Gagnrýnin í garð Haaland hafi verið „ósanngjörn og algjört bull“ Sperkspekingurinn Chris Sutton, fyrrverandi leikmaður liða á borð við Blackburn Rovers og Chelsea, segir að gagnrýni Roy Keane í garð norska framherjans Erling Braut Haaland hafi verið „ósanngjörn og algjört bull.“ Fótbolti 2. apríl 2024 18:30
Í beinni: Burnley - Wolves | Burnley er í vandræðum og þarf stig Vísir er með beina textalýsingu frá leik Burnley og Wolves í ensku úrvalsdeildinni. Burnley er í næstneðsta sæti deildarinnar á meðan Wolves situr í tíunda sæti. Enski boltinn 2. apríl 2024 18:16
Markmaðurinn tryggði liðinu stig með marki frá eigin vallarhelmingi Gabriel Kobylak, markvörður pólska liðsins Radomiak Radom, reyndist hetja liðsins er hann skoraði ótrúlegt mark frá eigin vallarhelmingi gegn Puszcza í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Fótbolti 2. apríl 2024 16:32
De Zerbi og Nagelsmann líklegastir til að taka við Bayern Reberto De Zerbi, knattspyrnustjóri Brighton & Hove Albion, og Julian Nagelsmann, þjálfari þýska landsliðsins, eru þeir tveir kandídatar sem telja líklegastir til að taka við stjórastöðu þýska stórveldisins Bayern München í sumar. Fótbolti 2. apríl 2024 15:00
„Hvar sé ég mig eftir tíu ár? Ég verð sköllóttur“ Spænska ungstirnið Pedri hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir stórkostlegt ár hans árið 2021. Meiðsli hafa strítt unga manninum sem er þess þó viss að hann verði enn að eftir áratug. Hann virðist þá ekki hræðast hármissi. Fótbolti 2. apríl 2024 13:01
Man United reynir að lokka til sín yfirmann frá Southampton Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur sent fyrirspurn til Southampton varðandi að ráða Jason Wolcox, yfirmann knattspyrnumála hjá Southampton, til starfa. Fótbolti 2. apríl 2024 10:31
Þjálfari Jóhanns segir dómgæsluna í deildinni ekki hafa verið nógu góða Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Burnley, segir að dómgæslan í ensku úrvalsdeildinni hafi einfaldlega ekki verið nógu góð á tímabilinu. Fótbolti 2. apríl 2024 08:34
Nasistatreyjur teknar úr sölu Þýski íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur brugðist við gagnrýni á nýjar landsliðstreyjur Þýskalands og tekið úr sölu allar treyjur með tölustafnum 4. Fótbolti 2. apríl 2024 07:00
Ákveðið með atkvæðagreiðslu hvort Fenerbahce dragi sig úr deildarkeppni Stjórn tyrkneska knattspyrnufélagsins Fenerbahce kemur saman á morgun og ákveður með atkvæðagreiðslu hvort draga eigi liðið úr deildarkeppni. Fótbolti 1. apríl 2024 23:00
Inter nálgast titilinn óðum Inter Milan nálgast ítalska deildarmeistaratitilinn óðum og styrki stöðu sína enn frekar með 2-0 sigri gegn Empoli í kvöld. Fótbolti 1. apríl 2024 20:43
Hélt markinu hreinu í fyrsta leik tímabilsins Patrik Gunnarsson hélt marki sínu hreinu þegar lið hans Viking FK vann 1-0 sigur á Sarpsborg 08 í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 1. apríl 2024 19:10
Stefán skoraði og Mikael lagði upp er liðin skildu jöfn Stefán Teitur Þórðarsson skoraði og Mikael Neville Anderson lagði upp mark í 2-2 jafntefli Silkeborg og AGF í dönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 1. apríl 2024 17:59
Fékk gult spjald eftir örfáar mínútur í frumraun fyrir félagið Boltinn er byrjaður að rúlla aftur í Noregi. Fyrsta umferð úrvalsdeildarinnar hófst í gær, fimm leikir fóru fram í dag og umferðinni lýkur með leik Patriks Gunnarssonar og félaga í Viking síðar í dag. Fótbolti 1. apríl 2024 17:03
Andri Fannar byrjaði á að leggja upp Andri Fannar Baldursson var aðeins tíu mínútur að leggja upp mark í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Fótbolti 1. apríl 2024 16:33
Birkir nær umspili en högg fyrir Íslendingana í Feneyjum Birkir Bjarnason og félagar í Brescia eiga enn möguleika á að komast upp úr ítölsku B-deildinni í fótbolta í vor og þeir unnu mikilvægan 2-1 útisigur á Cosenza í dag. Fótbolti 1. apríl 2024 15:14
Orri og Rúnar fylgdust með dramatík af bekknum í risaleik Orri Steinn Óskarsson og Rúnar Alex Rúnarsson urðu að gera sér að góðu að fylgjast með af varamannabekknum í risaleik FC Kaupmannahafnar og Bröndby á Parken í dag – lykilleik í titilbaráttunni í danska fótboltanum. Fótbolti 1. apríl 2024 14:32
Kolbeinn sá strax rautt en Stefan og Túfa fögnuðu í fyrsta leik Boltinn er byrjaður að rúlla í sænska fótboltanum og nokkrir Íslendingar voru á ferðinni í dag, í efstu og næstefstu deild karla. Fótbolti 1. apríl 2024 14:06
Gabriel og Saliba alltaf með Haaland í vasanum Framherjinn Erling Haaland átti ansi erfitt uppdráttar í leik Manchester City og Arsenal í gær en framherjinn öflugi átti ekki eitt skot á rammann og raunar aðeins tvær marktilraunir. Fótbolti 1. apríl 2024 07:00
Rodrygo afgreiddi Athletic Bilbao Real Madrid vann mikilvægan sigur á Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld en fátt virðist geta komið í veg fyrir að Real endurheimti titilinn í vor. Fótbolti 31. mars 2024 21:01
Guardiola hellti sér yfir Grealish eftir leik Samskipti Pep Guardiola og Jack Grealish í leikslok eftir jafntefli Manchester City og Arsenal hafa vakið töluverða athygli en Guardiola virtist í fyrstu vera algjörlega brjálaður út í leikmanninn. Fótbolti 31. mars 2024 20:01
Hayes hafði engan áhuga á að taka í höndina á Eidevall og ýtti honum frá sér Arsenal landaði enska deildarbikarmeistaratitli kvenna í dag en úrslitin réðust ekki fyrr en í framlengingu en sænska landsliðskonan Stina Blackstenius var hetja Arsenal. Fótbolti 31. mars 2024 19:00
400 deildarleikir hjá Kane án titils Harry Kane lék sinn 400. deildarleik í gær þegar Bayern Munchen tapaði 0-2 á heimavelli gegn Dortmund. Þrátt fyrir að hafa raðað inn mörkum fyrir Bayern á tímabilinu náði Kane ekki að skora í gær og titillinn virðist vera að renna liðinu úr greipum. Fótbolti 31. mars 2024 18:10
„Við vorum að flýta okkur full mikið stundum“ Lið Brighton hefur haft ákveðið tak á Liverpool síðustu misseri en sigur Liverpool í dag var aðeins annar sigur liðsins í síðustu tíu viðureignum liðanna. Þetta var jafnframt 300. sigur Jurgen Klopp sem stjóri Liverpool. Fótbolti 31. mars 2024 17:20
Glódís og Sveindís mætast í bikarúrslitaleiknum Glódís Perla Viggósdóttir og félagar hennar í Bayern München eru komnar í bikarúrslitaleikinn í Þýskalandi eftir sigur á Eintracht Frankfurt í vítakeppni í undanúrslitaleiknum í dag. Fótbolti 31. mars 2024 16:34
Dramatík í lokin hjá ævintýraliðinu Girona er kannski að gefa aðeins eftir í titilbaráttunni á Spáni en ævintýralið vetrarins bauð hins vegar upp á ævintýraendi í dag þegar liðið tryggði sér 3-2 sigur á Real Betis í uppbótatíma. Fótbolti 31. mars 2024 16:17
Stefán Ingi gerði út um leikinn með tveimur mörkum í lokin Stefán Ingi Sigurðarson innsiglaði sigur Patro Eisden á Lommel í belgísku b-deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 31. mars 2024 15:51
Alfons aftur í byrjunarliðið Íslenski landsliðsbakvörðurinn Alfons Sampsted lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik síðan í janúar þegar Twente vann 1-0 heimasigur á Heracles. Fótbolti 31. mars 2024 14:26
Alíslenskt mark en Íslendingaliðið fékk samt stóran skell Íslendingaliðið Lyngby fékk í dag stóran skell á útivelli á móti Randers í neðri hluta dönsku úrslitakeppninnar í fótbolta. Fótbolti 31. mars 2024 14:00
Kristian Nökkvi með fyrsta markið sitt síðan í janúar Kristian Nökkvi Hlynsson skoraði langþráð mark í dag þegar Ajax vann 3-1 útisigur á PEC Zwolle í hollensku deildinni. Fótbolti 31. mars 2024 12:12
Ronaldo með þrennu á fimmtán árum í röð Cristiano Ronaldo er alls ekki hættur að bæta við glæsilega ferilskrá sína og í gær skoraði hann 64. þrennuna á ferli sínum yfir félagslið eða landslið. Fótbolti 31. mars 2024 10:20