Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Sindri Sverrisson skrifar 10. júlí 2026 10:02 Ousmane Dembélé er sáttur við sitt hlutverk hjá Didier Deschamps og þeir fögnuðu saman eftir sigurinn gegn Marokkó í gærkvöld. Getty Það segir sitt um franska landsliðið að þó að Ousmane Dembélé hafi unnið Ballon d‘Or síðasta haust þá er hann ekki aðalmaðurinn í liðinu. Hlutverk hans hefur þó verið stórt á HM og þessi 29 ára sóknarmaður er kominn í þriggja manna elítuhóp í sögu franska landsliðsins.
Marokkóbúar voru enn að ná áttum eftir mark frá Kylian Mbappé þegar Dembélé fékk boltann og lét vaða rétt utan teigs, til að skora seinna markið í 2-0 sigri Frakka í fyrsta leik 8-liða úrslita HM í gær. Marokkó náði aldrei að svara þessu og nú bíða Frakkar þess að vita hvort þeir mæti Spáni eða Belgíu í undanúrslitunum á þriðjudagskvöld. Þrátt fyrir að hafa unnið sér inn 9-hlutverkið sem fremsti sóknarmaður PSG, undir stjórn Luis Enrique, og raðað inn mörkum fyrir liðið sem nú hefur unnið Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð, hefur Dembélé ekki fengið sama hlutverk í franska landsliðinu. Sjö mörk alls fyrir HM en fimm á HM Didier Deschamps treystir á Mbappé sem fremsta mann enda hefur það gefið góða raun. „Hann lætur mig enn spila á hægri kantinum,“ hefur Dembélé sagt í gríni. „Ég læt þig spila vinstra megin,“ svaraði Deschamps. Það skiptir ekki öllu máli hvar Dembélé spilar enda fær hann mikið frelsi í leik Frakka og hefur á HM náð að láta ljós sitt skína, og þaggað niður í gagnrýnisröddum. Fyrir HM hafði Dembélé aðeins skorað sjö mörk í 58 landsleikjum. Núna er hann orðinn aðeins þriðji leikmaðurinn í sögu franska landsliðsins sem nær að skora fimm mörk á einu og sama heimsmeistaramótinu. Hinir eru Mbappé, sem vissulega er kominn með átta á þessu móti, og Just Fontaine. View this post on Instagram A post shared by FIFA (@fifa) Flestir þekkja söguna af því hvernig Dembélé hefur farið frá því að eyða allt of miklum tíma í að spila tölvuleiki, og jafnvel misst af æfingu hjá Barcelona af þeim sökum, í að blómstra loks á síðustu árum með PSG. Hann skoraði 24 mörk í 127 deildarleikjum með Barcelona en sló rækilega í gegn hjá PSG eftir að Mbappé fór, skoraði 35 mörk í 53 leikjum tímabilið 2024-25 og var eins og fyrr segir heiðraður með Gullboltanum síðasta haust. Deschamps virðist nú takast að láta báða menn blómstra í franska liðinu, í hreint út sagt geigvænlegri sóknarlínu, og flestir sammála um að Frakkland sé líklegast til að landa heimsmeistaratitlinum en á það mun reyna í undanúrslitunum á þriðjudaginn.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Dagskráin í dag: Haaland í Portúgal, Formúla 1 og kapphlaup Blika og FH-inga Sport Fleiri fréttir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira