Þegar sitjandi forseti var fyrst kosinn í embætti hafði ég ekki kosningarétt og hafði raunar einungis haft íslenskan ríkisborgararétt í sex vikur. Í þeim kosningum buðu sig annars vegar fram fjórir frambjóðendur sem kepptust við að máta sig við hlutverk forseta sem "sameiningartákn þjóðarinnar“ og hins vegar einn sem hafði öllu róttækari hugmyndir um embættið. Sá ætlaði að berjast fyrir friði í heiminum og vísa umdeildum lögum hiklaust í þjóðaratkvæði. Hann hét Ástþór Magnússon og endaði með 2,7% atkvæða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fatlað fólk geti kosið með reisn

Rétturinn til að kjósa telst til grundvallarréttinda borgara í lýðræðisríki. Miklu skiptir því að staðið sé að kosningum þannig að hver einasti borgari með kosningarétt geti nýtt kosningarétt sinn með fullri reisn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Umræðan um umræðuna

Íslendingar eru ekki sammála um margt en ég hugsa að 99 prósent landsmanna séu sammála um það að íslensk umræðuhefð sé ömurleg. Ég hef ekki tölu á öllum þeim pistlum, statusum og kommentum sem ég hef lesið um hvað umræðan sé vond; að við séum sífellt að karpa um aukaatriði, fara í boltann en ekki manninn, færa ekki rök fyrir máli okkar og svo er smiðshöggið rekið með tilvitnun í það sem Halldór Laxness sagði um kjarna málsins. Allt má þetta sjálfsagt til sanns vegar færa. Hins vegar er umhugsunarefni hvers vegna umræðuhefð sem svo mikil og víðtæk óánægja ríkir um er stunduð af jafn miklu kappi og raun ber vitni.

Bakþankar
Fréttamynd

Íhald og fullveldi

Hófsamir íhalds- og hægriflokkar á Norðurlöndum eru undantekningarlítið hlynntir Evrópusambandsaðild og hafa barizt eindregið fyrir henni. Þar kemur ýmislegt til; hagsmunir viðskipta- og athafnalífs sem þessir flokkar hafa löngum haft í fyrirrúmi, tengsl Evrópusamstarfsins og annars vestræns öryggis- og varnarsamstarfs, sem þeir hafa ekki síður staðið vörð um, og sú skoðun að lítil ríki eins og þau norrænu séu sterkari og hafi meiri áhrif við samningaborðið þar sem ákvarðanir eru teknar heldur en á jaðrinum, utan við kjarna Evrópusamstarfsins.

Fastir pennar
Fréttamynd

Af litlu bretti…

Friðrik krónprins Dana hefur áhyggjur. Honum finnst landar sínir sólgnir í frægð án tillits til verðleika. Segir þá hópast í raunveruleikaþætti í sjónvarpi í þeirri einu von að öðlast umtal og athygli, minna fari fyrir raunverulegum hæfileikum. Æðsta markmiðið sé að verða frægur fyrir það eitt að vera frægur.

Bakþankar
Fréttamynd

Öld kvíða og kameljóna

Aldir mannsins eru mislangar. Hún virkaði frekar stutt þessi síðasta. Nú þegar hún er liðin nefna menn hana öld bjartsýninnar. Þá eiga þeir við þessa stund sem leið frá því Berlínarmúrinn féll fyrir ríflega tveimur áratugum síðan og þar til að yfirstandandi ósköp byrjuðu fyrir fjórum árum eða svo.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hreint ekki boðlegt

Ég fer bráðum í sumarfrí, langþráð auðvitað. Eru sumarfrí ekki alltaf langþráð? Veðrið er búið að vera gott og ég hlakka mikið til að geta verið úti að slæpast, hangsa með fjölskyldunni og safna freknum. Það er þó ekki alveg komið að því, ég þarf að vinna nokkra daga áður en ég er laus. Klára mína plikt. Það geri ég auðvitað þó sumarfiðringurinn kitli magann og mér verði oft litið út um gluggann.

Bakþankar
Fréttamynd

Í strætó, á hjóli eða í rafbíl

Hlutur iðnaðar og efnanotkunar er stærstur í losun gróðurhúsaloftegunda á Íslandi, eða um 44 prósent. Þar á eftir koma samgöngurnar en hlutur þeirra nemur um tuttugu prósentum af losun gróðurhúsaloftegunda á Íslandi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Dómur Landsdóms – síðari hluti

Hinn 15. maí sl. birti höfundur fyrri pistil sinn um dóm Landsdóms frá 23. apríl sl. Þar var fjallað um fyrri hluta ákæru á hendur fyrrverandi forsætisráðherra fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð. Í síðari hluta ákærunnar, sem er viðfangsefni þessa pistils, var ákærða gefið að sök að hafa látið farast fyrir að halda ríkisstjórnarfundi um mikilvæg

Fastir pennar
Fréttamynd

Útlendingar vita ekkert

Við Íslendingar erum um margt sérkennilegur hópur. Ekki skortir okkur sjálfsálitið og við virðumst trúa því að við gerum allt öðrum betur. Meira að segja hrunið okkar var mest og best. Og, eðli málsins samkvæmt, vitum við allra best hvað okkur sjálfum er fyrir

Bakþankar
Fréttamynd

Neikvæðar fréttir verða jákvæðar

Fjölmiðlar fá talsvert af ábendingum frá fólki um eitt og annað sem betur mætti fara í nærumhverfi þess. Oft eru sagðar fréttir af sóðaskap, slæmri umgengni, sleifarlagi fyrirtækja eða sveitarfélaga við að halda umhverfinu snyrtilegu, slysagildrum og vondum frágangi við framkvæmdir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hugarfarið þarf að breytast

Almenningur er löngu orðinn þreyttur á þeim skrípaleik sem endalaust málþóf á Alþingi er orðið. Kvöld- og næturfundirnir, þar sem þingmenn tala um ekki neitt, eru ein ástæða þess að Alþingi nýtur ákaflega lítils trausts.

Fastir pennar
Fréttamynd

Trúin á landið

Ríó+20 ráðstefnan virðist hafa verið mikið stefnt-skal-að-þing og óneitanlega visst vonleysi farið að grípa um sig varðandi framtíð lífsins á Jörðinni, framtíð tegundanna. Maðurinn, sem tegund, sér afleiðingar gerða sinna – en hann getur ekki horfst í augu við þær. Guðleysingjum 20. aldarinnar hefur tekist að finna þúsund aðferðir við að afsanna tilvist æðri máttarvalda en ekki eina einustu til að sanna nauðsyn þess að lífið haldi áfram

Fastir pennar
Fréttamynd

Jónsmessa

Messa hvaða Jóns? Er það Jón Vídalín? Nei og ekki heldur Jón Gnarr. Messa Jóns er messa Jóhannesar skírara. Dögg Jónsmessunætur er blessuð og góð til baða! Frá því Jóhannes skírði Jesú í Jórdan hafa kristnir enn trúað að allt vatn veraldar hafi verið helgað. Það var ekki Jesús, sem græddi á skírninni, heldur veröldin. Auður djúpúðga vildi t.d. vegna þeirrar trúar, að hún yrði jarðsett í flæðarmáli. Jóhannes skírari er eiginlega postuli vatnsins og postuli náttúrunnar. Þess vegna hentaði hann helgun náttúruhátíða.

Bakþankar
Fréttamynd

Stjórnmálasigur eða stjórnleysi?

Formenn stjórnarflokkanna hafa skilgreint samþykkt veiðigjaldalaganna sem meiriháttar stjórnmálasigur. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna telja sig á hinn bóginn hafa takmarkað skaðann um sinn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fáðu já

Hann var svolítið sætur og þegar hann bauð mér í bíltúr þar sem ég stóð bak við afgreiðsluborðið á kaffihúsinu fannst mér allt í lagi að þiggja það. Ég var sextán, hann nítján. Bíltúrinn varð að boði um að horfa á mynd heima hjá honum. Ég hafði aldrei gert neitt þessu líkt áður og fannst tími til kominn að lenda í einhverjum ævintýrum. Þegar þangað var komið runnu á mig tvær grímur. Við kysstumst. Ég sagðist vilja fara heim. Hann skildi það og keyrði mig heim. Í bílnum sagði hann orðrétt: "Ég hef engan áhuga á því að gera það með stelpu sem vill ekki gera það með mér.“

Bakþankar
Fréttamynd

Við erum öll druslur

Í dag verður farin drusluganga niður Skólavörðustíg og Bankastræti að Lækjartorgi. Tilgangurinn er að vekja fólk til umhugsunar um kynferðisglæpi og þá útbreiddu ranghugmynd að þolendurnir beri á einhvern hátt ábyrgð á glæpnum með klæðnaði sínum, útliti eða framkomu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Píkuprump og logandi sleipiefni

Kynlíf er ógeðslega fyndið. Pældu aðeins í því; píkuprump, rassaprump, sogblettur á hökunni, sleipiefni sem fær kynfærin til að loga, stuna sem vekur nágrannana, kjálki sem smellist í og úr lið, smokkur með væmnu gervibragði, skapahár á tungunni, týndur lykill að handjárnum, elskhugi sem vill láta öskra nafn sitt, blautur blettur í rúminu og svo typpi sem missir reisn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ísland

Hann er orðinn heldur þreyttur söngurinn um Nýja Ísland sem svo oft hefur verið sunginn síðan bankarnir fóru á hliðina. Af minnsta tilefni er spurt: Er þetta Nýja Ísland? og látið eins og þjóðin hafi sammælst um að ekkert yrði eins og það var.

Bakþankar
Fréttamynd

Prinsippkonan

Ein ástæða þess að almenningur hefur svo litla trú á stjórnmálamönnum er að þeir ástunda í sífellu tvöfalt siðgæði. Aldrei er það skýrara en þegar menn færast úr stjórnarandstöðu í ráðherrastól. Þá sitja þeir sem fastast þótt þeir verði uppvísir að mistökum sem þeir hefðu áður talið að ættu klárlega að kosta ráðherra embættið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Að banna útlendinga

Á undan leikjum á EM karla í knattspyrnu er auglýsing frá UEFA sem sýnir fólk af ólíkum stærðum og gerðum skiptast á fótboltatreyjum. Það eru auðvitað góð skilaboð: Við ættum aldrei að mismuna fólki vegna einhvers sem það ræður engu um. Síðan er það spurning hvort íþróttahreyfingar nær og fjær fylgi sjálfar þessari reglu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Mylsnan af borðum meistaranna

Hvenær ætlarðu svo að skrifa alvöru bók?“ voru algengustu viðbrögðin sem ég fékk þegar fyrsta unglingabókin mín birtist í hillum verslana fyrir nokkrum árum. Ég gerði mér grein fyrir að ég hafði valið mér ranga hillu. Ég hefði átt að velja þá sem kennd er við fegurð; skrifa James Joyce-íska hugflæðið sem kom eitt sinn til mín í draumi um einbúa á eyðibýli sem tekur ástfóstri við þúfu en deyr svo í snjóflóði. Halló tilnefning til Íslensku bókmenntaverðlaunanna!

Bakþankar
Fréttamynd

Sigrar og sættir

Einhverra hluta vegna finnst mörgum liðsmönnum og stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar að hún hafi beðið ósigur vegna þeirrar málamiðlunar sem gerð var við stjórnarandstöðuna um afgreiðslu frumvarpanna um stjórn fiskveiða. Frumvarpið um veiðigjald var samþykkt, þó með talsvert lægra gjaldi en upphaflega var lagt upp með, en frumvarpið um ýmsar breytingar á sjálfu fiskveiðistjórnunarkerfinu var lagt til hliðar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Margt smátt eykur kaupmátt launa

Rekstur heimilisins er erfiður á Íslandi, ekki síst vegna verðbólgunnar sem nær aldrei er fyrir neðan markmiðið um 2,5 prósent. Of mikil verðbólga gerir lánakjör húsnæðislána óhagstæð, bæði óverðtryggðra og verðtryggðra til lengri tíma, og minnkar kaupmátt launa.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þurrbrjósta á bráðadeild

Það er kunnara en frá þurfi að segja að niðurskurður í heilbrigðiskerfinu hefur verið allbrattur síðastliðin ár. Reyndar svo mikill að enginn hefði trúað því að þetta væri hægt, að óreyndu. Margir, og ég þar á meðal, hafa lýst áhyggjum af því að með þessum niðurskurði myndi óumflýjanlega fylgja skert þjónusta. Reynsla margra er eflaust einmitt sú, um það efast ég ekki.

Bakþankar
Fréttamynd

Lýðræði kostar

Á Íslandi er mikið kvartað yfir lélegum stjórnmálum. Með annarri hendinni fúlsa vandlætarar yfir því að stjórnmálamennirnir okkar séu ekki hæfari, heiðarlegri, betri. Með hinni steyta þeir hnefann framan í þann mikla kostnað sem fylgir tilvist þjóðþings og þeirra sem á því sitja.

Fastir pennar
Fréttamynd

Bara örfá dæmi

Vinkonu minni hefur verið nauðgað þrisvar. Hún lagði aldrei fram kæru. Hún er lesbía. Einn af þeim sem nauðguðu henni var æskuvinur hennar. Hann vissi að hún var lesbía en var samt sannfærður um að ef hún fengi alvöru karlmann inn í sig, þá myndi hún skipta um skoðun. Hún var áfengisdauð þegar hann tók þessa ákvörðun. Þegar hú

Bakþankar
Fréttamynd

Öryggi sjúklinga – dæmisaga úr kerfinu

Það er áhugavert að fylgjast með þeirri umræðu sem verið hefur um samtengda rafræna sjúkraskrá undanfarin ár og seinaganginn í því verkefni. Við höfum um nokkurt skeið verið með því sem næst sama sjúkraskrárkerfið á öllum heilsugæslustöðvum, heilbrigðisstofnunum og sjúkrahúsum hérlendis, þá hafa einnig sérfræðilæknar og einkareknar læknastöðvar verið að notast við sama kerfið en það heitir Saga.

Fastir pennar
Fréttamynd

Vondu fyrirmyndirnar okkar

Furðulegt hefur verið að fylgjast með umræðum innan íþróttahreyfingarinnar undanfarna daga um flengingar sem einhvers konar hópefli og "busavígslu“ í íþróttaliðum. Málið komst í hámæli eftir að nýliði í landsliðinu í handbolta sagðist gera ráð fyrir að verða flengdur eftir fyrsta landsleikinn sinn og að það væri guðsþakkarvert að ein af handboltahetjunum okkar væri hætt í liðinu, af því að viðkomandi kempa væri svo harðhent.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hrunið í hægri endursýningu

Líklega telur alvaldið mig tiltölulega tregan nemanda í lífsins skóla því eftir að hafa upplifað hrunið heima á Íslandi árið 2008 sit ég nú sama kúrs hér á Spáni fjórum árum síðar. Reyndar var farið gríðarlega hratt yfir námsefnið á Íslandi, þetta var spíttbraut frekar en hraðbraut, en það gerir ekkert til því nú fæ ég tækifæri til að fara yfir allt aftur í hægri endursýningu.

Bakþankar