Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Sigurbjörn Bárðarson hestaþjálfari segist hafa orðið vitni að því þegar Margrét Halla Hansdóttir Löf beitti móður sína ofbeldi. Nokkrum dögum síðar hafi hún myrt föður sinn. Sigurbjörn leigði fjölskyldunni bás í hesthúsi sínu og segist lengi hafa furðað sig á því hversu illa Margrét hafi komið fram við foreldra sína. Innlent 24.2.2026 00:17
„Mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn“ Gróðureldarnir við Elliðavatn í gær eru meðal þeirra stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Hestamenn í Kópavogi óttuðust um tíma að eldarnir bærust í hesthúsin og segja það áfall að vera með eld í bakgarðinum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn sem gerði rýmingu hesthúsa erfiðari svo og slökkviliðsmönnum að komast á staðinn. Innlent 23.2.2026 19:03
Vildi fá hestinn endurgreiddan þar sem hann var með aukatönn Tvær íslenskar konur stóðu í lagadeilum vegna hrossakaupa en önnur þeirra krafðist endurgreiðslu þar sem hesturinn reyndist vera með aukatönn, sem hún taldi valda honum óþægindum. Endurgreiðsluna fékk hún þó ekki þar sem ekkert benti til þess að aukatönnin hefði áhrif á heilsu hans. Seljandinn var því sýknaður. Innlent 13.2.2026 18:19
Sigurbjörn gæti snúið aftur til starfa: „Það kemur bara í ljós á næstu dögum“ Sigurbjörn Bárðarson tilkynnti í síðustu viku að hann væri hættur sem þjálfari íslenska landsliðsins í hestaíþróttum, en haldið í hestana ykkar, hann gæti snúið aftur til starfa á allra næstu dögum. Sport 22. október 2025 09:32
Gummi Emil sver af sér ásakanir um dýraníð: „Ég bað hestinn afsökunar“ Guðmundur Emil Jóhannsson, einkaþjálfari og áhrifavaldur, hefur beðist afsökunar á harkalegri meðferð á hesti sem hann sat, við tökur á nýju tónlistarmyndbandi. Myndband af athæfinu hefur mætt mikilli gagnrýni, og hann verið sakaður um dýraníð. Hann segir það fjarri lagi. Innlent 15. október 2025 16:12
Veðreiðafólk fer í verkfall og mótmælir við breska þingið Knapar, þjálfarar og eigendur leggja niður svipur, beisli og tauma í dag, til að mótmæla fyrirhuguðum hækkunum á sköttum tengdum veðmálum við kappreiðar. Til stendur að hækka skattinn í sömu prósentu og gildir um allar aðrar tegundir af veðmálum. Sport 10. september 2025 10:00
Féll af baki íslensks hests og fær engar skaðabætur Þýsk ferðakona fær ekki bætur frá íslensku tryggingafélagi eftir að hafa slasast á hestbaki hjá íslensku ferðaþjónustufyrirtæki. Ekki þótti sannað að fyrirtækið hefði sýnt af sér saknæma háttsemi. Öllu heldur hefði verið um viðbúið óhappatilvik að ræða. Innlent 8. september 2025 13:51
„Það bjó enginn í húsinu“ Enginn býr í hesthúsinu sem brann í Hafnarfirði um helgina að sögn hestamanns sem leigir húsið undir hrossin sín. Dæmi hafi þó komið upp um að fólk dvelji í hesthúsum á svæðinu. Hestarnir hans voru blessunarlega ekki inni í húsinu þegar eldurinn kom upp en hann er miður sín yfir tjóninu enda hafi margir munir „fuðrað upp“ í brunanum. Innlent 17. ágúst 2025 16:37
Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Fólk hefur búið í hesthúsum í Hafnarfirði þar sem eldur kom upp í nótt. Sveinn Heiðar Jóhannesson, varaformaður stjórnar Hestamannafélagsins Sörla, greinir frá því í samtali við fréttastofu og segir að félagið og aðrir hafi talað um það fyrir daufum eyrum Hafnarfjarðarbæjar. Innlent 16. ágúst 2025 14:01
Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Íslensk hestakona lauk keppni í erfiðustu kappreiðum í heimi í dag. Hún er ánægð með að hafa náð að ljúka keppninni og mun fagna árangrinum í kvöld. Lífið 13. ágúst 2025 11:18
Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana Nýverið hefur verið fjallað um þátttöku hestakonu í erlendri kappreið sem ber yfirskriftina The Mongol Derby og kynnt sem krefjandi ævintýri á hálfvilltum hestum. Kappreiðin fer fram í Mongólíu og gengur út á að keppendur fari eins hratt og hægt er 1.000 kílómetra á hestbaki. Skoðun 12. ágúst 2025 09:00
„Þá sér maður að það brestur margur og klökknar“ Heimsmeistaramóti íslenska hestsins lauk í Sviss í gær. Landsliðsþjálfari íslenska liðsins segir árangurinn á mótinu hafa verið frábæran og að tár hafi fallið hjá knöpum sem þurfa nú að skilja við hestana sína erlendis vegna sóttvarnalaga. Sport 11. ágúst 2025 12:15
Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Hryssan Atorka féll frá fjögurra vikna folaldinu Tígli sem tók að horast í kjölfarið. Á nálægum bæ hafði hryssan Hermína misst folaldið sitt í köstun. Þau voru kynnt hvort fyrir öðru og hefur myndast með þeim fallegt mæðginasamband. Lífið 3. ágúst 2025 14:24
Bergþórshvoll brenndur á fjögurra daga Njáluhátíð Njálsbrenna verður sviðsett og Bergþórshvoll brenndur með hópreið 99 brennumanna á fjögurra daga Njáluhátíð sem nýstofnað Njálufélag undir forystu Guðna Ágústssonar, fyrrverandi ráðherra, efnir til í Rangárþingi í næsta mánuði. Guðni segir þetta verða tignarlegustu sjón allra tíma. Innlent 22. júlí 2025 22:23
Getur verið erfitt að kveðja: „Það var aðeins grátið“ Heimsmeistaramót íslenska hestsins fer fram í byrjun ágúst. Að mörgu þarf að huga fyrir slíkt mót og geta tilfinningarnar verið miklar að því loknu. Markmið keppenda eru þá skýr. Sport 17. júlí 2025 09:33
Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Anna Guðný Baldursdóttir bóndi undirbýr sig núna fyrir þátttöku í lengstu og erfiðustu kappreið heims, Mongol Derby. Keppnin hefst þann 4. ágúst í Ulaanbatar. Anna Guðný segir það langþráðan draum að taka þátt í keppninni. Aðeins einu sinni áður hefur Íslendingur tekið þátt en það var Aníta Aradóttir árið 2014. 46 taka þátt í keppninni í ár. Innlent 11. júlí 2025 07:03
Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Landsliðshópur Íslands fyrir heimsmeistaramót íslenska hestsins í Sviss var opinberaður með pompi og prakt í höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði síðdegis. Tæpur mánuður er í mót og spenna á meðal HM-fara. Sport 9. júlí 2025 17:38
Einstök litasamsetning á Prinsi Greifa Liturinn á hestinum Prins Greifa í Vestur Landeyjum vekur alltaf mikla athygli en hann er Brún ýruskjóttur varblesóttur og eini hesturinn hér á landi með þannig litasamsetningu. Innlent 6. júlí 2025 20:07
Táningsstúlkan sem lést var að teyma íslenskan hest Dönsk táningsstúlka sem lést í hestaslysi skammt frá Silkiborg í Danmörku í fyrradag var að teyma íslenskan hest þegar slysið varð. Erlent 2. júlí 2025 11:29
Hryssan Hlökk er „Dekurprinsessa“ hjá Ásmundi Erni Hryssan Hlökk er eitt allra efnilegasta hross, sem hefur komið fram hér á landi en hún og knapi hennar, Ásmundur Ernir Snorrason unnu öll helstu verðlaun á Íslandsmóti á Selfossi um helgina. „ Dekurprinsessa“, segir Ásmundur. Innlent 1. júlí 2025 20:05
„Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, fagnar því að ástarfundur þeirra Gleði og Hreyfils hafi borið árangur og bíður spenntur eftir afkvæminu sem verður kastað í vor, hvort sem það verður hryssa eða foli. Lífið 1. júlí 2025 11:41
Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Sextán ára gömul stúlka lést af sárum sínum þegar hestur sem hún teymdi tók skyndilega á rás og dró hana hundruð metra eftir jörðinni við Silkiborg á Jótlandi í morgun. Slysið átti sér stað á kynbótastöð. Erlent 30. júní 2025 15:41
Stóðhryssur ekki moldvörpur Antílópur eru ekki heldur mýs. Þetta vita dýralæknar og þeir þekkja muninn á blóðhag dýra. Skoðun 25. júní 2025 14:31
Var lengi hikandi að selja Ratcliffe laxveiðijarðirnar Cargolux-flugstjórinn fyrrverandi, sem safnaði laxveiðijörðum í Vopnafirði, segist hafa selt þær breska auðkýfingnum Jim Ratcliffe eftir að hafa sannfærst um að þar færi einlægur náttúruverndarsinni sem vildi vernda laxastofninn. Innlent 12. júní 2025 10:20