„Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Mikil barátta er um annað sætið í Bestu deild karla og mætast liðin í þeirri baráttu í kvöld. KR er sem stendur í öðru sæti deildarinnar en liðið fer í heimsókn til Fram í kvöld þar sem Framarar eru einu stigi fyrir neðan KR í þriðja sætinu. Íslenski boltinn 10. október 2026 09:32
„Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, var sáttur við kafla í leik sinna manna þegar liðið bar sigurorð af Grindavík í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Seinni hálfleikurinn og tempóið þar hafi verið meira að hans skapi. Körfubolti 9. október 2026 22:36
Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur KR fór með sigur af hólmi þegar liðið sótti ríkjandi Íslandsmeistara, Grindavík, heim í HS Orku-höllina í fyrstu umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 9. október 2026 21:36
Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Keppni hefst í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld og búist við mikilli spennu meðal bestu liða landsins. Álftanes hefur farið hamförum á markaðnum í sumar og Tindastóll er sem fyrr með gríðarsterkt lið. KR og Stjarnan mæta einnig öflug til leiks. Körfubolti 8. október 2026 10:30
KR vann erkifjendurna sannfærandi Valur tók á móti KR í sannkölluðum Reykjavíkurslag í Bónus-deild kvenna í körfubolta. KR náði að vinna erkifjendurna á útivelli og endaði leikurinn 84-68. Körfubolti 6. október 2026 21:08
Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sunddeild KR hefur ráðið nýjan yfirþjálfara deildarinnar eftir að fyrrverandi yfirþjálfari var handtekinn grunaður um líkamsárás á sundþjálfara Gróttu á dögunum. Sport 5. október 2026 10:29
„Við þurfum að gera margt betur“ KR-ingar eru meistarar meistaranna eftir öruggan sigur á Grindavík í kvöld en Jakob Sigurðsson, þjálfari KR, segir margt þurfa að laga í leik liðsins. Körfubolti 3. október 2026 21:48
Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna KR-ingar eru meistarar meistaranna í körfubolta 2026 eftir nokkuð þægilegan sigur á Grindvíkingum í Grindavík. Lokatölur 106-79. Körfubolti 3. október 2026 18:45
Óðinn heim í KR Óðinn Bjarkason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í morgun. Sport 2. október 2026 10:59
Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fimmtán og sextán ára stelpur úr KR og HK fengu medalíur merktar strákum eftir úrslitaleik sinn í Vesturbænum í gær, í Íslandsmóti B-liða í 3. flokki. Framkvæmdastjóri KSÍ biður leikmenn og félögin afsökunar en þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem mistök verða í verðlaunaafhendingu hjá íslenskum fótboltastelpum. Fótbolti 30. september 2026 10:37
„Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, var sáttur við sóknarleikinn en ósáttur við varnarleikinn þegar lið hans lagði Stjörnuna að velli í fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Körfubolti 29. september 2026 22:29
Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik KR-ingar báru sigurorð af Stjörnunni þegar liðin áttust við fyrstu umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta á Meistaravöllum í Vesturbænum í kvöld. Lokatölur í leiknum urðu 94-87 KR í vil. Körfubolti 29. september 2026 21:08
Meiri pressa á sterkara KR-liði KR var til umræðu í upphitunarþætti fyrir tímabilið í Bónus-deild kvenna í körfubolta í gærkvöld. Keppni hefst í deildinni í kvöld. Körfubolti 29. september 2026 12:30
Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Zoltán Belányi, sundþjálfara hjá KR, sárnar að hafa ítrekað verið tengdur við líkamsárás í síðustu viku. Hann er ekki viðriðinn málið og segir að tengingin sé skaðleg fyrir mannorð sitt og orðspor. Innlent 25. september 2026 13:44
Mattías Kjeld valdi KR Mattías Kjeld hefur skrifað undir þriggja ára samning við Bestu deildar lið KR og gengur í raðir félagsins frá Gróttu eftir að hafa heillað í Lengjudeildinni á nýafstöðnu tímabili. Íslenski boltinn 25. september 2026 11:09
„Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Sérfræðingar Stúkunnar lofsömuðu Gylfa Þór Sigurðsson og hans frammistöðu er Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn annað tímabilið í röð með sigri gegn KR um nýliðna helgi. Íslenski boltinn 22. september 2026 10:32
Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sérfræðingar Stúkunnar eru á því að Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, hafi með ummælum sínum um Víkinga í viðtölum bara kveikt neista hjá nýkrýndu Íslandsmeisturunum úr Fossvoginum. Íslenski boltinn 22. september 2026 08:31
Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Omar Sowe er á leið frá ÍBV til KR þegar samningur hans rennur út í nóvember. Hann á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun í Vesturbæ. Íslenski boltinn 21. september 2026 13:55
Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, sér ekki eftir því að hafa talað digurbarkalega nú þegar að Víkingur Reykjavík hefur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Framherji Víkinga skaut á Aron á samfélagsmiðlum eftir að titillinn var í höfn. Íslenski boltinn 21. september 2026 10:31
Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ Guðjón Þórðarson, einn reynslumesti og sigursælasti knattspyrnuþjálfari Íslands frá upphafi, segist eiga í „bölvuðu basli“ með heilsuna. Íslenski boltinn 21. september 2026 08:26
„Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Aron Elís Þrándarson fagnaði vel sigri Víkings á KR á Meistaravöllum í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Sigurinn tryggði Víkingum Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Íslenski boltinn 19. september 2026 17:55
„Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var svekktur eftir tap liðsins fyrir Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Víkingar unnu leikinn 2-1 og tryggðu sér þannig Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum. Íslenski boltinn 19. september 2026 17:39
Læti í göngunum eftir leik Upp úr sauð milli starfsmanna KR og Víkings auk leikmanna eftir leik liðanna á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í dag. Íslenski boltinn 19. september 2026 17:08
Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Víkingur er Íslandsmeistari karla í fótbolta annað árið í röð eftir 2-1 sigur á KR að Meistaravöllum í skrautlegum leik í Bestu deild karla. Fimm rauð spjöld fóru á loft. Íslenski boltinn 19. september 2026 17:00
Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Þetta er titill undir,“ segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um leik dagsins við KR í Bestu deild karla. Víkingur verður Íslandsmeistari með sigri. Sonur Sölva á þá fyrir höndum úrslitaleik á Laugardalsvelli. Íslenski boltinn 19. september 2026 10:01
„Ég ýtti bara aðeins við honum“ Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, segir atvik líkt og það sem varð milli hans og Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR, í síðasta leik liðanna vera hluti af leiknum. Liðin mætast aftur í dag og Víkingur verður meistari með sigri. Íslenski boltinn 19. september 2026 09:03
KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Alvarlegt atvik sem kom upp í gær, þar sem sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn, er á afar viðkvæmu stigi. Það er einnig í vinnslu hjá samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs og hjá lögreglu. Í tölvupósti frá félaginu segir að nú sé mikilvægt að sýna samhug og hlúa hvert að öðru. Innlent 18. september 2026 18:34
Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Sundþjálfari hjá KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á kollega sinn hjá Gróttu fyrir stefnumótunarfund Sundsambands Íslands í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Forseti ÍSÍ lítur málið alvarlegum augum og hlúði að sundþjálfaranum sem slasaðist á vettvangi. Innlent 18. september 2026 14:54
Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik KR-ingar eru klárir fyrir annan risaleik við Víkinga á skömmum tíma, í Bestu deildinni í fótbolta, og hafa engan áhuga á að sjá gestina fagna Íslandsmeistaratitli á morgun. Myndavélakerfi hefur verið sett upp á Meistaravöllum eftir skemmdarverkin fyrir síðasta leik liðanna. Íslenski boltinn 18. september 2026 13:01
Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, tók virkan þátt í sóknarleik liðsins og minnti oft meira á bakvörð, í sigrinum gegn ÍA í Bestu deildinni um helgina. Sérfræðingum Stúkunnar var skemmt en þeir drógu jafnframt í efa að svona tilburðir sæjust ef KR væri enn í harðri baráttu um titil. Íslenski boltinn 16. september 2026 09:36