Ólöf María á fimm höggum yfir pari Íslandsmeistarinn í golfi Ólöf María Jónsdóttir lék á einu höggi yfir pari á fyrstu 12 holunum á Opna franska meistaramótinu í morgun og er samtals á fimm höggum yfir pari. Þetta er fimmta mót Ólafar Maríu á evrópsku mótaröðinni. Hún hafnaði í 41. sæti á Tenrife í apríl en komst ekki í gegnum niðurskurðinn á mótum í Austurríki og á Ítalíu. Sport 11. júní 2005 00:01
Birgir á ellefu höggum yfir pari Birgir Leifur Hafþórsson sem keppir á áskorendamóti í Esjberg Danmörku lék fyrstu níu holurnar á þriðja hring á þremur höggum yfir pari og er samtals á 11 höggum yfir pari, en aðstæður hafa ekki verið kylfingum hagstæðar á mótinu. Sport 11. júní 2005 00:01
Heiðar Davíð efstur í Eyjum Keppni á Toyota-mótaröðinni í golfi hófst í Vestmannaeyjum klukkan sjö í morgun. Heiðar Davíð Bragason úr GKJ hefur leikið vel og var á fjórum höggum undir pari eftir níu holur. Sigurpáll Geir Sveinsson, félagi Heiðars, Gunnar Þór Gunnarsson GKG og Pétur Óskar Sigurðsson úr GR eru á einu undir pari. Sport 11. júní 2005 00:01
Birgir og Ólöf áfram Íslandsmeistarinn Ólöf María Jónsdóttir komst áfram í gegn um niðurskurðinn á opna franska meistaramótinu í golfi í gær, þegar hún lék annan hringinn á tveimur höggum yfir pari. Fyrri daginn lék hún einnig á tveimur höggum undir pari og lauk því keppni í gær á fjórum yfir, sem nægði henni til áframhaldandi þáttöku á mótinu. Sport 10. júní 2005 00:01
Ólöf María á tveimur yfir Íslenskir kylfingar taka þátt á mótum erlendis. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG lauk fyrsta hring sínum á áskorendamótaröðinni í Esbjerg í Danmörku í gær á þremur höggum yfir pari og Ólöf María Jónsdóttir úr GK lék fyrsta hringinn á opna franska meistaramótinu, sem er liður í evrópsku mótaröðinni, á 74 höggum. Sport 9. júní 2005 00:01
X-ið977 byrjar með íþróttafréttir Í dag miðvikudag byrjar Rokk útvarpsstöðin X-ið 97.7 að nýju á því að útvarpa íþróttafréttum og mun sá hátturinn verða á hverjum virkum degi kl. 11.00. Með þessu gefst útvarpshlustendum kostur á að fá nýjustu fréttirnar úr heimi íþróttanna snemma hvers dags en stöðin mun bjóða upp á ítarlegan sport-fréttapakka hverju sinni. Sport 8. júní 2005 00:01
Sörenstam sigraði í New Jersey Besti kvenkylfingur heims, Annika Sörenstam, vann öruggan sigur á móti í New Jersey í gær. Sörenstam sem lék á 17 höggum undir pari þótt sýna snilldartilþrif á mótinu en hún var fjórum höggum á undan Julie Inkster sem varð önnur. Sport 6. júní 2005 00:01
Bryant sigraði á Memorial-mótinu Bart Bryant frá Bandaríkjunum sigraði á Memorial-mótinu í golfi sem fram fór í Ohio. Bryant lék á 16 höggum undir pari en í öðru sæti hafnaði Fred Couples á 15 höggum undir pari. Tiger Woods, Jeff Sluman og Bo Van Pelt urðu jafnir í þriðja sæti á 12 höggum undir pari, en Tiger Woods náði ekki að endurheima efsta sætið á heimslistanum. Sport 6. júní 2005 00:01
Fjórir jafnir á Memorial-mótinu Fjórir Bandaríkjamenn eru efstir og jafnir fyrir síðasta keppnisdag á Memorial-golfmótinu á Muirfield-vellinum í Ohio. David Toms, Fred Couples, Jeff Sluman og Bart Bryant eru á 12 höggum undir pari. Toms lék á 64 höggum í gær. Jonathan Kaye og Woody Austin eru höggi á eftir. Tiger Woods er í 10. sæti, fjórum höggum á eftir efstu mönnum. Sport 5. júní 2005 00:01
Alessandro Tadini efstur í Wales Ítalinn Alessandro Tadini er með eins höggs forystu fyrir lokahringinn á Opna velska meistaramótinu í golfi í Evrópsku mótaröðinni. Tadini er samtals átta höggum undir pari en fjórir kylfingar eru höggi á eftir, m.a. Ian Woosnam og Miguel Angel Jimenez. Sport 5. júní 2005 00:01
Tadini setti vallarmet Ítalinn Alessandro Tadini setti vallarmet, lék á 62 höggum, á Opna velska meistaramótinu í golfi í gær. Tadini hefur aldrei unnið á mótaröðinni. Hann er samtals á ellefu höggum undir pari, Englendingurinn David Lynn er í öðru sæti á níu undir pari og Miguel Angel Jimenez þriðji. Sport 4. júní 2005 00:01
Sluman með eins höggs forystu Bandaríkjamaðurinn Jeff Sluman er með eins höggs forystu eftir tvo keppnisdaga á Memorial-mótinu í bandarísku mótaröðinni í golfi. Hann er átta höggum undir pari, Tiger Woods er í öðru sæti ásamt Jonathan Kaye, Harrison Frazar, Lucas Glover og Nick O'Hern. Þeir eru aðeins einu höggi á eftir Sluman. Sport 4. júní 2005 00:01
Heiðar Davíð í úrslit Heiðar Davíð Bragason kylfingur úr GKJ komst áfram í 64-manna úrslit á Opna breska áhugamannamótinu í golfi í gær og hafnaði í 3.-7. sæti eftir hringina tvo. Heiðar tryggði sig þar með áfram í 64-manna holukeppni með útsláttarfyrirkomulagi og hefur leik kl. 11:17 í dag. Sport 1. júní 2005 00:01
Heiðar Davíð úr leik á opna breska Heiðar Davíð Bragason kylfingur úr GKJ féll úr leik í 64 manna úrslitum á Opna Breska áhugamannamótinu í golfi í dag. Heiðar féll út í holukeppninni sam leikin er með útsláttarfyrirkomulagi. Heiðar Davíð mætti Skotanum Jonathan King sem hafnaði í 81. sæti í niðurskurðinum en Heiðar náði 4. sæti svo úrslitin koma talsvert á óvart. Sport 1. júní 2005 00:01
Heiðar Davíð í toppbaráttunni Heiðar Davíð Bragason úr golfklúbbunum Kili lék á 69 höggum á fyrsta degi á Opna breska áhugamannamótinu í gær. Aðeins tvær kylfingar léku betur, eða á 67 höggum. 64 kylfingar komast áfram á mótinu eftir annan keppnisdag í dag og verður þá leikin holukeppni. Sport 31. maí 2005 00:01
Leonard sigraði naumlega Justin Leonard sigraði á St. Jude Classic mótinu í Memphis í Tennessee um helgina. Leonard hafði átta högga forystu fyrir lokahringinn og hafði næstum klúðrað sigrinum. David Toms lék mjög vel í gær, fór völlinn á sjö höggum undir pari og varð í öðru sæti, höggi á eftir Leonard. Fred Funk varð í þriðja sæti. Sport 30. maí 2005 00:01
Magnús sigraði á fyrsta mótinu Magnús Lárusson GKJ sigraði á fyrsta stigamóti ársins í golfi í Toyotamótaröðinni. Magnús hafði sigur á Örlygi Helga Grímssyni í GV í bráðabana en báðir léku á fimm höggum undir pari. Sport 30. maí 2005 00:01
Örugg forysta Leonards Justin Leonard frá Bandaríkjunum hefur átta högga forystu eftir þrjá hringi á PGA-meistaramóti sem fram fer í Memphis, en hann er samtals á 17 höggum undir pari fyrir lokahringinn. Peter Hedblom frá Svíþjóð og Angel Cabrera frá Argentínu hafa tveggja högga forystu á Evrópumóti atvinnumanna í Wentworth á Englandi og eru á tíu höggum undir pari. Sport 29. maí 2005 00:01
Örlygur og Þórdís efst á Hellu Örlygur Helgi Grímsson er með tveggja högga forystu fyrir lokahringinn á Toyota-mótaröðinni í golfi sem fram fer á Hellu. Örlygur, sem er frá Vestmannaeyjum, lék frábært golf í gær og var á fimm höggum undir pari og var aðeins einu höggi frá vallarmeti Ómars Halldórssonar sem sett var árið 2002. Þórdís Geirsdóttir úr GK hefur eins höggs forystu í kvennaflokki á þær stöllur úr GR, Ragnhildi Sigurðardóttur og Önnu Lísu Jóhannsdóttur. Sport 29. maí 2005 00:01
Birgir í basli með Bermúda-grasið Birgir Leifur Hafþórsson er í 23.-31. sæti á móti í Marokkó þegar aðeins á eftir að leika einn hring en þetta mót er liður í áskorendamótaröð Evrópu. Birgir Leifur lék á 68 höggum í gær eða þrem undir pari en hann er sex undir pari samtals. Sport 29. maí 2005 00:01
Birgir Leifur endaði í 8. sæti Íslandsmeistarinn í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson, endaði í 8.-12. sæti á áskorendamótinu í Marokkó en hann lék á 66 höggum í dag og samtals á 11 höggum undir pari. Birgir Leifur fékk í dag 8 fugla, 8 pör, einn skolla og einn tvöfaldan skolla. Sport 29. maí 2005 00:01
Leonard efstur í Memphis Bandaríski kylfingurinn Justin Leonard hefur fimm högga forystu eftir tvo hringi á PGA-mótinu í Memphis og er samtals á 13. höggum undir pari. Fredric Jakobson frá Svíþjóð er annar á átta höggum undir pari. Í Wentworth á Englandi er sænski kylfingurinn Peter Hedbolm efstur með þriggja högga forystu eftir tvo hringi. Sá sænski er samtals á 11. höggum undir pari. Sport 28. maí 2005 00:01
Birgir Leifur á 5 undir pari Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér í dag áframhaldandi þátttöku á golfmótinu á Golf du Soleil-vellinum í Marokkó sem er hluti af Áskorendamótaröðinni. Hann lék með eindæmum vel í dag eða á 5 höggum undir pari, 66 höggum og er í 34. sæti fyrir lokahringina tvo. Sport 27. maí 2005 00:01
Ólöf María úr leik Íslandsmeistari kvenna í golfi, Ólöf María Jónsdóttir náði ekki að fylgja eftir velgengni sinni undanfarið í dag og er úr leik á opna austurríska mótinu sem er hluti af evrópsku mótaröðinni. Hún lék annan hringinn í dag á 75 höggum, þremur yfir pari. Sport 27. maí 2005 00:01
Ólöf á 5 yfir - Birgir á 1 undir Ólöf María Jónsdóttir, Íslandsmeistari í golfi kvenna, náði sér ekki á strik á fyrsta degi Evrópamótaraðarinnar í Austurríki í morgun. Hún lék fyrsta hringinn á 77 höggum eða fimm yfir pari. Birgir Leifur Hafþórsson er á einu höggi undir pari á móti í Marokkó. Sport 26. maí 2005 00:01
Perry sigraði á Colonial-mótinu Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry vann Colonial-mótið í bandarísku mótaröðinni með miklum yfirburðum í gærkvöldi. Hann lék á 261 höggi, eða á 19 undir pari sem er jafnbesti árangurinn á mótaröðinni í ár. Þetta var annar sigur Perrys á þremur árum á mótinu og annar sigur hans á tímabilinu. Billy Mayfair varð í öðru sæti sjö höggum á eftir Perry. Sport 23. maí 2005 00:01
Perry með sjö högga forystu Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry hefur sjö högga forystu fyrir lokahringinn á Colonial-mótinu í golfi sem er hluti af bandarísku mótaröðinni. Perry lék þriðja hringinn á 64 höggum og er samtals á 192 höggum eða 18 höggum undir pari. Sport 22. maí 2005 00:01
Perry með þriggja högga forystu Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry hefur forystu á Colonial-mótinu í golfi á bandarísku mótaröðinni. Perry, sem vann mótið fyrir tveimur árum, lék á sjö höggum undir pari vallar í gærkvöld og er samtals á 12 höggum undir pari, 128 höggum, og hefur þriggja högga forystu á DJ Trahan og Ted Purdy. Sport 21. maí 2005 00:01
Purdy sigraði á 15 undir Bandaríkjamaðurinn Ted Purdy sigraði á Byron Nelson mótinu í golfi í gærkvöldi. Hann lék samtals á 15 höggum undir pari. Annar, höggi á eftir, varð landi hans Sean O´Hair og Fídjieyingurinn Vijay Singh varð í þriðja sæti ásamt Bob Tway og Doug Barron. Sport 16. maí 2005 00:01
Woods úr leik á Byron Nelson Tiger Woods féll í gær úr leik á Byron Nelson mótinu í golfi sem fram fer í Texsas. Woods komst ekki í gegnum niðurskurðinn og var einu höggi frá því að komast áfram. Þetta er í fyrsta skipti í sjö ár sem Tiger Woods kemst ekki í gegnum niðurskurðinn og í þriðja skiptið á ferlinum. Bandaríkjamennirnir Sean O'Hair og Brett Wetterich eru efstir á níu höggum undir pari en sýnt verður beint frá mótinu á Sýn 2 annað kvöld. Sport 14. maí 2005 00:01