Nýtt lið sækir um þáttökurétt Nýtt keppnislið hefur nú lagt fram beiðni um að vera með í Formúlu 1 kappakstrinum á næsta ári. Það er fyrrum ökuþórinn Aguri Suzuki sem er í forsvari fyrir liðið, sem mun keppa með vélar frá Honda ef beiðni liðsins verður samþykkt. Liðið mun heita Super Aguri Formula One og yrði ellefta keppnisliðið á heimsmeistaramótinu á næsta ári ef allt fer að óskum. Sport 2. nóvember 2005 12:00
Róttækar breytingar á tímatökum Alþjóða bílasambandið samþykkti í gær að gera róttækar breytingar á tímatökum fyrir keppnir á næsta ári, þar sem keppt verður með útsláttarfyrirkomulagi. Nokkur lið eru vera mikið á móti þessum breytingum, sem eru gerðar með það fyrir augum að auka spennu og sjónvarpsáhorf. Sport 24. október 2005 17:01