
Skúli fundaði með samgönguráðherra
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgönguráðherra, í samgönguráðuneytinu eftir hádegi í dag.
Allt það helsta sem viðkemur flugi.
Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi WOW air, fundaði með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgönguráðherra, í samgönguráðuneytinu eftir hádegi í dag.
Franke er lýst sem klókum kaupsýslumanni, hörðum í horn að taka - og ofstækisfullum í viðhorfi sínu til verðlagningar.
Búast má við miklum breytingum á rekstri WOW air á næstunni ef Indigo Partners mun fylgja sömu stefnu gagnvart WOW air og fyrirtækið hefur fylgt gagnvart öðrum lággjaldaflugfélögum sem það hefur fjárfest í. Þetta segir forstjóri fraktflugfélagsins Bluebird Nordic sem hefur meira en 20 ára reynslu á flugmarkaði.
Svanhvít segir fyrst og fremst um að ræða starfsmenn fyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli.
Airport Associates er stærsti þjónustuaðili WOW air. Fyrirtækið sagði í gær upp 237 starfsmönnum eftir að tilkynnt var um að Icelandair hefði fallið frá áætlunum sínum um að kaupa WOW.
Verð bréfa í öðrum félögum í Kauphöllinni hefur hækkað.
Stjórnarformaður Icelandair segir einhug um að hætta við kaupin á WOW air hafa ríkt innan stjórnarinnar. Hvorki var komið á hreint hver stór hlutur Skúla í Icelandair hefði orðið né hvort samkomulag næðist við skuldabréfaeigendur WOW air.
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segist bjartsýnn á að höggið á efnahagslífið við mögulegt brotthvarf félagsins yrði viðráðanlegt og að ferðaþjónustan og hagkerfið myndu rétta úr kútnum fyrr en seinna.
Bandarískt eignastýringarfélag er sagt fjárfesta í Wow air.
Airport Associates sem þjónustar WOW air sagði upp 237 starfsmönnum í dag en það er nær helmingur starfsfólks fyrirtækisins. Forstjórinn segir það varúðarráðstöfun. Hagfræðingar í greiningardeildum bankanna segja að það sé mikilvægt að eyða óvissu um framtíð WOW air sem fyrst.
Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja, segir að það hafi verið fyrirséð að það þyrfti að grípa til einhverra aðgerða hjá Airport Associates fyrir einhverjum vikum síðan vegna stöðu WOW air. 237
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 verður farið ítarlega yfir Klaustursupptökurnar svokölluðu. Fréttastofa hefur fengið upptökurnar hjá Stundinni og mun spila brot, meðal annars þar sem þingmennirnir fimm heyrast ræða um útlit og vanhæfni þingkvenna.
237 starfsmönnum var í dag sagt upp hjá Airport Associates (APA) á Keflavíkurflugvelli, stærsta þjónustuaðila WOW air.
Hann var rauður, dagurinn í Kauphöllinni í dag.
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair Group segir að stjórn og stjórnendur félagsins hafi komist að þeirri niðurstöðu að áhætta við kaup Icelandair Group á WOW air hafi verið meiri en gert hafi verið ráð fyrir. Ákvörðun um að falla frá samruna var tekin eftir að niðurstöður úr áreiðanleikakönnun Deloitte lágu fyrir.
Svanhvít segir rekstur félagsins tryggðan en ekki sé búið að taka ákvörðun um uppsagnir hjá félaginu.
Tíðindi morgundagsins eru óþægileg en ekki fullkomlega óvænt.
Þá segir Skúli fjársterka aðila skoða kaup á félaginu, að því er fram kemur á vef Fréttablaðsins.
Gengi bréfa í Icelandair hefur hrapað í Kauphöllinni í morgun.
Skúli Mogensen segir að það sé ekkert launungarmál að hans helsta markmið sé að WOW air verði áfram sjálfstætt flugfélag. Unnið sé að því og hann reikni með að geta fært starfsfólki WOW air gleðifréttir í mög náinni framtíð.
Fallið hefur verið frá kaupum Icelandair Group á Wow air en kaupsamningur var undirritaður þann 5. nóvember sl.
Icelandair þrýstir á að félagið standi undir talsvert minni hluta af höfuðstól skuldabréfaeigenda WOW air. Greinandi Landsbankans segir það ekki koma á óvart ef hluthafafundi Icelandair á föstudag verði frestað.
Stórir hluthafar í Icelandair Group búast við því að afgreiðslu tillögu um kaup félagsins á WOW air, sem til stendur að afgreiða á hluthafafundi á föstudag, verði frestað þangað til betri upplýsingar liggja fyrir um stöðu WOW air eða þeir hafa haft tíma til að kynna sér niðurstöður áreiðanleikakönnunar. Áreiðanleikakönnun Deloitte á WOW air mun liggja fyrir í dag eða á morgun.
Eigendur skuldabréfa Icelandair Group upp á um 27 milljarða króna samþykktu að heimila tímabundna undanþágu frá tilteknum fjárhagslegum skilyrðum skuldabréfanna.
Starfsfólk WOW Air mun fá greidd laun um næstu mánaðamót.
Gögn úr flugritum Lion Air flugvélarinnar sem hrapaði til sjávar í síðasta mánuði sýna að flugmenn vélarinnar börðust við flugvélina um stjórn á flugvélinni alveg frá flugtaki þangað til hún hrapaði ellefu mínútum síðar.
Þurftu að hætta við lendingu í Dublin.
Mörg mál standa enn út af í viðræðum Icelandair og WOW air. Stjórnendur Icelandair vilja ekki að flugmenn WOW air verði á sama kjarasamningi og flugmenn Icelandair. Vaxandi óþreyju gætir á meðal eigenda flugvéla í rekstri WOW air.
Töluverð óvissa er hvort verður af kaupum Icelandair á WOW air en forstjóri WOW hefur lýst yfir að fleiri en Icelandair komi til greina sem kaupendur að félaginu.
WOW Air mun fækka í flota sínum um fjórar flugvélar, tvær Airbus A320 og tvær Airbus A330