Liverpool FC

Liverpool FC

Fréttir af enska fótboltaliðinu Liverpool FC.

Fréttamynd

Kröfur um­boðs­manns Salah valda vand­ræðum

Stjórnendur hjá tyrkneska liðinu Besiktas vonast til að komast að samkomulagi við Egyptann Mohamed Salah um að leika með liðinu. Háar kröfur umboðsmanns leikmannsins um kjör í eigin vasa hafa valdið vandræðum. Vera má að Salah endi í Bandaríkjunum.

Fótbolti
Fréttamynd

Haus­verkur fyrir Iraola

Miðvarðarstaðan olli mörgum stuðningsmönnum Liverpool hugarangri síðasta vetur er liðið lék undir stjórn Arne Slot. Það virðist vera hausverkur sem eftirmaður hans erfir.

Enski boltinn
Fréttamynd

Sigur í fyrsta leik Iraola hjá Liverpool

Andoni Iraola byrjar vel sem þjálfari Liverpool en hann stjórnaði liðinu í sínum fyrsta leik í gærkvöldi. Liðið mætti Sunderland í vináttuleik og vann Liverpool öruggan 4-2 sigur.

Fótbolti
Fréttamynd

„Okkur vantar klár­lega kantmann“

Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, segir augljóst að félagið þurfi að styrkja ákveðnar stöður í leikmannahópi þess fyrir komandi leiktíð. Undirbúningstímabil liðsins er komið á fullt í Chicago í Bandaríkjunum.

Enski boltinn
Fréttamynd

Szoboszlai fram­lengir samninginn við Liverpool

Dominik Szoboszlai hefur endurnýjað samning sinn við enska knattspyrnufélagið Liverpool til ársins 2031. Fyrri samningur hans hefði runnið út næsta sumar og ungverski miðjumaðurinn var sterklega orðaður við brottför til Real Madrid.

Enski boltinn
Fréttamynd

„Ég verð að spila“

Federico Chiesa íhugar að yfirgefa Liverpool til að spila meiri fótbolta. Hann mun taka stöðuna með nýjum stjóra þegar undirbúningstímabilið fer af stað.

Enski boltinn
Fréttamynd

Þrír Arsenal-leik­menn til­nefndir sem leik­maður ársins

Declan Rice, Gabriel og David Raya úr Arsenal hafa allir verið tilnefndir til verðlauna Samtaka atvinnuknattspyrnumanna sem leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni en þeir eru á listanum ásamt Bruno Fernandes úr Manchester United og tvíeykinu Erling Haaland og Rayan Cherki úr Manchester City.

Enski boltinn