Átta leikmenn Túnis féllu á lyfjaprófi Ólöglegt efni mældist í blóði átta leikmanna landsliðs Túnis sem féll á dögunum úr leik á HM karla í fótbolta. Þeim verður þó ekki refsað fyrir. Fótbolti 3. júlí 2026 14:10
Þýska sambandið vill ræða við Klopp eftir afsögn Nagelsmann Þýska knattspyrnusambandið vill ræða við Jürgen Klopp um að taka við sem þjálfari karlalandsliðsins í fótbolta eftir að Julian Nagelsmann sagði af sér. Fótbolti 3. júlí 2026 14:01
Lögreglumaður lést eftir árás þar sem sýnt var frá HM-leik á risaskjá Sænskur lögreglumaður er látinn eftir að hafa slasast alvarlega þegar uppþot brutust út í miðborg Kaupmannahafnar þar sem sýnt var frá HM-leik á risaskjá. Fótbolti 3. júlí 2026 13:44
Bandarísk borg setur á útgöngubann eftir leik Grænhöfðaeyja Hluti af HM-fögnuðinum í Brockton í Massachusetts-fylki hefur farið úr böndunum og nú er gripið til aðgerða fyrir leik Grænhöfðaeyja gegn Argentínu í nótt. Fótbolti 3. júlí 2026 13:02
HM-maður dagsins: Simon er einstakur í sögu HM Spænski markvörðurinn Unai Simon setti í gær nýtt met með því að verða sá markvörður sem hefur haldið hreinu lengst í sögu heimsmeistaramóts FIFA. Fótbolti 3. júlí 2026 10:00
Nagelsmann hættir sem landsliðsþjálfari: Er Klopp að fara að taka við? Þýskir fjölmiðlar sögðu frá því í morgun að Julian Nagelsmann væri hættur sem þjálfari þýska karlalandsliðsins í fótbolta. Fótbolti 3. júlí 2026 08:11
Stórstjörnur hætta með landsliðinu eftir að hafa dottið út af HM Bæði alsírski stjörnuleikmaðurinn Riyad Mahrez og Austurríkismaðurinn Marko Arnautovic hætta með landsliðum sínum eftir leiki næturinnar í heimsmeistarakeppninni í fótbolta. Fótbolti 3. júlí 2026 07:49
Dómari útskýrir af hverju Messi slapp en Balogun fékk rautt Mörgum finnst örlög Lionel Messi og örlög Bandaríkjamannsins Folarin Balogun vera gott dæmi um Jón og Séra-Jón meðferð á heimsmeistaramótinu í fótbolta en dómari er ekki sammála því. Fótbolti 3. júlí 2026 07:32
Sjáðu stuðningsmenn Kongó fagna marki á Englandi Hópur stuðningsmanna Kongó var búinn að safna sér saman á götum Lundúna fyrir leik Englands og Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Stuðningsmennirnir fögnuðu innilega þegar Kongó komst yfir í leiknum en England endaði á að vinna leikinn 2-1. Fótbolti 3. júlí 2026 07:01
Tæknin kom Portúgal til bjargar og endaði drauma Króata Myndbandsdómgæslan réði úrslitum í æsispennandi leik Portúgals og Króatíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í nótt. Portúgal vann 2-1 en Króatar grétu afskipti Varsjárinnar í blálokin. Fótbolti 3. júlí 2026 06:40
Ronaldo tárvotur eftir leik: „Við unnum fyrir Diogo“ Portúgal og Sviss tryggðu sér bæði sæti í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í fótbolta í nótt en Króatía og Alsír eru hins vegar úr leik. Það var dramatík í lok Portúgalsleiksins og eftir hann líka. Fótbolti 3. júlí 2026 06:16
Barir á Englandi opnir lengur á meðan England spilar Breska þingið hefur gefið börum á Englandi leyfi til að hafa opið til fimm um morguninn á mánudaginn þegar England mætir Mexíkó í 16-liða úrslitum HM í fótbolta. Leikurinn mun byrja klukkan eitt eftir miðnætti á enskum tíma. Fótbolti 2. júlí 2026 23:15
Mun Nagelsmann hætta með landsliðið eða verður hann rekinn? Miklar sögusagnir eru í gangi um framtíð Julian Nagelsmann, landsliðsþjálfara Þýskalands, um að hann segi af sér. Þýskaland olli vonbrigðum á heimsmeistaramótinu í fótbolta og datt út í 32-liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni gegn Paragvæ. Fótbolti 2. júlí 2026 22:31
Uefa gefur ekki rautt fyrir að hylja munninn Uefa hefur staðfest að leikmenn munu ekki fá rautt spjald fyrir að hylja munninn sinn þegar talað er við mótherja í keppnum á vegum sambandsins. Þessi regla var sett á HM eftir atvik sem gerðist í leik á vegum Uefa. Fótbolti 2. júlí 2026 20:30
Spánverjar sýndu sitt rétta andlit í 32-liða úrslitum Spánn mætti Austurríki í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Spánverjar sýndu yfirburðaframmistöðu í Los Angeles og vann leikinn 3-0. Fótbolti 2. júlí 2026 18:30
HM-þjálfari kvaddi með maraþonblaðamannafundi Marcelo Bielsa er hættur sem landsliðsþjálfari Úrúgvæ en liðinu gekk illa á HM og féll úr leik í riðlakeppninni. Fótbolti 2. júlí 2026 14:31
Hvor goðsögnin kveður í kvöld? Í kvöld mætast Portúgal og Króatía í einum af stærstu leikjum 32 liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta og þar munu goðsagnirnar Luka Modrić og Cristiano Ronaldo reyna að forðast kveðjuleik á HM-ferlinum sínum. Fótbolti 2. júlí 2026 14:00
Eiður Smári besti sérfræðingurinn á HM Eiður Smári Guðjohnsen hefur staðið sig vel sem sérfræðingur í útsendingum Ríkissjónvarpsins frá heimsmeistarakeppninni í fótbolta og það kemur líka vel fram í könnun Fótbolta.net. Fótbolti 2. júlí 2026 13:48
Ekki hrifinn af því að spila í bakverði Declan Rice, miðjumaður Arsenal og enska landsliðsins, þurfti að leysa hægri bakvarðarstöðuna á lokakafla 2-1 sigurs liðsins á Kongó í 32-liða úrslitum á HM í gær. Hann hrífst ekkert sérlega af því að spila stöðuna. Fótbolti 2. júlí 2026 13:31
Forseti Grænhöfðaeyja: „Við getum unnið Argentínu 1-0“ José Maria Neves, forseti Grænhöfðaeyja, hefur sagt að hann telji að land sitt „geti unnið Argentínu 1-0“ í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 2. júlí 2026 13:02
Stuðningsmennirnir skapað mikinn áhuga á víkingaöldinni Norskir áhorfendur hafa skapað sannkallað HM-æði með því að róa í stúkunni og á öllum mögulegum öðrum stöðum í Bandaríkjunum og hafa þannig aukið áhuga á víkingaöldinni. Þetta kemur fram á vef norska ríkisútvarpsins. Fótbolti 2. júlí 2026 11:32
Maður dagsins á HM: Harry Kane hoppaði upp fyrir Pelé Harry Kane kom enska fótboltalandsliðinu til bjargar á móti Kongómönnum í gær og sá öðrum fremur til þess að liðið spilaði í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar. Fótbolti 2. júlí 2026 10:02
Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Í um átta mínútur svaraði landsliðsþjálfari Kongó, Sébastien Desabre, spurningum kurteislega áður en blaðamannafundurinn tók óvæntan og sorglegan endi. Fótbolti 2. júlí 2026 09:30
„Leyfið börnunum að vaka“ Landsliðsþjálfari Englendinga hvetur enska foreldra til að leyfa börnum að vaka yfir leik Englands í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 2. júlí 2026 09:01
Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Grátlegt tap gegn Belgíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gærkvöldi var mörgum Senegölum erfitt og fyrir miðjustjörnuna Pape Gueye var þetta síðasti landsleikurinn í bili. Hann neitar nú að spila undir stjórn núverandi landsliðsþjálfara, Pape Thiaw. Fótbolti 2. júlí 2026 07:32
Skoraði mikilvægt mark fyrir Bandaríkjamenn en fékk svo rautt spjald Stjörnuframherjinn Folarin Balogun var mikið í sviðsljósinu í nótt þegar Bandaríkjamenn tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins í fótbolta. Fótbolti 2. júlí 2026 06:20
Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Belgía er komin í sextán liða úrslit heimsmeistaramótsins í fótbolta eftir ótrúlegan endurkomusigur á Senegal, 3-2, í Seattle. Youri Tielemans skoraði sigurmark Belga þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma í framlengingu. Fótbolti 1. júlí 2026 22:55
Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Belgar knúðu fram framlengingu í leiknum gegn Senegölum í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins. Allt virtist í hers höndum hjá belgíska liðinu en leikmenn sem rifust bjuggu til jöfnunarmarkið. Fótbolti 1. júlí 2026 22:17
Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Harry Kane bjargaði andliti enska fótboltalandsliðsins þegar það mætti Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag. Landsliðsþjálfari Englands hrósaði honum eftir leikinn. Fótbolti 1. júlí 2026 19:47
Kane bjargaði enskum Harry Kane kom Englandi til bjargar gegn Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í dag. Englendingar lentu undir en Kane skoraði tvö mörk undir lok leiksins og skaut enska liðinu áfram, 2-1. England mætir heimaliði Mexíkó í sextán liða úrslitum HM aðfaranótt mánudags. Fótbolti 1. júlí 2026 18:00