
Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann
Joel Embiid, miðherji og súperstjarna Philadelphia 76ers liðsins, var í gær dæmdur í þriggja leikja bann af NBA deildinni í körfubolta.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Joel Embiid, miðherji og súperstjarna Philadelphia 76ers liðsins, var í gær dæmdur í þriggja leikja bann af NBA deildinni í körfubolta.
Andri Már Eggertsson, Nablinn, og Tómas Steindórsson skelltu sér í menningar- og skemmtiferð til Keflavíkur vegna leiks Keflvíkinga og KR-inga í Bónus deild karla. Afraksturinn var sýndur í Körfuboltakvöldi Extra.
Grindvíkingurinn Bragi Guðmundsson er á sínu fyrsta tímabili með Campbell skólanum í bandaríska háskólakörfuboltanum og það er óhætt að segja að strákurinn byrji vel.
Ein besta körfuboltakonan landsins hefur sett hring utan um leik í bikarkeppninni í dagatalið. Sara Rún stefnir á endurkomu gegn Njarðvík í desember.
Pavel Ermolinskij vill sjá hugarfarsbreytingu hjá Keflvíkingum þegar kemur að varnarleik. Hann elskar hugarfarið sóknarlega en sama hegðun gangi einfaldlega ekki upp varnarlega.
Chicago Bulls-treyja sem Michael Jordan notaði á tímabilinu 1996-97 seldist fyrir 4,68 milljónir dollara, eða 642 milljónir íslenskra króna, á uppboði Sotheby's.
Bandaríski körfuboltamaðurinn Wendell Green hefur spilað sinn síðasta leik með Keflavík í Bonus deild karla í körfubolta en félagið hefur ákveðið að láta hann fara eins og kom fram á Vísi í morgun.
Stjarna Memphis Grizzlies, Ja Morant, sýndi stórkostleg tilþrif og skoraði ótrúlega körfu gegn Brooklyn Nets, ekki eina heldur tvær.
Rúnar Ingi Erlingsson segir að það hafi verið hans versta martröð að byrja illa sem þjálfari karlaliðs Njarðvíkur. Liðið hefur nú unnið fjóra leik í röð í Bónusdeildinni en fyrir tímabilið var því spáð í neðri hlutanum.
Magnús Sverrir Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, segir það hafa verið erfiða ákvörðun að láta Bandaríkjamanninn Wendell Green fara frá félaginu. Vandræði utan vallar hafi haft sitt að segja auk vonbrigða innan vallar.
Gregg Popovich, þjálfari San Antonio Spurs, mun ekki stýra liðinu á næstunni eftir að hann veiktist skyndilega fyrir leik liðsins um helgina.
Keflavík hefur ákveðið að láta Bandaríkjamanninn Wendell Green fara frá félaginu. Þetta herma heimildir Vísis.
Grannar tókust á í Hveragerði í kvöld þegar Hamar mætti Selfossi í 1. deild karla í körfubolta. Hamarsmenn unnu öruggan tuttugu stiga sigur, 105-85.
Joel Embiid, leikmaður Philadelphia 76ers, er til umræðu í þætti kvöldsins af Lögmáli leiksins. Misfögrum orðum er farið um Frakkann.
Detriot Pistons mætti Brooklyn Nets í NBA deildinni í körfubolta í gærkvöldi og vann góðan sigur. Það var þó ferðalag leikmanna liðsins á leikinn sem vakti einna helst athygli.
Framkvæmdastjóri Körfuknattleikssamband Íslands fer í leyfi á morgun og snýr ekki til baka fyrr en í desember.
Tindastóll hafði betur gegn Stjörnunni í æsispennandi og frábærum leik í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld, 92-87.
Martin Hermannsson átti stórleik fyrir Alba Berlin og skoraði 28 stig, en það dugði ekki til. 87-82 tap varð niðurstaðan gegn Bamberg.
Tindastóll tekur á móti Stjörnunni í fyrsta leik sjöttu umferðar Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. Þetta eru tvö heitustu lið landsins um þessar mundir og hefur Stjarnan enn ekki tapað leik í deildinni. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari liðsins, þekkir vel til Tindastóls og Sauðárkróks og er spenntur fyrir því að stíga inn í Síkið í kvöld.
Pavel Ermolinskij og Helgi Már Magnússon svöruðu spurningum Stefáns Árna Pálssonar á Körfuboltakvöldi eftir fimmtu umferð Bónus deildar karla. Meðal þess sem þeir veltu fyrir sér var hvort Höttur gæti fallið, hvort Stjarnan yrði deildarmeistari og hvort Njarðvík gæti orðið Íslandsmeistari.
Cleveland Cavaliers rétt mörðu eins stigs sigur gegn Milwaukee Bucks. Oklahoma City Thunder unnu öruggan þrettán stiga sigur gegn Los Angeles Clippers. Bæði lið hafa unnið alla sína leiki í upphafi tímabils og sitja í efstu sætum austur- og vesturdeildanna.
Joel Embiid lenti í áflogum við blaðamann eftir leik gegn Memphis Grizzlies í nótt, sem endaði með 124-107 tapi Philadelphia 76ers. Embiid öskraði á og réðst síðan á blaðamann sem hafði skrifað um látinn bróður hans og nýfæddan son.
ÍR tókst næstum því að vinna leik í Bónus deild karla síðasta fimmtudag en kastaði forystunni frá sér undir lokin gegn Álftanesi. Haukar eru einnig án sigurs eftir eins stigs tap gegn Þór Þorlákshöfn. Farið var yfir lánlausu liðin á Körfuboltakvöldi Stöðvar 2 Sport í gær.
Elvar Már Friðriksson lék með Maroussi í 80-81 tapi gegn sínu gamla liði PAOK í fimmtu umferð grísku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta, hafnar því alfarið að hann hafi verið að elta eða áreita Alexis Morris, leikmann Grindavíkur, í Smáranum á þriðjudag eins og Morris hefur sjálf haldið fram.
Körfuboltakonan Alexis Morris segist aldrei hafa lent í því áður að þjálfari vanvirði hana með blótsyrðum, eins og Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari Keflavíkur gerði við lok leiks í Bónus-deildinni á þriðjudag. Hún kveðst hafa verið óörugg þegar Friðrik hafi elt hana inn í sal eftir leik.
Keflavík tók á móti KR í Blue höllinni í kvöld í lokaleik fimmtu umferðar Bónus deild karla. Eftir örlitla eyðimerkurgöngu var það Keflavík sem komst aftur á sigurbraut með sex stiga sigri, 94-88.
Keflavík tók á móti KR í 5. umferð Bónus deild karla í Blue höllinni í kvöld. Keflavík hafði fyrir leikinn í kvöld tapað þremur leikjum í röð en komust aftur á sigurbraut í kvöld með sex stiga sigri, 94-88.
Þór Þorlákshöfn lagði Hauka að velli 82-81 þegar liðin leiddu saman hesta sína í fimmtu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í Icelandic Glacial-höllinni í kvöld. Þór Þorlákshöfn komst upp að hlið Njarðvík og Tindastóli með þessum sigri en Haukar eru ásamt ÍR án sigurs á botni deildarinnar.
Patrick Mahomes, leikstjórnandi Kansas City Chiefs í NFL, vill eignast fleiri íþróttafélög. Núna er hann með augum á kvennakörfuboltaliði.