„Mætum tilbúnir til að vinna í alla leiki“ Bukayo Saka skoraði fyrsta mark Arsenal er liðið skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar með 3-0 útisigri gegn Brighton í kvöld. Fótbolti 6. apríl 2024 20:31
Skytturnar skutust aftur á toppinn Arsenal kom sér aftur á topp ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu er liðið vann 3-0 útisigur gegn Brighton & Hove Albion í kvöld. Fótbolti 6. apríl 2024 18:29
Meistaradeildardraumur Roma lifir góðu lífi Roma vann mikilvægan 1-0 sigur er liðið tók á móti Lazio í Rómar-slagnum í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 6. apríl 2024 17:53
Hörmuleg byrjun á tímabilinu hjá Íslendingaliði Norrköping Íslendingalið Norrköping fer vægast sagt illa af stað í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Liðið mátti þola 3-0 tap gegn Mjällby í dag. Fótbolti 6. apríl 2024 17:27
Leverkusen einum sigri frá titlinum eftir hrun Bayern gegn Heidenheim Bayer Leverkusen getur tryggt sér þýska meistaratitilinn með sigri í næstu umferð úrvalsdeildarinnar. Stórlið Bayern Munchen tapaði á vandræðalegan hátt gegn Heidenheim í dag. Fótbolti 6. apríl 2024 15:33
Öruggt hjá Milan sem reynir að elta nágrannana AC Milan vann í dag öruggan sigur þegar liðið mætti Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Milan er í 2. sæti deildarinnar en þó ansi langt á eftir nágrönnunum í Inter. Fótbolti 6. apríl 2024 14:58
Íslendingalið mættust í baráttu um umsspilssæti Birkir Bjarnason og félagar hans í Brescia mættu í dag Pisa sem Hjörtur Hermannsson leikur með í Serie B-deildinni á Ítalíu. Fótbolti 6. apríl 2024 13:55
Magnaður De Bruyne sá um Crystal Palace Kevin De Bruyne var maðurinn á bakvið 4-2 sigur Manchester City á Crystal Palace í hádegisleik ensku úrvalsdeildinnar. City jafnar Liverpool að stigum á toppnum með sigri. Enski boltinn 6. apríl 2024 13:28
Spá sérfræðinga Stúkunnar: Aðeins einn sem ekki spáir Víkingum titlinum Sérfræðingar Stúkunnar spáðu í spilin fyrir sumarið í upphitunarþætti í vikunni. Þar voru spár allra sérfræðinganna birtar og komu ýmsir áhugaverðir molar þar í ljós. Fótbolti 6. apríl 2024 13:00
Fyrrum leikmaður Chelsea spilar með HK í sumar Hinn 22 ára George Nunn verður með HK í leiknum gegn KA í Bestu deildinni á morgun en hann er kominn með leikheimild með Kópavogsliðinu. Fótbolti 6. apríl 2024 12:45
Laun dómara opinberuð: Þeir bestu á Englandi þéna mest en hæstu meðallaunin eru á Spáni Dómarar eru oftar en ekki í sviðsljósinu í knattspyrnuheiminum. Vefmiðillinn The Athletic hefur birt samantekt yfir laun dómara í sex stórum deildum þar sem ýmislegt áhugavert kemur í ljós. Enski boltinn 6. apríl 2024 12:16
Sjáðu myndirnar: Íslendingarnir spiluðu við ótrúlegar aðstæður Íslendingalið Lyngby þurfti að sætta sig við jafntefli og eitt stig frá leik sínum gegn OB í úrslitakeppni neðri hluta dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Leikið var við afar erfiðar aðstæður. Fótbolti 5. apríl 2024 23:30
Hákon og Lille lyftu sér upp í Meistaradeildarsæti Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Hákon Arnar Haraldsson, var í byrjunarliði Lille og lék nær allan leikinn er liðið vann mikilvægan 3-1 sigur á Marseille í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 5. apríl 2024 21:45
„Okkur langaði bara í meira“ „Við ætluðum okkur að byrja sterkt og hafa þetta í okkar höndum. 3-0 og hreint lak, það er varla hægt að biðja um meira“ sagði Sædís Rún Heiðarsdóttir, bakvörður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, eftir öruggan 3-0 sigur gegn Pólverjum í kvöld. Fótbolti 5. apríl 2024 20:42
„Klárum þetta á allt annan hátt en við höfum gert áður“ Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, segir að liðið hafi haft góð völd á leiknum er Ísland vann 3-0 sigur gegn Pólverjum í fyrsta leik undankeppni EM 2025. Fótbolti 5. apríl 2024 20:28
Þær þýsku sluppu með skrekkinn í kvöld: Mæta Íslandi næst Þýskaland slapp heldur betur með skrekkinn gegn nágrönnum sínum í Austurríki í fyrstu umferð undankeppni EM kvenna í fótbolta í kvöld. Liðin eru með Íslandi í riðli og er óhætt að segja að Þjóðverjarnir hafi lent í kröppum dansi í kvöld en höfðu þó á endanum 3-2 sigur. Þýskaland og Ísland mætast svo á þriðjudaginn kemur í uppgjöri efstu liða riðilsins. Fótbolti 5. apríl 2024 20:24
„Verð bara að sætta mig við eitt núna og skora meira í næsta leik“ Sveindís jane Jónsdóttir átti frábæran leik fyrir íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er liðið vann 3-0 sigur gegn Pólverjum í fyrsta leik undankeppni EM á Kópavogsvelli í kvöld. Fótbolti 5. apríl 2024 20:11
„Um leið og við settum fyrsta markið hafði maður litlar áhyggjur“ Fanney Inga Birkisdóttir átti frábæran leik í marki Íslands í 3-0 sigri gegn Póllandi. Fótbolti 5. apríl 2024 19:58
„Leikmenn þurfa að njóta þess að hafa unnið og spilað vel“ Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands, var hreykinn og sáttur eftir 3-0 sigur gegn Póllandi í fyrsta leik undankeppni Evrópumótsins. Fótbolti 5. apríl 2024 19:37
Einkunnir Íslands gegn Póllandi: Sveindís sannar mikilvægi sitt enn og aftur Ísland vann Pólland 3-0 á Kópavogsvelli í fyrsta leik undankeppni Evrópumótsins sem fer fram í Sviss 2025. Fótbolti 5. apríl 2024 18:56
Umfjöllun: Ísland - Pólland | Ferðalagið á fimmta EM hófst á öruggum sigri Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann afar öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti því pólska á Kópavogsvelli í dag. Ferðalagið á fimmta Evrópumót stelpnanna hófst því á á virkilega jákvæðan hátt. Fótbolti 5. apríl 2024 18:39
Þorsteinn skiptir um markvörð og tvo framherja Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir þrjár breytingar á byrjunarliði íslenska liðsins fyrir fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025. Fótbolti 5. apríl 2024 15:38
Ein besta vinkonan í landsliðinu orðin liðsfélagi hennar í Svíþjóð Landsliðsframherjinn Hlín Eiríksdóttir hefur verið í miklu stuði á undirbúningstímabilinu með Kristianstad í Svíþjóð en í dag verður hún í eldlínunni með íslenska landsliðinu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2025. Fótbolti 5. apríl 2024 15:00
Man United neitar að læra Manchester United mátti þola 4-3 tap gegn Chelsea á Brúnni í leik liðanna í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á fimmtudagskvöld. Var það enn einn leikurinn á tímabilinu þar sem liðið fær á sig tvö mörk með stuttu millibili. Enski boltinn 5. apríl 2024 14:31
Kunnugleg andlit á nýjum slóðum og spennandi nýliðar Besta deild karla í knattspyrnu fer af stað á morgun, laugardag. Þar verður Ingvar Jónsson, besti markvörður deildarinnar undanfarin ár, í sviðsljósinu og þá reiknar Vísir með að Árni Snær Ólafsson standi vaktina í marki Stjörnunnar líkt og á síðasta tímabili. Fótbolti 5. apríl 2024 14:00
Uppselt í dag þó leikið sé snemma: „Ekki leiktíminn sem ég myndi velja“ „Þetta er ekki leiktíminn sem ég myndi velja mér,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta sem mætir Póllandi á Kópavogsvelli í dag, í fyrsta leik í undankeppni EM. Fótbolti 5. apríl 2024 12:01
Einn besti framherji heims í Kópavogi í dag: „Þeirra langbesti leikmaður“ Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta byrjar nýja undankeppni fyrir EM á Kópavogsvelli í dag, með leik við Pólland. Í pólska liðinu er markadrottningin Ewa Pajor langþekktasta nafnið. Fótbolti 5. apríl 2024 10:30
Man Utd yfir þegar 99 mín. og 17 sek. voru komnar á klukkuna Manchester United tapaði á einhvern ótrúlegan hátt 4-3 fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu þegar liðin mættust á Brúnni í Lundúnum á fimmtudagskvöld. Man United var 3-2 yfir þegar níu mínútur og sautján sekúndur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Enski boltinn 5. apríl 2024 10:01
Styttist í endurkomu en framlengir ekki í París Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður París Saint-Germain í Frakklandi, er við það að snúa aftur á völlinn eftir barnsburð. Hún mun þó ekki spila með PSG þar sem samningur hennar rennur út nú í sumar og það er ljóst að framherjinn knái mun færa sig um set. Fótbolti 5. apríl 2024 08:30
Langur batavegur framundan: „Ég grenjaði bara af sársauka“ Fótboltamaðurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson verður frá um hríð vegna svæsinna veikinda sem herjuðu á hann á dögunum. Síðustu dagar hafa verið honum þungbærir. Íslenski boltinn 5. apríl 2024 07:31
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn