
Orri yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeildinni
Orri Steinn Óskarsson, leikmaður FC Kaupmannahafnar, varð í gær yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu frá upphafi.
Keppni hinna bestu í Evrópu.
Orri Steinn Óskarsson, leikmaður FC Kaupmannahafnar, varð í gær yngsti Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu frá upphafi.
Það var nóg um að vera í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í kvöld þegar sex leikir í næst seinustu umferð riðlakeppninnar fóru fram á sama tíma. Ítalska stórveldið Juventus er úr leik eftir 4-3 tap gegn Benfica og stjörnurnar hjá Paris Saint-Germain léku á als oddi er liðið vann 7-2 sigur gegn Maccabi Haifa.
Borussia Dortmund og Englandsmeistarar Manchester City skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu markalaust jafntefli í endurkomu Erling Braut Haaland á sinn gamla heimavöll í næst seinustu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í kvöld.
Íslendingaliðið FC Kaupmannahöfn er úr leik í Meistaradeild Evrópu, en liðið mátti þola 3-0 tap gegn Sevilla í næst seinustu umferð G-riðils í kvöld.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea er á leið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-2 útisigur gegn FC Salzburg í kvöld.
Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson eru báðir í byrjunarliði danska félagsins FCK í Meistaradeildinni í kvöld.
Pep Guardiola sagði í gær að Erling Haaland væri enn betri knattspyrnumaður en hann hefði haldið, og jafnframt einbeittur í að bæta sig. Guardiola grínaðist einnig með að Haaland þyrfti að hafa stjórn á mataræðinu í langa fríinu sem hann á fyrir höndum.
Kanadíski tónlistarmaðurinn Drake er vinsælasti tónlistarmaðurinn á streymisveitunni Spotify frá upphafi en þykir ekki eins vinsæll í heimi íþróttanna eftir fjölda óheppilegra atvika undanfarin ár.
Federico Valverde er nýjasta stórstjarnan í liði Real Madrid og er ein af ástæðunum að spænska stórliðið saknar ekki mikið brasilíska miðjumannsins Casemiro.
Guðmundur Benediktsson og Baldur Sigurðsson voru á Ibrox þegar Liverpool vann stórsigur á Rangers, 1-7, í Meistaradeild Evrópu. Eftir leikinn ræddi Gummi við Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra Liverpool.
Liverpool skoraði sjö mörk á útivelli í Meistaradeildinni í gær og það var að nógu að taka þegar kom að metum og öðrum stórmerkilegum áföngum leikmanna Liverpool liðsins.
Guðmundur Benediktsson og Baldur Sigurðsson voru á Ibrox í gærkvöldi og sáu Liverpool liðið skora sjö mörk á útivelli í Meistaradeildinni.
Ensku félögin Liverpool og Tottenham unnu bæði leiki sína í Meistaradeildinni í fótbolta í gærkvöldi og nú má sjá mörkin úr leikjum þeirra hér inn á Vísi sem og úr miklu markajafntefli Barcelona og Internazionale.
Það eru ekki bara skæruliðadeildir á Íslandi því nú berast fréttir af því að franska stórliðið Paris Saint Germain geri út eina og það meira að segja gegn sínum eigin leikmönnum.
Tottenham Hotspur og Eintracht Frankfurt eru jöfn að stigum í afar spennandi D-riðli í Meistaradeild Evrópu. Bæði þurfa þrjú stig eru þau mætast klukkan 19:00.
Spænska stórveldið Barcelona var úr nánast úr leik í Meistaradeild Evrópu þangað til Robert Lewandowski kom til bjargar með tveimur mörkum í 3-3 jafntefli gegn Inter.
Mohamed Salah skoraði þrennu á sex mínútum í 1-7 útisigri Liverpool á Rangers í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Enginn hefur skorað þrjú mörk í Meistaradeildinni á jafn skömmum tíma.
Napoli og Club Brugge tryggðu sér þátttökurétt í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir úrslit fyrstu tveggja leikja dagsins í keppninni.
Það er óhætt að segja að rekstur fótboltaliðs Barcelona undanfarin ár hafi verið í kennslubók í hvernig á ekki að stýra fótboltafélögum.
Nóg var um að vera í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld en línur eru farnar að skýrast upp á framhaldið þar sem fjórða umferð riðlakeppninnar hófst. Hér má sjá öll mörkin í gærkvöld.
Antonio Rüdiger, varnarmaður Real Madrid, verður seint sakaður um að fórna sér ekki fyrir liðsfélaga sína. Hann tryggði liði sínu stig á ögurstundu í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld og var nálægt því að steinrotast í leiðinni.
Fyrrum franski framherjinn Thierry Henry segir landa sinn Kylian Mbappé bera keim af dekruðum krakka sem hafi aldrei verið neitað um neitt. Mbappé er sagður vilja fara frá Paris Saint-Germain aðeins örfáum mánuðum eftir að hafa skrifað undir nýjan samning.
Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað um óánægju franska framherjans Kylian Mbappe og að hann vilji komast í burtu frá París þrátt fyrir að hann sé nýbúinn að skrifa undir nýjan samning við félagið.
Það var einfaldlega skítkalt þegar blaðamaður mætti á Parken, heimavöll FC Kaupmannahafnar, fyrir leik FCK og Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Hvort það hafi haft áhrif á suðræna og seiðandi leikmenn gestaliðsins skal ósagt látið en leiknum lauk með markalausu jafntefli þar sem tveir ungir drengir frá Akranesi komu við sögu hjá heimaliðinu.
Hákon Arnar Haraldsson og Ísak Bergmann Jóhannesson komu báði við sögu í liði FC Kaupmannahafnar er liðið gerði markalaust jafntefli gegn Englandsmeisturum Manchester City í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea vann öruggan 0-2 útisigur er liðið heimsótti Ítalíumeistara AC Milan í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Heimamenn þurftu að spila stærstan hluta leiksins manni færri og sigur gestanna því í raun aldrei í hættu.
Antonio Rüdiger reyndist hetja Evrópumeistara Real Madrid er hann tryggði liðinu 1-1 jafntefli í heimsókn Madridinga til úkraínska liðsins Shakhtar Donetsk til Varsjá í Póllandi í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þá gerðu franska stórliðið PSG og Benfica 1-1 jafntefli í París á sama tíma.
Ísak Bergmann Jóhannesson, Hákon Arnar Haraldsson og félagar í danska meistaraliðinu FC Kaupmannahöfn sóttu sitt annað stig í G-riðli Meistaradeildar Evrópu þegar liðið gerði markalaust jafntefli gegn ógnarsterku liði Manchester City í kvöld.
Glasgow í Skotlandi iðar af lífi þessa dagana enda fara tveir leikir fram í borginni í Meistaradeild Evrópu á jafn mörgum dögum. Okkar menn, Guðmundur Benediktsson og Baldur Sigurðsson, eru í Glasgow og fylgjast þar með gangi mála.
Lars Lagerbäck, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands, þekkir vel til Norðmannsins Erling Braut Haaland eftir að hafa þjálfað hann í norska landsliðinu.